Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 114
liö
aein varð ríkur á því að vera agent þilskipa-útgerðurmanná
á Vestfjörðum, og er ekki nema maklegt að þessi útflutn-
ingspremía á vinnukrafti Snæfellsness komi einhverjum hluta
héraðsins að notum. 1 annan stað er þilskipaútvegur nú að
koma í sjálfum Stykkishólmi, ganga þaðan ein 4—5 skip.
Þar sem þilskip leggur upp fiski kemur atvinna í landi,
mest fyrir liðléttinga, þetta 1—2000 kr. um árið. Það er
munurinn að flytja út vinnukraftinn eða nota hann heima.
Núna t. d. eru 100 Akurnesingar á þilskipum sem héðan
ganga, og þó að aflahæðin verði kannske meiri, bætir það
bygðinni illa hinn eydda bátaútveg. Ólafsvík getur vegna
hafnarleysisins ekki kept við Stykkishólm í þilskipaútgerð,
Grundarfjörður er auðvitað nær því, og hann er fyrir utan
eyjar og strauma og vergögn þar enda enn betri en í Hólm-
inum, en þá kemur aftur það, að í Hólminum er nú einu
sinni fólkið fyrir, sem getur átt skipin og verkað fiskinn.
í annan stað má búast við því að Hólmurinn verði mið-
stöð allrar verzlunar við Breiðafjörð. Mór var sagt, að auð-
gefið og ódýrt væri að koma þar upp stórskipabryggju, og
innsiglingu má bæta með leiðarljósum. Að fara með allstór
strandferðaskip inn i Skarðstöð, hvað þá inst inn í Hvamms-
íjörð, eru vandræði — ofdýrt. Getur maður ekki gert sér
vonir um að mótorbátar komiaðhaldiáBreiðafirði og að þeir
verði eign hlutafólaga við Hvammsfjörð og inn við Gilsfjörð og
víðar, sem fái svo ríflegan styrk til að hafa ferðirnar reglu-
hundnar. Eg ætla stóra vöruskipinu, sem færir og flytur,
að koma beint frá útlöndum, nema hvað það auðvitað hefir
farið um í Reykjavík; og eg ætla mótorbátunum að hafa nóg
að vinna, þegar þeir koma i stað bæði opinna skipa og
strandbáta — og bezt er að eiga bátinn sjálfur. Vitaskuld
— þegar þetta er orðið, þá eru verzlunarhúsin í smáu kaup-
túnunum innfrá orðin að geymsluhúsum kaupfélaga.
Búnaðarfólag Skógarstrandarhrepps er mun eldra en
búnaðarstyrkurinn, og mun fólagið í fyrstu komið til fyrir
forgöngu Guðmundar prófasts Einarssonar. Einn af stjórn-
endurn fólagsins, Magnús Márusson á Ytra-Leyti, sagði mór