Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 14
10
BÚNAÐARRIT
veitt Búnaðarfélaginu til meðferðar á fjárhagstímabilinu,
sem í hönd fór. Sá fundartími, að alþingi loknu, var í
fyrstu talinn heppilegri einmitt vegna þess, en meira
inælir þó með hinu, að búnaðarþingið komi saman á und-
an alþingi, og geri sina áætlun eftir þörfum sínum, og
sæki síðan í hendur alþingi fjárveitinguna. Alþingi sér
þá til hvers á að verja fénu eftir sundurliðaðri áæt.lun.
Þegar búnaðarþingið er haldið skömmu fyrir aiþingi,
er því kunnugt um, hve mikla fjárveiting landstjórnin
hefir ætlað því í fjárhagsfrumvarpi sinu, en landsstjórnin
hefir áður fengið t.iilögur Búnaðarfélags-stjórnannnar um
það. Búnaðarþingið ætti því jafnan að geta treyst því,
að alþingi veiti félaginu ekki minna fé, en landsstjórnin
hefir farið fram á, og við þá fjárveiting miðaði stjórn-
arnefndin áætlunina. sem hún lagði fyrir búnaðarþingið
siðasta. Hækkunin var því og gerð með þeim fyrir-
vara, að fengist hún ekki, þá stæði áætlun stjórnarnefnd-
ar óbreytt. Að þessu sinni féll það alt í ljúfa löð, því
að þingið veitti hinn umbeðna viðauka.
Stærsta málið sem upp kom og leitt var til lykta
á búnaðarþinginu, var húsbygging fyrir félagið. Leigu-
húsnæði þess var orðið með öllu ónógt og fyrirsjáanlegt,
að félagið þurfti að fá sér annan mikið stærri bústað,
og stórum dýrari en nú. Stjórn félagsins hafði ekki treyst
sér að bera fram þá tillögu. að reisa hús fyrir félagið,
en málið komst inn á dagskrá búnaðarþingsins við um-
ræðurnar um sölu hússtjórnarskóla-lóðarinuar til Iðnað-
mannafélngsins, eins og fundargerðirnar bera með sér í
3. hefti Búnaðarritsins f. á. Rétt eftir búnaðarþingið var
það svo afráðið, með vitund og samþykki allra fulltrú-
anna, sem náð varð til, að selja Iðnaðarmannafélaginu
norðurhluta Jóðarinnar, fullan helming hennar, fyrir 3000
kr., og reisir það félag á þeim hluta skóla sinn, en Bún-
aðarfélagið byggir áfast við hús sitt, 19X16 álnir að
stærð, með eldvarnarbrík i milli. Yerður það hvort-
tveggja sem eitt hús mjög ásjálegt. Þetta verður Bún-