Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 197
193
of lítill gaunmr gefinn, og í sumum sveitum nyrðra er svo
að segja enginn gagnlegur garðspotti. í Norður-Þingeyjar-
sýslu eru 3 búnaðarfélög; tvö af þeim nutu Jandssjóðsstyrks
síðastliðið ár.
Aburður er alrnent vel hirtur norðanlands, eftir þvl sem
gerist, en áburðarliús eru þar fá. Þau þyrftu þó, ef vel á
að fara, að vera á hverju heimili.
Mjólkurbú eða rjómabú eru að eins 3 á Norðurlaudi,
1 í Yatnsdalnum i Húnavatnssýslu og 2 í Skagafirðinum.
Stærst af þeim er búið í Yatnsdalnum, og stendur til að
það verði aukið næsta vor.
Búin i Skagafirðinum eru, annað á Páfastöðum, eu hitt
í Hegranesi; bæði eru þau lítil, en vonandi að þau stældci.
I rjómabúinu í Hegranesinu gætu liæglega verið einir 10
búendur, en þá ætti það að vera á Rip eða þar nálægt. —
Rjómabú gætu víða verið í Húnavatns- og Skagafjarðar-
sýslum, jafnvel í flestum sveitum þeirra. Sama er að segja
um Eyjafjarðarsýslu og Suður-JÞiugeyjarsýslu. — En þess
skyldi jafuan gætt, þegar rjómabú eru stofnuð, að hafa þau
svo stór sem unt er og ástæður leyfa.
Næsta ferð míu var austur í Árnes- og Rangárvalla-
sýslur, til þess meðal aunars að taka út skurði, cr heitið
liafði verið styi'lr til af Búnaðarfélaginu. Stóð ferðin yfir
14,—28. sept. Fór eg fyrst um Sandvíkurhrepp og tók þar
út skurði, er búuaðarfélag þess hrepps hafði látið gera, og
voru þeir samtals 8000 faðmar á lengd (477,000 teningsfet),
eða réttar 2 mílur. Til dagsvorlca eru þessir skurðir metnir
til samaus 1230 dagsverk. — Á Skeiðunum tólc eg út slcurð,
er Ágúst bóndi Helgason í Birtiugaholti haíði veitt for-
stöðu. Hann er 3075 faðmar á lengd, 6—9 fet á breidd
og 2 fet á dýpt (245,700 teningsfet). Skurðurinn gerir gagn
8—10 búendum í sveitinni. Hann er metinn 625 dagsverk.
— t Raugárvallasýslu tólc eg lit svonefndau „Krossskurð11
í Austur-Landeyjum. Hauu er allur 2650 faðmar á lengd,
4—10 fet á breidd að ofau og 2 fet á dýpt (190,000 ten-
ingsfet). Skurðuriuu gerir stórmilcið gagu og Jceinur mörg-