Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 7
BÚNAÐAERIT
3
skriðum og slétt.að 6x/2 dagsl. og tvöfaldað töðufallið,
ræktað og girt nýja matjurtagarða, gert engjabætur o. fl.
Hann hefir reist íbúðarhús úr timbri, alt járnvarið,
vandað að efni og smíði, 3 járnvarðar hlöður. sem taka
samtals 1000 hesta. Peningshús, yfir 300 fjár, 16 hross
og 8 nautgripi, eru ný og í ágætu st.andi að viðum og
veggjum. Þrátt fyrir allan þennan tilkostnað og mikla
fjölskyldu hefir hagur hans blómgast og hann keypt
jörðina Dragháls, eftir að hann fluttist þangað.
Þetta árið voru 12 umsóknir: 1 úr Borgarfjarðarsýslu, 1 úr
Strandasýslu, 1 úr Húnavatnssýslu, 2 úr Rangárvallasýslu, 4 úr
Árnessýslu og 3 úr Kjósar- og Grullbringusýslu.
A.r'iö 1902.
55. Halldór Benediktsson, óðalsbóndi á Skriðu-
klaustri í Pljótsdal, Norður-Múlasýslu. Hann byrjaði þar
búskap 1880 við litil efni á hálflendunni, vorið 1884
fékk hann alla jörðina og keypti hana af Jandssjóði 1895.
Töðufall hefir hann á 18 árum aukið úr 150 hestum í
300, og þakkar það auknum og betur hirtum áburði,
auk þess sem túnið er stækkað um 8 dagsl. Túngarður
hlaðinn um 600 faðma, helmingur hans tvíhlaðinn gi jót-
garður, auk þess miklir vörzluskurðir og varnargarðar
um engjar. Heimreiðartraðir svo breiðar að þær jafn-
framt eru notaðar fyrir hestarétt og fjárrétt til stórmik-
illa áburðardrýginda. Ennfremur hefir hann komið upp
3 nátthögum, sem samtaJs eru tæpar 11 dagsl., garður
um þá 350 faðmar úr streng og snyddu. Endurbætur
á flóðgörðum og skurðum á engjunum, sem mestallar
eru flæðiengjar og gefa af sér fulla 600 hesta. Hann
hefir gert 2 sáðreiti, 400 □ faðma að stærð, og fengið
úr þeim um 20 tn. af kartöflum og 10 tn. af rófum.
Af utanbæjarhúsum hefir hann bygt 9 fjárhús, er rúma
um 550 fjár við garða, 10 heyhlöður sem taka um 600
hesta, 4 hesthús yfir 18 hesta og 13 gripa fjós og áburðar-
hús 22 álna langt. í stað viðartróðs er lögð hella utan