Austfirðingur - 19.03.1932, Page 1

Austfirðingur - 19.03.1932, Page 1
3. árgangur Seyðisfirði, 19. mars 1932 8. tölublaö Kjördæmamálið. Samkvæmt tillögum Sjálfstæðismanna veröur þingmannatalan 42 til 48. í kosningabaráttunni í fyrra vor hjeldu Framsóknarmenn því alveg óhikaö fram, að kjördæmin ættu að fara eftir lögsngnarumdœmum og engu öðru. Út frá þessu kom- ust sumir þeirra út í þær öfgar að halda því fram, að Reykjavík með 28 þús. íbúa ætti ekki að hafa nema einn eða í hæsta lagi tvo þingmenn, af því ekkert annað lögsagnarumdæmi hefði nema 2 þingmenn. Kjósendur óttuðust wReykjavíkurvaldið“ og kusu Fram- sókn til þess aö vera öruggir um, að spilling þess myrkravalds næði ekki meiri tökum á þjóðinni en nú er. það er nú komið á daginn hver hugur hefir fylgt máli hjá þing- mannaefnum Framsóknar, þegar þeir voru aö hræöa kjósendur sína á Reykjavíkurgrýlunni.. Nú leggur Framsókn til að Reykjavík fái 7—8 þingmenn, sami flokkur- inn, sem hingað ti! hefir fórnað höndum í ofboði, ef á það hefir verið minst aö fjölga þingmönn- um Reykjavíkur úr 4 upp í 5. Ástæðan til þessarar tilslökunar við „höfuöóvininn" er sú, að stjórnina brestur kjark til aö standa augliti til auglitis við kjósendur höfuðstaðarins um ieið og hún felur fyrir þeim sjálfsögðustu manti- rjettindi. Þessvegna eiga Reykja- víkurkjósendur að fá nokkra rjett- ingu mála sinna — í orði kveðnu. En út um land horfir málið öðru vísl við. Eins og kosningafyrir- komulagið er nú, hefir minnihlut- inn þar, hversu stór sem er, engan rjett. Það getur vel komið fyrir í tvímenningskjördæmi, að 500 kjósendur hafi 2 fulltrúa á Al- þingi en 499 kjósendur engan. Einn kjósandi getur gert 499 al- gerlega áhrifalauia. Við síðustu kosningar varö út koman sú, vegna úreltrar skipunar þessara mála, aö þriðjungur kjósenda utan Reykjavíkur var sviftur öllum á- hrifum á skipun þingsins. Framsókn hefir tjáð sig and- víga því, að kjördæmamálið sje tekið upp á þeim grundvelli, að kosningarjetturinn sje jafn fyrir alla. Þeir sem kunnugir eru íher- búðum stjórnarinnar vita vei, að nú sem stendur vakir ekkert ann- að fyrir flokknum en að draga málið á langinn með einhverju móti. Ræða forsætisráðherra við 1. umr. stjórnarskrármálsins gaf augljósa bendingu um þaö. Og ekki síður um hitt hverskonar rjettiætishugmyndir það eru, sem fyrir Framsókn vaka í þessu máli. Forsætisráðherra lýsti því yfir, að f kjördæmamálinu myndi oss best, að fylgja dæmi Englendinga. En öllum er kunnugt að ekkert lýð- frjálst land í álfunni býr við rang- látara kosningafyrirkomulag en England. Sýndi þetta sig hvað best við kosningarnar, sem þar fóru fram í fyrra haust. Þar varð útkoman sú, að stjórnarandstæö- ingar fengu ekki nema tíunda hvern þingmann, þótt þeir hefðu þriðja hvern kjósanda að baki sjer. í einum landshluta komu stjórnarsinnar aö 17 þingmönnum með 3/5 atkvæða. En stjórnar- andstæðingar, sem höfðu 2/5 at- kvæða komu engum að. Vissu- lega hefði stjórnin getaö lært margt gott af Engiendingum. En hún hefir ekki komið auga á neitt eftirbreytnisvert í fari ensku þjóð- arinnar, nema það atriði, sem öll- um kemur saman um a$ sje þeirri öndvegisþjóð til fullkominn- ar háðungar og vansa. Framsóknarmenn skildu þaö rjettilega, að niðurlagning hinna einstöku kjördæma mundi verða kjósendutn viðkvæmt mál. Þess- vegna báru þeir út sagnir um það fyrir kosningarnar, að Sjálfstæðis- menn hefðu gengið í bandalag við sósíalista um að leggja niður hin gömlu kjördæmi. Framsókn hafði ekki vaanst þess, að hægt væri að sameina þaö tvent, aö hin gömlu kjördæmi hjeldust, og að kosningarjetturinn yröi jafn um land alt. Þennan hnút leystu fulltrúar Sjálfstæðismanna í milli- þinganefndinni með tiliögunni um einmenningskjördœmi með upp- bótarþingsœtum. Menn munu hafa veitt því at- hygli, að fyrst þegar þessar tillög- ur komu fram, sagði Tíminn að Sjálfstæðismenn væru komnir inn á grundvöll Framsóknar í kjör- dæmamálinu. Foringjár Framsókn- ar sáu í hendi sjer, að þessar til- lögur voru svo sanngjarnar og eðlilegar og fjellu svo vel við kröfur kjósenda, að ekki mundi tjá að standa á móti þeim til lengdar. Þessvegna var opnað f hálfa gátt. Framsókn veit, að hennar bíð- ur ekkert nema ósigur í þessu máll. En hún kýs að fresta úr- slitum baráttunnar sem lengst. Ráöherrarnir, sem undanfarin ár hafa stýrt málefnum þjóðarinnar svo sem raun er á orðin, kjósa alt annað fremur an að nýjir menn fái tækifæri til að athuga ráðsmensku þeirra frá fyrstu hendi. „Frestur er á illu bestur". Þessvegna er málið flækt og dregiö á langinn. Framsókn treyst- ist ekki til að raska þeim grund- velli, sem Sjálfstæöismenn lögðu í kjördæmamálinu. í þess stað á aö hræöa kjósendur með því, aö þingmannafjöldinn verði óskapleg- ur eftir tillögum Sjálfsfæðismanna. Þykjast Framsóknarmenn hafa reiknað þetta út meö mestu ná- kvæmni. En það undarlega er að þessum reikningshausum flokks- ins ber ekki saman. Hjer eystra hafa Tímastærðfræðingarnir kom- ist að því, að þingmannatalan yrði 100. Vestur í Húnavatnssýslu halda þeir því fram, að þing- mannatalan verði 140. Og í Ár- nessýslu voru þeir komnir upp f 270 þegar síðast frjettist. Ekki er gott að segja hvað þessi þvættingur um þingmannafjölgunina gefur Framsókn langan gálgafrest, en sennilega verður hann ekki mjög langur. Sannleikurfnn er sá, að eftir tillögum Sjálfstæðismanna mundi þingmannatalan veröa 42 til 48. Og hefir Framsókn enn sýnt að til eru þeir, sem ljðga meir en um helming. Til þess að lesendur geti gengið úr skugga um hvað rjett er í þess- um efnum, eru hjer á eftir teknir orðrjett upp nokkrir kaflar úr nefndaráliti Sjálfstæðismanna f kjördæmamálinu. Eftir að rakinn hefir verið gang- ur þessara mála í Danmörku, seg- ir svo „Það hefir þannig orðið niöur- staðan af endurteknum, vandleg- um íhugunum stjórnmálamanna og sjerfræðinga í kosnlngafræðum í Danmörku, að hlutfallskosning- ar í sambandi viö einmennings- kjördæmi sjeu ekki nothæfar nema í sambandi viö fyrirfram óákveðna tölu uppbótarsæta, ef nást á hlut- fallslegt jafnrjetti milli flokkanna. Sömu skoðunar erum við, eftir vandlega íhugun á þessu atriöi, nema gripið sje til þeirrar frávikn- ingar frá einu atriði tilhögunar- innar, sem greint veröur hjer á eftir. Flokkur. Sjálfstæðisflokkur Framsóknarflokkur.... 138441/2 24 Alþýðuflokkur........... 6197 V* 17 Kommúnistaflokkur... 1165 5 Utan flokka ............. 125 2 Hinsvegar höfum við oröiö þess varir, bæði í nefndinni ogannars- staðar, eftir að tillögur okkar voru birtar, aö menn hafa af þessu dregið þá ályktun, að engar skorð- ur væri unt að setja gegn því, að þingmenn yrðu óhæfilega margír, af því að ekki er unt aö takmarka eða ákveða meö lagaboði fyrirfram sjálfa þingmannatöluna. En þetta er misskilningur. Tala þingmanna ákvarðast annarsvegar af tölu greiddra atkvæða, sem ekki getur vaxið úr hófi, og hinsvegar af hlutfallstölu kosningarinnar, eins og hún er skilgreind í tillögunum. Til þesa að koma í veg fyrir óhæfilegan fjölda þingmanna þarf ekki annað en að tryggja það, að hlutfallstalan verði ekki óhæfi- lega lág, og það má tryggja á ýmsan hátt með ákvæðum í kosn- ingalögum. Athugað hefir veriö, að eftir þessari kosningatilhögun og með atkvæðatölum þeim, sem komu fram við alþingiskosningar 1927 og 1931, hefði tala þingmanna orðiö 43 við fyrri kosninguna og 43 eða 44 viö seinni kosninguna, eftir því hvort reglurnar til upp- bótarsæta hefðu verið þannig, að kommúnistaflokkurinn, sem náði ekki þingsæti í neinu kjördæmi, hefði fengið uppbótarsæti eöa ekki. Með þessari þingmannatölu hefðu flokkarnir náð tullu jafnrjetti að þingsætatölu. Og þó olli kjör- dæmaskipunin svo mlklu misræmi við kosninguna 1931, að þaö er í raunimi ekki sennilegt, að það geti orðiö nokkrum mun meira, eða fleiri uppbótarsæti þurft til þess, að jafna milli flokka. Að minsta kosti yrðu til þess að vera einhverjar sjerstakar ástæður, og höfum við ekki komiö auga á neinar, sem líklegar sjeu til að sprengja þessa tilhögun með óhæfilegri þlngmannafjölgun. Skul- um við minnast ð það helsta, sem vjer höfum heyrt að vaklð hafi hjá mönnum ótta um þitta, en af því að alt þetta verður best útlistað með dæmum frá einhverjum raun- verulegum eða hugsuðum kosn- ingum, þá tökum við fyrst kosn- inguna frá 1931 sem dæml til út- listunar. Með atkvæðatölum þeim, sem komu fram við þessa kosningu, en eftir þeirri tilhögun, sem við stingum upp á, hefði aðalniður- staðan orðiö þessi: íaikv. aus. rrarnDj.i 17212 26 IVJUIU. I\uanii » rvjuiu. uppuuuuicu. 11 9 16 3 0 0 0 4 ? 0 20 16 7 ? 0

x

Austfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austfirðingur
https://timarit.is/publication/594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.