Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 11
BÚNAÐARRIT
7
liði frá 1885, en jarðabætur hans jafnframt gerðar á
aðliggjandi jörð, Meðalheimi, sem hann á sjálfur. Hann
hefir sléttað 11 dagsl., mikið af því túnauki, plægt úr
holti 1 dagsl. og sáð í byggi og höfrum, algirt 16 dagsl.
með varnarskurðum og gaddavírsgirðingum. Töðufall
tvöfaldast. Hann hefir komið sér upp dálitlum trjáreit
við bæinn. Kynbætur sauðfjár hefir hann stundað og
nú byrjað á svínarækt. Hann hefir reist vandað timbur-
hús, og bygt upp öll bæjarhús og útihús á ábúðarjörð
sinni. Hann hefir verið á undan sveitungum sínum í
að taka upp ýms ný áhöld, sem síðar hafa náð útbreiðslu
og orðið til framfara, unnið að vöruvöndun og yfir höfuð
veiið forgöngumaður að hvers konar gagnlegum félags-
skap í sveit sinni.
62. Jón Sveinbjörnsson, óðalsbóndi á Bíldsfelli í
Árnessýslu. Ilann kom að jörðinni 1893 og var hún
þá í niðurníðslu. Fyrir nokkrum árum keypti hann og
lagði undir ábýli sitt jörðina Tungu, sem er næsta jörð
við Bildsfell, og bygðist ekki; hefir hann þar og unnið
að jarðabótum. Túnasléttur hans eru tæpar 5 dagsl.
Girðingar um tún og matjurtagarða fullir 600 faðmar.
Miklir vatnsveitingaskurðir, sem stórum hafa bætt engi,
svo og stíflugarðar og flóðgarðar. Hann hefir mjög
stundað að drýgja og bæta áburðinn, notar alla skánina
á túnið. Fyrirmyndar meðferð á skepnum og kynbætur.
Húsabyggingar hans eru mjög svo miklar, bæði til íbúðar
og fyrir búpening, þar á meðal 5 hlöður, allar járnvarðar,
tekur ein 1000 hesta og önnur 500. Áður en hann flutti
sig búferlum að Bíldsfelli bjó hann á Litlu-Háeyri í sömu
sýslu um 8 ár, reisti þar íbúðarhús og fleiri hús og vann
þar og nokkuð að jarðabótum.
Þetta árið voru 12 umsóknir: 1 úr Borgarfj.s., 2 úr Mýras.,
-4 úr Barðastr.8., 1 úr Skagafj.s., 1 úr S.-Þingeyjars., 1 úr V.-
Skaftaf.s. og 2 úr Árness.
Útdráttur þessi er gerður á sama hátt og úr eldri