Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 20
16
í Breiðuvíkinni er auk • þess allvíðast allgóð vetrarbeit, á
Knerri mjög góð og fjallendi viðáttumikið og allkostgott.
Hinn hluti Breiðuvíkurhrepps er engu síður kostum búinn,
þó nokkuð sé það á annan veg. Utan Sölvahamars er þá
fyrst Arnarstapi, fiskiver allgott. Þar muuu vera tun svo
góð (sem öll liggja hvort að öðru), að þau nú fóðra um 15
kýr, en mundu með sæmilega góðri hirðingu geta fóðrað
milli 20 og 30 kýr; auk þess er þar margra dagslátta tún-
stæði mjög auðunnið. Þá koma Hellnar, hin fiskisælasta
veiðistöð, jafnt vetur og sumar. Þar eru nú tún svo mikil
að þau fóðra um 20 kýr, eu mundu geta tvöfaldast án stór-
kostnaðar; þar er afbragðs vel fallið til garðræktar, enda
garðrækt þar talsverðj; þar er og sauðganga svo góð, að á
góðum vetrum ganga sauðir, eldri en veturgamlir, sjálfala.
Á Malarrifi og í Einarslóni eru landkostir fyrir sauðí’ó rnjög
góðir; þar er hið fiskisælasta svæði undir Jökli. Á Malar-
rifi er fugltekja eigi lítil. í Einarslóni eru afarstór tún og
sæmilega grasgefin. í Beruvík er fiskiver sæmilegt; þar eru
tún mjög mikil, en gætu verið miklu meiri; þar er og sauð-
ganga afbragðs góð, bæði á fjöru [og fjalli, jafnt vetur og
sumar. Þá er Saxakvoll, ef til vill ein hin bezta sauðjörð f
sýslunni. Þar er einnig afarmikil fugltekja í Svörtuloftum.
Loks er Ondvertues fiskisælt að vonum, þar sem það liggur
fyrir tvennum hafgöngum.
Kostir Breiðuvíkurlirepps frá náttúrunuar hendi eru því
í stuttu máli þessir: Afbrigða slægjur, fengsæl fiskiver hvort
út af öðru, sauðlönd afbragðsgóð og afróttarlöud afarvíð og
mjög kostagóð. Enda mætti sá hreppur eiga sér rnjög blóm-
lega framtíð.
Eu vanþrifameiniu eru mörg, bæði í Breiðuvíkurhreppi
og Staðarsveit og iná drepa á þetta: Ónógur dugnaður,
margúreltur liugsuuarháttur, úr sér gengin kyuslóð margra
orsaka vegna, afarvoud og kúgandi viðskifti, alls eugar
samgöngur við aðra landsfjórðuuga til skaroms tfma og alls
ónógar eftir að þær urðu o. fl. o. fl. Er því margt meinið
sem græða þarf, enda mörg skilyrði til þess frá náttúruunar