Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 94
90
ur til) 7 þ., og hraði vatnshjólsins 35 snúniúgar á mínútu, þá
á reimkringlan á vatnshjólinu að vera 26 þ. að þvermálieða
150X12=129. 129X7 __ Annars vil eg ráðleggja
14 ’ 35 öllum, sem vilja nota vatn
fyrir hreyfiafl i rjómabúunum, að hafa kraftinn nógu mikinn.,
Ef hraðinn ætlar að verða of mikill er ekki annað en að
taka vatn af hjó'linu, þangað til hann er orðinn hæfilegur.
Sé fallið minna en 6 fet er ekki gott að brúka ofanstreymis-
hjól, en þar á móti undirstreymishjól (Ryghjul), þar sem
vatnið er leitt inn fyrir ofan miðju hjólsins, eu þá þarf
meira vatn og þarafleiðandi breiðara hjól.
Á flestum búunum voru tvær stúlkur í vinnu, og sögð-
ust þær hafa nóg að gera frá morgni til kvelds. í>etta staf-
aði þó í mörgum tilfellum af því að strokkunin tók svo lang-
an tíma, og þar af leiðatidi seinkaði allri vinnunni. Það
eykur mikið framleiðslukostnaðinn, að þurfa að hafa tvær
fullvaxnar stúlkur á búunum nema að búið só því stærra og
því virkilega nóg fyrir þær að gera. Á rjómahúi, J)ar sem
alt er vel útbúið og strokkunin tekur ekki nema 25 mínút-
ur (strokkurinn verður að vera nógu stór) og rjómiun kem-
ur á ákveðnum tíma, getur dugleg stúlka búið til kringum
100 j)d. af smjöri á dag og gert alla þar að lútandi vinnu
á búinu. Sé búið stærra, þurfa þar á móti tvær stúlkur.
Tvær stúlkur geta hinsvegar búið til mikið meira en 200
pd. af smjöri á dag, þvi þvottur allur er hór um bil sá
sami, hvort sem búið er stærra eða minua og því er áríð-
andi að búin séu sem stærst, svo framleiðslukostnaðurinn
verði sem minstur.
Eins og þegar hefir verið tekið fram, er áríðandi að
rjómabúin séu sem stærst, en þá verður flutuingurinn á
rjómanum fyrir þá, sem búa lengst frá búinu of kostnaðar-
samur, eftir því fyrirkomulagi, sem nú er. Að hver ein-
staklingur flytji sjálfur sinn rjóma til búsins, virðist í fljótu
bragði kostnaðarminst, þvi á þann hátt sparast bein útgjöld,
en ])egar betur er aðgætt, má þó sjá, að það verður í rauu-
iuni miklu kostuaðarsamara. í fyrsta lagi eru margir, sem