Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 297
293
Loftliolið gerir þá ekki vegginu hlýjan, þegar vindaugun
eru opin, því loftið i því verður alt af hér um bil jafnkalt
og loftið úti, svo upp á liitaleiðslu að gera er eins og
veggurinn allur væri ekki þykkri en innri partur veggsins
einn eða lítið meir.
Só ekki hætt við vatni að utan, er sjálfsagt að nota
loftholið til hlýinda og loka þvi sem bezt. I Dantnörku
og víðar er algengt að hlaða tigulsteinsveggi hola til hlý-
inda, og er ekki stoppað neinu í holið. iPað getur þó verið
umtalsmál, livort ekki megi troða þuru stoppi i holið;
geti það haldist rakalaust, eru mun meiri hlýindi að því
eu loftinu einu, því þegar tómt lofthol er upp í gegnuru
allan vegginn, geta komið straumar í það, sem bera hitann
frá heitari stöðum til kaldari; stoppið heldur loftinu betur
bundnu og er að því leyti til bóta. En komist raki að
holinu, raá ekki vera stopp, því það heldur þá í sór vatn-
inu, loftið verður saggafult og gróðrarstía fyrir gerla.
Reyuslan verður að skera úr hvort betra er.
Sumstaðar er siður að fá hreint loft iun í herbergiu —
eða réttara sagt óhreina loftið út úr þeim — með því að
setja loftholið að ofanverðu í samband við skorsteininn, en
að neðanverðu í samband við herbergið. Skorsteinninn
sýgur þá loftið út úr herbergjunum gegnum opin að neðan,
en loft kemur aftur inn gegnum sérstök viudaugu eða um
rifurnar kringum glugga og hurðir. Þetta _ er þó varla gott
upp á hlýindin að gera og hætt við súg í herberginu og
sagga innan á ytri vegguum, þar sem hann er miklu kald-
ari en loftið, sem um hann leikur, og er tekið beint frá
herbergiuu. Séu kyntir ofnar í húsinu og ekki sérstaklega
ástæða til að spara eldsneytið, má þó vel brúka þessa að-
ferð til þess að halda loftinu í húsinu hreinu.
Enn þá betra, en líka dýrara, er að liafa vegginn þre-
faldan og tvö lofthol i honum; þá má nota ytra loftholið
til að verjast raka að utan, en hið innra til hlýinda og
annaðhvort fylla það með stoppi eða leiða loftið úr her-
bergiuu um það út gegnum skorsteininn, eius og getið var um.
20
L