Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 206
Dóra Hafsteinsdóttir. deildarstjóri
Eva Sigríður Ólafsdóttir, aðstoðarmaður ritstjóra stafsetningarorðabókar
Guðrún Ingólfsdóttir, verkefnisstjóri
Kári Kaaber, deildarstjóri
Málstöðin fæst við fjölbreytt málræktarverkefni að eigin frumkvæði og í samvinnu
við aðra. Málstöðin veitir málfarsráðgjöf án endurgjalds og rekur orðabanka, þar
sem einkum eru íðorðasöfn, og svokallaðan málfarsbanka í tengslum við mál-
farsráðgjöfina. Skráðar fyrirspurnir og svör um málfar voru um 2.800 á árinu
2005. Aðsókn að orðabanka íslenskrar málstöðvar hélt áfram að aukast 2005 og
var 22.6% meiri en árið 2004. Undanfarin ár hefur verið unnið í málstöðinni að
viðamikilli stafsetningarorðabók ásamt ritreglum og kemur hún út 2006. Nýsamd-
ar ritreglur voru birtar á vef málstöðvarinnar 2005. Málstöðin sinnir margvísleg-
um öðrum kynningar-, útgáfu- og þjónustuverkefnum í þágu íslensks máls, s.s.
umsjón með ýmsum framkvæmdaratriðum við dag íslenskrar tungu. yfirlestri
handrita og ýmissi kynningu á íslenskri tungu. Þá má nefna innlent og erlent
samstarf. annars vegar um málrækt að því er lýtur að almennu máli og hins veg-
ar um íðorðamál. Á árinu vann málstöðin m.a. að samnorrænu tilraunaverkefni
um fjarkennslu í íðorðafræði með fleiri norrænum háskóla- og íðorðastofnunum.
íslensk málstöð vann á árinu 2005 í samvinnu við stjórn íslenskrar málnefndar að
framgangi nokkurra verkefna sem tilgreind eru í Stefnuskrá íslenskrar mál-
nefndar 2002-2005. Einkum var hér um að ræða málræktarþing 19. nóvember þar
sem m.a. voru veittar viðurkenningar fyrir gott íslenskt mát í auglýsingu og fyrir
gott nafn á fyrirtæki; bókmenntaþing ungra lesenda 16. nóvember og undirbúning
upptýsinga- og verkefnarits um íslenska tungu sem einkum er ættað ungu fólki.
Áárinu skipulagði málstöðin einnig m.a. málstofu 14. apríl undir yfirskriftinni (s-
lenska - í senn forn og ný sem var hluti viðamikillar alþjóðlegrar ráðstefnu 13,-
15. apríl á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
íslensk málstöð tók í gagnið í janúar 2005 ténið íslenskan.is / islenskan.is. þ.e.
bæði með og án broddstafs. sem nota má ásamt eldra léninu ismal.hi.is. Netföng
starfsmanna geta því endað á íslenskan.is / islenskan.is ef vilt.
Ma n n rétti n dastof n u n
Háskóla íslands
Almennt yfirlit og stjórn
Mannréttindastofnun Háskóla íslands er sjálfseignarstofnun. stofnuð af Háskóla
íslands, Lögmannafélagi íslands og Dómarafélagi íslands, 14. apríl 1994. Aðsetur
stofnunarinnar er í Lögbergi við Suðurgötu.
Stjórn Mannréttindastofnunar var þannig skipuð árið 2005: Björg Thorarensen.
prófessorvið lagadeild HÍ. formaður. Hjördís Hákonardóttir, dómstjóri við héraðs-
dóm Suðurlands. Róbert R. Spanó. dósent við lagadeild HÍ og Hrefna Friðriksdótt-
ir. hdl., meðstjórnendur. Varamenn í stjórn voru Hilmar Magnússon, hrl., og Pétur
Leifsson, dósent við lagadeild HA. Framkvæmdastjóri var María Thejll. hdl.
Útgáfa
Mannréttindastofnun Háskóla íslands hóf útgáfu tímarits með dómareifunum
Mannréttindadómstóls Evrópu á íslensku og kom fyrsta heftið út í október. Það
næryfir dóma Mannréttindadómstólsins fyrstu sex mánuði ársins 2005 en tíma-
ritið mun koma út tvisvar á ári. Dómsmálaráðuneytið styrkir útgáfuna en sérstök
ritstjórn hefur umsjón með henni. Ritstjóri tímaritsins er Björg Thorarensen. próf-
essor við lagadeild Háskóla [slands en í ritnefnd sitja dr. Oddný Mjöll Arnardóttir,
prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík og Skúli Magnússon. héraðsdómari
og dósent við lagadeild Háskóla íslands. [ tímaritinu eru reifaðir valdir dómar sem
taldir eru hafa sérstakt gildi fyrir túlkun ákvæða sáttmálans. Þá eru teknir með
dómar sem hafa sérstaka þýðingu fyrir íslenskan rétt. einkum í málum gegn öðr-
um Norðurtöndum þar sem oft er til umfjötlunar löggjöf eða ákvarðanir sem eiga
hliðstæðu í íslenskri réttarframkvæmd. Loks eru birtar í heild sinni í ístenskri
þýðingu ákvarðanir og dómar í kærumálum gegn ístenska ríkinu sem fram til
þessa hafa aðeins verið birtir á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins.
Ritið Mannréttindasáttmáli Evrópu - Meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslensk-
an rétt kom út á vegum Mannréttindastofnunar Háskóla ístands og lagadeildar
202