Stúdentablaðið - 01.02.2001, Blaðsíða 14
Ær M
snuast um traust
og ábyrgð“
Röskva vill nýta þau fjölmörgu sóknar-
færi sem gefast
að var líflegt um að litast í Röskvuris-
inu að Vesturgötu 2 þegar undirrit-
aður leit við til að ná taii af Kolbrúnu
Benediktsdóttur sem leiðir lista Röskvu til
Stúdentaráðs í ár. Kosningaundirbúningur
var í fúllum gangi og margt um manninn en
við Kolbrún komum okkur fyrir á rólegum
stað og ræddum um komandi kosningar,
hagsmunabaráttu stúdenta og stefnumál
Röskvu.
Kolbrún er borinn og barnfæddur Hafn-
firðingur og lauk grunnskólaprófi frá Set-
bergsskóla. Á menntaskóiaárum sínum
dvaldi hún bæði í Frakklandi og Danmörku,
en lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla
1998.
Hvað tókstu þér fyrír hendur eftir stúd-
entsprófið?
„Fyrsta árið fór ég til Ólafsvíkur og kenndi í
grunnskólanum þar og framhaldsdeild Fjöl-
brautaskóla Vesturlands. Haustið 1999 hóf
ég nám í íslensku hér við Háskólann og síð-
an í lögfræði haustið 2000. Samhliða nám-
inu hef ég kennt í Setbergsskóla og Hvaleyr-
arskóla og unnið í félagsmiðstöðinni Verinu
í Hafnarfirði.
Við stúdentar höfum áhrif
Hvað kom til að þú ákvaðst að fara i fram-
boð til Stúdentaráðs?
„Ég hef fylgst vei með starfsemi Stúdenta-
ráðs síðan ég hóf nám við skólann og hrifist
af því kraftmikla starfi sem þar hefúr farið
fram. Við stúdentar getum haft mikil áhrif
og starfsemi Stúdentaráðs skiptir grundvall-
armáli fyrir okkur öll. Ég vil taka virkan þátt
í því starfi og leggja þannig mitt af mörkum.
Afhverju valdirðu Röskvu?
„Sá kraftur sem býr í Röskvu hreif mig
með sér. í Röskvu er fólk sem þorir og fram-
kvæmir, enda hefúr Röskva náð miklum ár-
angri fyrir stúdenta með markvissri baráttu.
í því sambandi þarf ekki annað en að líta á
árangur Stúdentaráðs síðastliðið starfsár.
Röskva sýndi hörku í lánasjóðsmálunum síð-
astliðið vor og afraksturinn var einhver
mesta útlánaaukning LÍN í mörg ár. Grunn-
framfærslan hækkaði
annað árið í röð og
allir þeir grundvallar-
þættir sem áhrif hafa á
upphæð námslána
breyttust okkur
námsmönnum í vil.
Barátta Stúdentaráðs
gegn aðstöðuleysi við
skóiann hefur vakið
þjóðarathygii og grip-
ið hefur verið til
markvissra aðgerða til að nýta sem best það
húsnæði sem fyrir er, svo sem með því að
opna kennslustofúr sem lesaðstöðu og koma
á skráningarkerfi í I’jóðarbókhlöðunni.
Kennslumálin hafa verið tekin föstum tök-
um og einkunnaskil bætt verulega með nýrri
einkunnaskilasíðu.
Auk þessa hefúr Röskva gert sitt til að
lífga upp á háskólasamfélagið, og má þar
nefna Stúdentadaginn, afmælistónleika með
SigurRós og sjónvarpsþátt um háskólasam-
félagið. Ég vil taka þátt í þessu kraftmikla
starfi og við í Röskvu biðjum um umboð til
að halda áfram og taka næstu skref í hags-
munabaráttu stúdenta.
Mörkum ábyrga stefnu
Hver eru helstu áherslumál Röskvu í þessum
kosningum ?
„Röskva hefúr lagt fram ítariega stefnu-
skrá og þar er að finna stórtækar hugmynd-
ir um alla helstu þætti háskólasamfélagsins.
Við sjáum sóknarfæri á flestum sviðum
hagsmunabaráttunnar og viljum nýta þau.
Ég vil byrja á að nefna fimm mikilvæga
málaflokka sem Röskva leggur áherslu á í
þessum kosningum.“
Þjóðarátak í þágu Háskóla íslands
„Skólinn okkar býr við mikið fjársvelti og
við stúdentar verðum
að vera í fararbroddi í
baráttunni fyrir aukn-
um fjárveitingum til
skólans. Röskva vill
nýta það tækifæri sem
90 ára afmæli Há-
skólans skapar til að
efúa til þjóðarátaks í
þágu Háskóla ís-
lands. Með markvissu og skipulögðu átaki
verði leitað til atvinnulífsins, almennings,
sveitarfélaga og ríkis um aukinn stuðning
við skólann.
Við viljum m.a. hvetja fyrirtæki til að gefa
skólanum afmæiisgjafir og kanna í samstarfi
við Samtök atvinnulífsins hvernig háskóla-
menntun skilar sér til atvinnulífsins. Við vilj-
um virkja sveitarfélögin til uppbyggingar
Stúdentagarða og til eflingar rannsókna, svo
sem með því að efla fræðasetur HÍ vítt og
breitt um landið. Ríkið verði hvatt til þess
að gera vel við Háskólann á afmælisárinu og
okkar hugmynd er
að afmælisgjöf ríkis-
ins til skólans verði
sérstök fjárvciting til
byggingafram-
kvæmda. Síðast en
ekki síst verði al-
menningur virkjaður
í átakið. Stúdentar
kynni mikilvægi Há-
skólans fyrir þjóðina
og almenningi gefist
kostur á að rita undir yfirlýsingu um mikil-
vægi skólans og skori á stjórnvöld um hærri
fjárveitingar á afmælisárinu.
Átakið er í mörgum þáttum og við bind-
um miklar vonir við það. Við höfúm trú á að
áhrifamáttur stúdenta og velvilji þjóðarinnar
verði til þess að átakið styrki Háskólann
verulega. Með sameiginlegu átaki getum við
lyft grettistaki og stuðlað að kraftmeiri Há-
skóla fyrir alla.“
Sóknarfærín í lánasjóðsmálum nýtt
„Það eru ótvíræð sóknarfæri í lánasjóðsmál-
um og þau vill Röskva
nýta, m.a. til að hækka
grunnframfærsluna. í
janúar unnu stúdentar
sigur hjá umboðs-
manni Alþingis þar
sem hann féllst á að
málskotsnefnd LÍN
hefði ekki með fuii-
nægjandi hætti rök-
stutt að grunnfram-
færslan dygði námsmönnum til framfærslu.
Álitið verður sterkt vopn við árlega endur-
skoðun úthlutunarregina LÍN. Til að skapa
enn frekari sóknarfæri vill Röskva að stúd-
entar taki af skarið og framkvæmi sjálfir
könnun á raunverulegri framfærsluþörf
námsmanna. Við
stúdentar höfúm allt
sem til þarf til að
framkvæma vandaða
framfærslukönnun
og hún yrði öflugt
tæki í baráttunni fyrir
hærri grunnfram-
færslu og frítekju-
marki.“
Tæknivætt stúdentasamfélag
„Á tímum örrar tækniþróunar er nauðsyn-
legt að Háskólinn og stúdentar fylgist vel
með og tileinki sér gagnlegar tækninýjung-
ar. Röskva vill standa fyrir söfnunarátaki til
að koma skjávörpum í alla helstu fyrirlestrar-
sali Háskólans, sem verði einn liður í þjóð-
arátakinu. Röskva ædar að koma upp sér-
stökum prófgagnabanka á netinu, þar sem
unnt verður að nálgast gömul próf úr öllum
deildum á einum stað. Einnig ætlum við að
tæknivæða þjónustu Stúdentagarða og spara
stúdentum sporin með því.“
Betrí kennsla
„Röskva ætlar að halda áfram markvissri bar-
áttu fyrir betri kennslu. Röskva vill að utan-
aðkomandi fagaðilar verði látnir meta gæði
skora og deilda í þeim tilgangi að stuðla að
úrbótum. Einnig vill Röskva að
kennslukannanirnar taki mið af séreinkenn-
um hverrar deildar, enda gefur það betra
færi á að meta raunveruleg gæði námsins.
Við viljum einnig flýta birtingu próftaflna
og að settar verði skýrar reglur um prófsýn-
ingar.
Síðast en ekki síst viljum við að Háskólinn
taki upp aukið samstarf við aðra háskóla, t.d.
þannig að nemendur í Háskóla íslands eigi
fleiri kosti á að taka hluta námsins annars
staðar.
Stúdentavænt húsnæðiskerfi
„Húsnæðisvandi stúdenta er mikill og
Röskva hefúr mótað skýra stefnu til úrbóta.
Félagsmálaráðherra heíúr lýst því yfir að ný
löggjöf um húsaleigubætur sé á leiðinni og
við stúdentar þurf-
um að tryggja að
hún verði í sam-
ræmi við kröfur
okkar. Fað er t.d.
hrópandi órétdæti
fólgið í því að
námsmenn sem
leigja herbergi hafi
engan rétt tíl húsa-
leigubóta og þessu
vill Röskva breyta.
ítaríeg stefnuskrá
Þetta eru háleit markmið sem þú nefnir. Er
eitthvað fleira sem þið œtlið að koma í Jram-
kv&md?
Já, hér hafa einungis verið nefnd nokkur
af þeim málum sem við viljum koma í ffam-
kvæmd. Röskva vill t.d. tryggja heitan mat á
háskólasvæðinu. Við þekkjum öll skortinn á
heitum heimilislegum mat, enda endar há-
degishléið gjarnan í stefnulausri sjoppuferð
með tilheyrandi kostnaði. Við viljum að FS
geri tilraun með að selja heitan mat á kaffi-
stofúnum, að matsölustaður verði opnaður í
Stúdentaheimilinu við Hringbraut og að
settir verði upp matarsjálfsalar sem sinna
þörfúm stúdenta eftir lokunartíma kaffistof-
anna. Við viljum einnig að Háskólinn taki
næstu skref í umhverfismálum og að dag-
vistarrýmum fyrir börn stúdenta verði fjölg-
að með nýjum leikskóla FS.
Röskva stendur við orð sín
Ertu bjartsýn á komandi kosninjjar?
„Ég finn mikinn meðbyr. Ég held að
stúdentar séu meðvitaðir um þann mikla ár-
angur sem náðst hefúr á liðnu starfsári og
innan Röskvu starfa nú fleiri stúdentar en
nokkru sinni fyrr. Ég hvet alla til að kynna
sér vel stefnur fylkinganna, enda skiptir
miklu máli hverjir stjórna Stúdentaráði. Það
er kosið um traust og ábyrgð, málefni og
leiðir til árangurs.
Það eru stúdentar sem ráða því hvaða mál
verða sett á oddinn í hagsmunabaráttunni
næsta árið. Við í Röskvu höfúm sett fram þá
stefnu sem við viljum vinna eftir og það hef-
ur sýnt sig að Röskva stendur við orð sín og
lætur verkin tala. Við erum stórhuga og vilj-
um fúlla ferð áfram í hagsmunabaráttu stúd-
enta.“
Hjörtur Einarsson
„Til að skapa sóknarfæri í lána-
sjóðsmálum vill Röskva að stúd-
entar taki af skarið og framkvæmi
sjálfir vandaða könnun á raun-
verulegri framfærsluþörf náms-
manna.“
„Röskva vill nýta það tækifæri
sem 90 ára afmæli Háskólans
skapar til að efna til þjóðarátaks í
þágu Háskóla íslands."
„Við í Röskvu höfum sett fram ít-
arlega og stórhuga stefnu sem við
viljum vinna eftir og það hefur
sýnt sig að Röskva stendur við orð
sín og lætur verkin tala.“
14 stúdentablaðið - febrúar ‘01