Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 155
151
eða snögg af því að á,burðarhestum er ekki ætlað að hlaupa
hart.
Auk þeirra krafa sem gjörðar eru til reiðhestanDa, og
nefndar hafa verið, skal leggja áherzlu á að þeir sóu sem
fríðastir og samsvari sér sem bezt og hafi hreinar og fjölbreytt-
ar gangtegundir. Þótt áburðarhestaFuir þar á móti sóu ófríð-
ir eða hafi eiuhver lýti, þá gjörir það minna til, að eins að
þeir hafi enga galla, sem skaðað geta starfsþrek þeirra. Og
að því er ganginu snertir ber að eins að leggja áherzlu á
tvær gangtegundir, seinagang og brokk..
IV. Sýningar á búpeningi.
Búpeningssýningar voru orðnar all almennar i nágranna-
lönduju vorum um miðja 19. öld, og hafa síðan stöðugt náð
meiri og meiri útbreiðslu, þannig að þær eru nú hvervetna
álitnar hin öflugasta lyftistöng búpeningsræktarinnar. I>etta
liggur sórstaklega í því að sýningarnar hafa reynzt hið öfl-
ugasta og áhrifamesta meðal til þess að vekja almennann á-
huga á búpeniugsræktinni, og samkepni millum hinDa ýmsu
uppalara. Þetta, þótt ekki væri annað, er í sjálfu sér uæg
meðmæli með sýninguuum. Þó er margt fleira, sem telja
má þeim til gildis. Sýningarnar eru þannig hvervetna viður-
kendar, að vera hiun bezti praktiski skóli, til þess að kenna
bæudum og bændaefnum að þekkja og meta rétt kosti og
ókosti dýranna sein hinsvegar er ómissaudi til þess að þeir
geti beint húsdýraræktinni í rétta stefnu, þannig að hún
verði sem arðsömust. Sýningarnar ráða jafnfrarat óbeinlín-
is í livaða stefnu búpeningsræktinni er haldið, með því að að
eins þau dýr eru verðlaunuð, er hafa þá kosti til að bera,
sem álitnir eru þeir heppilegustu i því hóraði eða bygðar-
lagi, sem sýningin er fyrir. Að endingu má ekki gleyma
þeim mentandi áhrifum, sem sýningarnar hafa, bæði fyrir
eldri og yngri. Jafuframt þvi sem þær eru mjög heppileg-
ur samkomustaður fyrir bæudur, til þess að ræða áhugamál
sín, eru þær sérlega lærdómsríkar fyrir æskulýðinn, og .vel