Austurland : málgagn sósíalista á Austurlandi - 23.02.1943, Page 1

Austurland : málgagn sósíalista á Austurlandi - 23.02.1943, Page 1
AUSTURLAND MÁLGAGN SÓSÍALISTA Á AUSTURLANDI Virkjun Lagarfljóts Ávarp til lesenda Austurland er eini jjórÖungur ís- lands, sem engin prentsmiðja er í. Þar er ekkert blað gefið út, Ausl- jirðingum bœði til vansa og tjóns. Blöðin teljast til menningartœkja nútímans og eru í mörgum liljeU- um öflugur tengiliður milli-manna og byggðalaga. Blöðin samstilla oft krajta jólksins til jramfaramála um leið o'g þau skýra málin og gagnrýna. Margir menn á Austurlandi finna sárt til vöntunar prentsmiðju og blaða og hafa fullan hug á að ráða bót á. Prentsmiðja á Austurlandi hejir næg verkejni, ef aðeins er eðlilegt samstarj um rekstur lienn- ar. Margar stofnanir eystra fmrfa árlega á talsverðri prentun að halda, og auk þess mundi ejlaust, ef prentsmiðja vœri fyrir hendi, komast á fót eitt eða fleiri blöð. í Neskaupstað hafa undanfarin ár verið gefin út nokkur fjölrituð blöð, einkum þó um kosningar. Blöð þessi liafa verið léleg að frá- gangi og algjörlega ónóg. En þeir jjienn, sem mesl hafa á sig lagt við útgáfu þessara blaða, hafa fundið nauðsyn þess að halda úti blaði. Nú í liaust var í Neskaupstað gerð tilraun til að gefa út fjölritað blað fyrir mest allt Austurland. Þr.jú tölublöð af blaði þessu hafa verið send á flesta staði eystra. Við útgáfu þessara blaða hefir mönn- um orðið' það enn Ijósara en áður, hve bagalegt er, að engin prent- srniðja skuli vera á Austurlandi. Það var því ráð þeirra manna, sem að útsendingu þessa fjölritaða blaðs stóðu, að fá 4. tölublað blaðsins prentað í Reykjavík og gefið út á boðlegan liátt. Þetta blað, sem hér birtist, er því áframhald af þeirri tilraun, sem gerð hefir verið til þess að gefa út blað fyrir allt Aust- urland. Blað, sem prentað er í Reykja- vík, þótt austfirzkt blað sé, getur alls ekki komið að sama gagni og blað prentað fyrir austan. Orðug- leikar eru margir og miklir á því að œtla að prenta austfirzkt blað í Reykjavík, ?neð þeim strjálu og illu samgöngum, sejn á jjiilli Austur- landsins og Reykjavíkur eru. Ef við Austfirðúigar œtlum að eignast okkar blað eða blöð, eins og allir aðrir landsmenjfa þá verð- um við að eigjiast prentsmiðju eystra. Það er voji þeirja, sem að blaði þessu statida, að það megi Hin íslenzku i'allvötn eru jal'n dýrmæt íslendingum og olíulindir og kolanámur eru ýmsum erlend- um þjóðum. Þetta er okkur að skiljast æ bet- ur og betúr. Hver virkjunin rís upp ai annarri og eykur þar með mögu- leikana til hagrænni vinnubragða og bjartara og heilbrigðara lífs. En það er með rafvirkjanir eins og aðrar meiriháttar framkvæmdir, að haga þarf strax í byrjun öllurn vinnubrögðum og stofnkostnaði á sem viturlegastan hátt. Rafvirkjun, sem í upphafi er of lítil, kemur að litlu gagni, og ef stofnkostnaðurinn er að óþörfu hafður mjög hár, verð- ur hann baggi á fyrirtækinu, sem jafnvel getur gert rekstur þess ó- hæfan. Stórar og miklar rafvirkjanir eru margfallt æskilegri en smáar og því keppast nú flestir landsfjórðungar eða héruð við að skipuleggja sem mest virkjanir sínar í eina heild. Norðurland hefir fengið eina slíka stórvirkjun, sent er Laxárvirkjunin, og hana á enn að stækka til mik- illa muna. Suðvesturlandið hefir fengið Sogsvirkjunina, sem einnig er verið að stækka. Sigifirðingar eru nú að hefjast handa um orkuver við Fljótaá. ísfirðingar liafa fyrir nokkru kornið sér upp mjög myndarlegri virkjun og nú stendur fyrir dyrum hjá þeim veru- leg aukning. — Borgarfjarðar- og Mýrasýsla ásamt Akranesskaupstað eru einnig að leggja út í stóra virkj- un í Andakílsársfossum í Borgar- firði. Þá haia Vestmannaeyjakaup- staður og Rangárvalíasýsla bundizt samtökum um að virkja Tungufoss undir Eyjafjöllum. Enginn landshluti stendur eins aftarlega um undirbúning á þessu sviði og Austurland. Tvcir þingmenn sósíalista, þeir Lúðvík Jósepsson og Sigurður Thoroddsen verkfræðingur, flytja þingsályktunartillögu á Alþingi jjess efnis, að þegar ;i komanda sumri verði gerð ítarleg rannsókn ;i virkjun Lagarfoss og dreifingu orkunnar nteð tilliti til raforku- þarfar Austurlands. I greinargerð lyrir ályktuninni segir m. a.: ,,Á Austurlandi er raforkumál- tim illa komið. í þeim þorpum, sem rafmagn hafa, eru rafstöðvar og veitur gamlar og ófullnægjandi, og verða til þess að lyfla undir þá hug- mynd, að koma upp prentsmiðju á Austurlandi, jafnframt því að fylkja tnöjuium til samtaka um ýms framfara- og jjiejmijigarmál fjórðungsins. má heita, að í sumum þeirra sé nú sem næst rafmagnslaust. Á Seyðisfirði er gömul og ónóg vatnsorkustöð, og stendur fyrir dyrum allveruleg aukning á henni. í Neskaupstað er olíuhreyfilstöð algerlega ófullnægjandi. Á Eskifirði er ein elzta vatnsafls- stöð á landinu mjög úr sér gengin, svo að þorpið verður rafmagnslaust, ef ekki verður bráðlega ráðin á þessu bót. Frá Reyðarfirði liggur nú fyrir þinginu beiðni um allmikla ábyrgð- arheimild til nokkurrar aukningar á rafveitunni þar. Fáskrúðsfjörður á við allt of litla raforku að búa, sent tæplega nægir til ljósa. Héraðið allt er rafmagnslaust, nema hvað Eiðaskóla og Hallorms- staðaskóla viðvíkur, auk einstakra bæja. Eins og þessi lýsing ber með sér, verður innan skamms að gera ein- hverjar ráðstafanir til verulegra endurbóta í öllum Jrorpum þar eystra. Við þau flest háttar þannig til, að möguleikar eru þar til smá- virkjana, sem þó gera ekki meira en að fullnægja þörfinni í bili, ef í frambúðar. Sú skoðun ryður sér nú æ meira til rúms, að stefna beri að fáum en stórum virkjunum, en hverfa frá hinum mörgu og dreifðu smávirkj- unum. Fyrir Austurland er ekki um að ræða til slíkrar virkjunar nema eitt fallvatn, [>ar sem er Lag- arfljót. Þrátt fyrir þetta hef'ir engin ná- kvæm rannsókn farið fram um virkjun Lagarfljóts. Að vísu er til á- gizkun um virkjanlegt afl í fossin- um og jrað talið um 30.000 h.ö., en um aðstöðu til virkjunar og dreif- Með lögunt nr. 3 frá 9. jan. 1935 unt verkamannabústaði er gert ráð fyrir, að hlunnindalán byggingar- sjóðs verkamanna nái yfir alla kaup- staði og kauptún landsins. Sú hefir Jró reyndin orðið, að aðeins stærstu kaupstaðirnir hafa notfært sér lög þessi og komið sér upp verkamanna- bústöðum. Neskaupstaður og Seyð- isfjarðarkaupstaður ásarnt öllum kauptúnum landsins liafa engar byggingar reist samkvæmt lögunum og hafa því farið á mis við hin miklu hlunnindi, sent lögin veita. Á síðasta Aljringi var skipuð nefnd til Jress að athuga, liver væri ástæðan til þess, að hin mörgu þorp landsins hafa ekki enn notfært sér ingar orkunnar til byggða og þorpa austanlands eru engar áreiðanlegar heimildir til. Má segja, að Austur- land hafi hér verið sniðgengið, því að í öðrum fjórðungum landsihs hafa verið gerðar allverulegar at- huganir um þessi atriði. Þorp og sveitir eystra bíða nú eft- ir að fá úr því skorið, hvort kleyft sé að virkja sameiginlega á einum stað eða hvort Jxau eigi að ráðast í sína virkjunina hvert. Rannsókn þessi er því aðkallandi nauðsynja- mál, sem engan drátt þolir. Það fer ekki hjá því, að ef þessi rannsókn leiðir Jrað í ljós, eins og flutningsmenn búast við, að stór- virkjun í Lagarfossi sé heppilegri leið en sú, sem hingað til hefur ver- ið farin, muni með henni skapast nýir og stórfelldir möguleikar fyrir Austfirðinga til margháttaðrar at- vinnu og menningarskilyrði einnig stóraukast." Það er nauðsynlegt, að allir Aust- firðingar geri sér ljóst, hvert stór- mál hér er á ferðinni. Þegar allir landsfjórðungarnir nema Austfirð- ingafjórðungur hafa fengið mikla og ódýra raforku, er óhugsandi, að á Austurlandi geti þrifist annað en kotrekstur bæði til lands og sjávar. Nú Jregar er okkur kunnugt um ýnts tilfelli Joess efnis, að ekki er unnt að fá ttpp verksmiðjur á Aust- urlandi vegna þess, að rekstrarskil- yrði þar eru verri en víðast annars staðar sökum orkuleysis. Allur iðnarrekstur * bæði í sant- bandi við land- og sjávarafurðir krefst mikillar og ódýrrar raforku. Allur verksmiðjurekstur, skipa- og bátasmíðar og annað þess liáttar, allt jDetta útheimtir raforku. Ef við Austfirðingar eigum ekki að verða éftirbátar annarra, verðurn við þeg- ar í stað að bindast samtökum og hefjast handa um þetta mikla fram- faramál. Lagarfoss mun auðveldlega geta fullnægt orkuþörf okkar; beitum því okkar orku og beislum hans til framfara fyrir Austurland. J^au hagfelldu kjör, sem lögin bjóða. Enn hefir nefnd þessi ekki lokið störfum, og er Jdví ekki rétt að full- yrða neitt um ástæðurnár til þess, að aðeins stærstu kaupstaðirnir hafa byggt samkvæmt lögunum. En flest bendir til þess, að þorpin hafi ekki gert sér nægilega ljósa grein' fyrir hlunnindum laganna. Að vísu mun hitt einnig valda hér nokkru um, að þörfin í hinum stærri kaup- stöðum hefir verið meiri, og svo er Jiitt, að í kauptúnunum hafa flest- ir fram að þessu reynt að hreykja upp sem einföldustum og ódýrust- um húsurn, en lögin um verka- Framhald á 4. síð'u. ntikið Jtær er ráðizt, hvað þá að vera til V erkamannabústaðir

x

Austurland : málgagn sósíalista á Austurlandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland : málgagn sósíalista á Austurlandi
https://timarit.is/publication/592

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.