Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 10
6
BÚNAÐARRIT
skemdum af sjávargangi og sandfoki, og í skjóli garðsins
er mjög mikil matjurtarækt. Af öðrum jarðahótum eru
helztar túnauki 12 dagsl., matjurtareitir 62/s dagsl.,
girðingar um tún og sáðreiti yfir 1600 faðmar, 280 faðma
engjabrú, miklir varnar- og vatnsveitu-skurðir og flóð-
garðar, og fást þar ný 4—500 hestar sem áður var ó-
ræktaður forarflói, sem aldrei var sleginn. Heyhlöðu
hefir hann reist er tekur 1000 hesta, og bygt hesthús
er getur rúmað 60 hross, með safngryfju undir, er tekur
á móti áburði úr fjósi og hesthúsi. Milli fióss og hest-
húss er steinlímd safnþró fyrir vatn, sem veitt er inn í
fjós og hesthús. Hann hefir mjög mikið st.utt að um-
bótum sjávarútvegsins á Eyrarbakka frá því er hann
byrjaði þar formensku 1874, og framfarir þar í þeirri
grein taldar mest og bezt að þakka framtakssemi og
dugnaði hans. Hann hefir og verið aðalhvatamaður
þess að stofnaðir voru ábyrgðarsjóður opinna róðrarskipa
í Árnessýslu árið 1885, og sjómannasjóður sýslunnar og
sparisjóður, sem báðir voru stofnaðir 1888.
60. Kristján Tómasson, óðalsbóndi á Þorbergsstöð-
um í Dalasýslu. Sléttur hans nema fast að 26 dagsi.
Er hann byrjaði þar búskap (fyrir rúmutn 30 árum)
fékk hann af túninu 30 hesta, en fær nú 400. Grjót-
garður og vörzluskurður um túnið yfir 700 faðmar.
Aðrar girðingar mjög miklar um fjárbæli og um t.ún
eyðijarðarinnar Rútsstaða, sem hann hefir slétcað og
ræktað, og um stóra matjurtagarða. Auk þess byrjað á
plæging grasmóa til sáningar. Ennfremur miklar byggitigar,
íbúðarhús úr timbri, mörg vönduð peningshús og hlöður.
Þett.a ár voru 10 umsóknir: 1 úr Dalas., 1 úr Barðastr.s.,
1 úr V.-ísafj.s., 1 úr Strandas., 1 úr Skagafj.s., 1 úr S.-Þingeyjar-
s„ 1 úr V.-Skaftaf.s., 2 úr Árness. og 1 úr Kjósar- og Gullbr.s.
Ariö 1905.
61. Helgi Laxdal, bóndi í Tungu á Svalbarðsströnd
í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann hefir búið þar sem leigu-