Búnaðarrit - 01.01.1903, Blaðsíða 318
314
við. Sjóður þess er um 3000 kr. Búnaðarfélag Vindhælis-
hrepps, sem var stofnað 1886, á eignir er nema um 2,500
kr. Búnaðarfélag Grimsnesshrepps og jarðræktarfélag Reykja-
víkur eiga hvort i sjóði yfir 1000 kr. Búnaðarfélög Mosfellinga
og Kjalnesinga, og Kjósarhrepps eiga um 1000 kr. hvort, o. s.
frv. Mörg félög eiga í sjóði og verkfærum 500—800 kr.
Sjóðir félaganna eru tíðast ávaxtaðir í einhverjum opinber-
um sjóði. Eigi allfá húnaðarfélög hafa þannig komið fé
sínu á vöxtu í Söfnunarsjóðinn, enda er hann fremur öðrum
opinherum sjóðum vel til þess fallinn að geyma fé, sem á
að varðveitast og ávaxtast um lengri tíma.
Eigi verður nákvæmlega sagt um það, hvað eignir hún-
aðarfélaganna hafa numið við árslok 1901. Sumir reikning-
ar félaganna nefna eigi hvað þau eiga í sjóði, og svo veit
eg um ýms félög, er eiga rneira og minna af verkfærum, en
sem ekki er minnst á í reikningunum. — Eftir því, sem
bezt verður séð af reikningunum, þá hafa húnaðarfélögin, er
nutu styrks síðast liðið ár, átt eignir, er numu við árslok
1901, um 30,000 kr., En sennilegt þykir mér, að eignir
félaganua séu að mun meiri, ef öll kurl kæmu til grafar.
Sum félög veita af sjóðum sínum lán til jarða-
bóta. Meðal þeirra er búnaðarfélag Reykdæla í Þiug-
eyjarsýslu. Sjóður þess er um 500 kr. og veitir það fé-
Jagsmönnum lán til 6 ára. Það afborgast á 5 árum, en á
fyrsta ári eftir að Jánið er tekið slral Jántakandi hafa Jokið
þeirri jarðabót, er lánað var til, ella fellur það i gjalddaga.
Jarðabótafélag Húsavilcurlirepps á sérstaka sjóðsfúlgu
er nefnist „Útlána sjóður“. Af þessum sjóði er félagsmönn-
um lánað til jarðabóta. Mest lán er veitt 36 lcr. og minnst
12 kr. Vextir eru 3°/0, og endurborgast lánið á 3 áruin.
Hvað snertir framJcvæmdir búnaðarfélaganna, þá hefir
þeirra verið getið að nokkru leyti í sambandi við lög þeirra.
Aðal framkvæmdir félaganna lúta að jarðyrJcju og garðrækt.
Einstalca félag Jiefir, tram að siðustu árum, látið íramlcvæma
fénaðarskoðanir að vetrinum og heyásetning, en uú mun því