Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 92
88
t. d. nýtt ósaltað smjör, eða þó heldur oliusætu (Glycerin)
sern bæði er ódýr og gerir spenana mjúka og ver þá fyrir
sprungum. Hvað, sem spenarnir eru smurðir með, á að bera
það á eftir að búið er að mjólka en ekki á undan. — Það,
sem hér er sagt um mjaltirnar er ekki sagt til þess að
kasta steiui á fólk alment, heldur til þess að vekja athygli
manna á hve nauðsynlegt það er að gæta alls hreinlætis
og umhyggju við mjaltirnar til þess að smjör vort getikom-
ist í álit á heimsmarkaðinum. Það er auðvelt að halda
rjómanum ósúrum ef hann er kældur strax og búið er að
skilja, en vel verður að gæta þess að vatnið utan um föt-
una standi minst eins hátt og mjólkin i henni. Bezt er að
hreinsa flutningsfötuna og yfir höfuð öll mjólkurílát með
vættu kalki (sjá „Leiðarvísir um meðferð mjólkur11, Búnaðar-
ritið 14. ár, 2. hefti). Ef þau skilyrði, sem að fram-
an eru nefnd, eru uppfylt, eru allar líkur til að rjóminn
komi nýr og óskemdur til búanna, og svo er það smjörgerð-
arkonunnar að sjá um að smjörið verði gott.
Því næst vil eg minnast nokkuð nánar á búin sjálf og
nokkur atriði við rekstur þeirra. Að þvi er mjólkurskálana
sjálfa snertir, þá er ekki mikið um þá að segja; þó vil eg
stuttlega tala um tvo þeirra. Á Kálfá er byggingin sjálf
fremur góð, en öll smjörgerðin fer þar fram í sama herbergi,
sem er mjög óheppilegt. Sýring, strokkun og smjörlinoðun-
in ætti að fara fram í sértöku herbergi, og öll önnur vinna
i öðru herbergi. Hitt mjólkurbúið, som eg vil minnast á, er
Rauðalækjarbúið. Þar er byggingin og fyrirkomulagið betra
eu á nokkru af hinum búunum, að öðru leyti en því, að
vatnshjólsöxullinn gengur ekki inn i húsið, sem hann ein-
mitt á að gera. Að öðru leyti vil eg benda á Bauðalækj-
arbúið sem fyrirmynd. Gólfin i öllum mjólkurbúunum voru
meira eða minna skemd (að undanteknu Birtingaholtsbúinu),
og alstaðar' af þeirri ástæðu að þau höfðu verið lögð of
seint. Ef menn vilja hafa gólfiu úr sement verður að leggja
þau minst mánuði áður en á að fara að nota þau, og menn
meiga ekki spaia sementið í efsta lagið of mikið. Gólfið á