Austfirðingur - 24.05.1932, Qupperneq 1

Austfirðingur - 24.05.1932, Qupperneq 1
3. árgangur Seyðisfirði, 24. maí 1932 17. tölublað 4200 dagsverk. í dag eru liðnir 100 dagar frá því Alþingi var sett. 42 úrvals- menn þjóðarinnar hafa allan þenn- an tíma setið með sveittan skall- an. 4200 dagsverk þessara úrvals- manna eru komin í þingstörfin. Og þó er engu lokiö. Fyrir helg- ina var Tryggvi Þórhallsson að leita hófanna viö andstöðuflokkana, að fá þingi frestað til haustsins. Hann hefir víst litið svo á, bless- aður forsætisráðherrann, að þing- menn væru orönir svo þreyttir, eftir þessa löngu og hörðu útivist, að þeim veitti ekki af sumarhvíld- inni til að safna kröftum undir af- greiðslu málanna! Það hefir oft áður verið yfir því kvartað, aö þingmenn væru þaulsætnir en afkastalitlir. En aldrei hefir þó verið jafn mikil ástæða sem nú til þessara um- kvartana. Og þó horfir nú svo við, gagnstætt því sem áður hefir oftast veriö, að stjórnarflokkurinn hefir hreinan meirihluta í þinginu. Stjórnarflokkurinn ræður ekki ein- ungis vali forsetanna, heldur hefir hann og meirihluta í ölium nefnd- um beggja deilda. Hann hefir þess vegna alla aðstöðu til þess að hraða störfum þingsins sem mest, og stjórnarandstæðingum verður vissulega ekki legið á hálsi fyrir það, að hafa tafið störfin með óþarfa málþrefi. Eldhúsverkin gengu „eins og í sögu“ og þó hefir aldrei meira verið að þrífa á þeim staö. Mikið er talað um ofvöxt í ýmsum greinum nú á dögum. Þeg- ar litið er til þess, að það eru ekki tuttugu ár síðan að þjóöin gat komist af með Aiþingi annað- hvort ár, og þá venjulega ekki nema 6 vikna tíma, er aug- ljóst að nokkur ofvöxtur er hlaup- inn í hina æðstu stjórn landsmál- anna. Og hvenær var þó meiri þörf að hraða afgreiðslunni en einmitt nú. Þinghaldið kostar ekki minna en 2000 krónur á dag. Þegar svo er komið fjárhagnum, að ekki fæst eyrir til hinna nauðsynlegustu framkvæmda, þá er ekki að undra þótt þjóðin sjái í það fje. Ogsök þeirra manna, sem mestu valda um það, hvernig komið er fjárhagn- um, ljettist ekki við það, að nú viröist þeim ógerningur aö haga störfum þingsins svo að viðunandi sje. — Þessa sfðustu ’daga hafa ýmsar fregnir um þaö’gengiö, hvaö ger- ist að tjaldabaki í þinginu. En það er með slíkar fregnir eins og ísa- fregnir, að ekki er gott að henda reiður á hverju einu í þeim orð- rómi. En ástæðan til þessara sögu- sagna er sú, að í föstudaginn, þegar verðtollurinn og gengisvið- aukinn voru á dagskrá í efri deild lýsti Jón Þorláksson því yfir fyrir hönd Sjálfstæöisflokksins, að hann mundi greiða atkvæði gegn þess- um tekjuaukafrumvörpum, ef ekki næðist samkomulag um stjórnar- skrána við Framsóknarflokkinn. Og ennfremur lýsti hann því yfir, að flokkurinn mundi greiða at- kvæöi gegn fjárlögum, ef þetta samkomulag fengist ekki. Jón Baldvinsson lýsti því jafnframt yfir, að hann mundi greiða atkvæði gegn þessum frumvörpum. Þar með voru málin strönduð í þing- inu. Forsætisráðherra óskaði at- kvæðagreiðslunni frestað og var búist við að stjórnin mundi biðj- ast lausnar þá þegar. Nú eru liðn- ir nokkrir dagar án þess vitað sje aö stjórnin hafi beðist lausnar. Allan þann tíma hefir vitanlega verið haldið áfram makki og ieyni- bruggi og er auðvitað ekkert af því svo kunnugt mönnum út í frá, að nokkuð verði fullyrt um hvað í þvf er hæft. Meðal þess, sem hefir átt að gerast, er sagt að dómsmálaráö- herra hafi viljað fá flokk sinn til að fallast á að þinginu væri hleypt upp eins og í fyrra, eða þá að stjórnin mætti silja og stjórna fjárlagalaust. En báðar þessar til- lögur hafi verið feldar innan flokks- ins meö 4 atkvæða meirihluta. Þá segir sagan og aö JónasJóns- son hafi gert tilraunir til að mynda stjórn með liðsinni Jafnaðarmanna og sú tilraun muni einkum hafa strandað á fylgisskorti innan hans elgin flokks. Loks er það hermt að Ásgeir Asgeirsson, muni leitast við að mynda stjórn með uppi- stöðu fylgis síns úr Framsókn og hlutleysi einhverra annara manna. Hvaö sem í öllum þessum frjett- um er hæft má fullyrða þaö, að Sjálfstæöismenn ganga ekki inn á neitt samkomulag um stjórnar- myndun, nema þeir geti jafnframt trygt sjer örugga lausn stjórnar- skrármálsins. Dagsverkin á Álþingi eru orðin 4200 og kostnaðurinn við Alþingi er oröinn að minsta kosti 200 þús. krónur. Og þó erengulokið. Ef til vill hefir sigur Framsóknar ekki verið eins mikill í fyrra sem af var látið í fyrstu. Andstæðurn- ar innan flokksins hafa vissulega skýrst. Alls er freistað til að fá að hanga viö völd. En altaf brest- ur undan fótum. Þjóðin mundi vissulega una því best, að þessu þingi fylgdu nýjar kosningar, svo að tilraun mætti gerast um slíka skipun Alþingis, að dagsverkin yrðu færri, en afrekin meiri. Eggert Stefánsson söngvari. öðru hvoru kemur þessi góð- kunni og víðfrægi söngvari hing- að heim, til þess, að veita oss ánægju meö söng sínum og leita sjálfum sjer endurnæringar við brjóst íslenskrar náttúru. — Hing- að kom hann í vikunni sem leið á Lagarfossi. — Hvar hafið þjer aliö mann- inn síðan þjer voruð hjer heima sfðast, spyr jeg Eggert Stefánsson. — Víðsvegar um Norðurálfuna mest á Frakklandi, Englandi og ftalíu, og skroppiö til Norðurland- anna. — Altaf að syngja? — Já, jeg hefi haldið konserta í þessuni löndum, oft í sumum, og stundum við mjög mikla að- sókn. Svo hefi jeg sungið í vetur fyrir útvarp í París, Lundúnum og Róm. — Og viöfangsefnin? — Mest íslensk og ítölsk. Stund- um hafa eingöngu íslensk lög verið á söngskránni, og stundum íslensk og ítölsk saman, undan- tekiö lag og lag frá öðrum þjóð- um. Og í fyrra var jeg beðinn að koma til Stokkhólms og syngja ítölsk lög. — Um svipað leiti fór jeg til Finnlands, ágæta söngför. Og yfirleitt hefi jeg verið ánægð- ur með viðtökurnar og þó einkum ánægju tilheyrenda minna yfir ís- lensku viðfangsefnunum, sem kem- ur ávalt betur í ljós, því oftarsem þau eru endurtekin. Það má vera íslendingum mik- ið gleðiefni hvert álit Eggert Stef- ánsson hefir áunnið sjer meðal mentaþjóða erlendis. Hann er ís- lenskur hugsjónamaður. Og hann verður því ramíslenskari því lengur sem hann dvelur erlendis og má segja aö í þeim efnum sje svipað um hann og t. d. Grím Thomsen eða Einar Benediktsson. Enginn íslendingur hefir gert eins mikið til að víðfrægja íslenska sönglist eins og Eggert Stefánsson. Þessvegna — út af fyrir sig — á að vera fult hús hvenær og hvar sem Eggert býður að hlusta á sig innanlands. Eggert hefir í þetta sinn sungið á Eskifirði, Norðfirðl og hjer í kirkjunni á sunnudaginn ogspítal- anum í gær. Ekki er tilgangurinn með línum þessum að dæma um sönginn, en óefað máfullyröa, að ef hann hefði sungið annarsstaðar en í kirkjunni, að þá hefði ánægja tilheyrenda komið betur í ljó». Mun almennust ánægja hafa veriö með söng hans á „Lost Chord“ eftir Sullivan, „Klukknahljóð" eftir Sigvalda Kaldalóns og„Kvölddæn“ eftir Björgvin Guðmundsson. — Frú Anna Wathne og Jón Vigfús- son aðstoðuöu. Hjeðan fer Eggert á „Súðinni" til Húsavíkur og syngur þar um helgina. S. A. Þjóðstjórnarflokkur. f sfðasta blaði var lauslega mlnst ð nýútkomlnn bækling eftlr Jón H. Þorbergsson um Þjóðstjórnarflokk. Ýmsir af lesendum blaðslns hafa óskað þess, að kynnast ðliti Jóns nðnar. Og er því tekinn hjer upp inngangurlnn að ritgerð hans. — Flokkapólitíkin hefir á undan- förnum árum siglt mikinn byr meðal þjóðanna, og líka hjásmá- þjóðinni íslensku. Hún á í fyrstu upptök sín hjá stórþjóðunum fyrir rangsleitni ákveöinna stjetta, gegn öðrum stjettum innan eins og sama þjóðfjelags. Hún er, svo sem hún á kyn til, öfgakend. Hfin heldur raunar alt aðra braut held- ur en þau öfl í mannsandanum, sem starfa og stefna að æðsta marki. Það er algengt að hún rjettlætir það sem hún gerir rangt. Hún er oft blind á alment rjett- læti. Allar hennar öfgar verða hennar rjettlæti, hennar trúarbrögð. Einn flokkur virðir að engusann- Ieiksatriði hjá öðrum flokki innan sama þjóðfjelags. Sumstaðar hafa ákveönir flokkar náð undir sig hervaldi þjóðarinnar, brytjað niö- ur og kúgað samþegnana og ekki hlíft hjá þeim andlegum yfirburð- um eða hreinni siögæðisstefnu eða yfirleitt neinu því, sem til- heyrir kjarna hvers þjóðfjelags. Hver stjórnmálaflokkur veröur að hafa göfugt verkefni með hönd- um, mannfrelsis- og þroskamál, og sýna fulla ráðvendni í opinberum málum, bæði til orða og verka. Annars á stefnan eða flokkurinn engan rjett á sjer. Annars miöar starf hans til bölvunar fyrir þjóð- ina. Jeg hefi heyrt ákveðna flokks- m«nn hjer á landi halda þvífram, að það sje sjálfsögð stjórnkænska að segja ósatt þegar barist sje fyrir flokksmálum. En opinberlega vilja þeir sömu menn aldrei kann- ast við skreytnina, af því að þeir vita, að hún er óleyfilegt vopnog

x

Austfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austfirðingur
https://timarit.is/publication/594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.