Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 36
32
BÚNAÐARRIT
ábnrð. En þau liggja flest einkar vel, og hafa skilyrði
til umbóta. Engjar era þar litlar og rýrar, nema á
Kálfafelli og Kálfafellsstað. íbúðarhús úr timbri hafa þeir
bygt, séra Pétur Jónsson og Eyjólfur hreppstjóri Runólfs-
son á Reynivöllum.
Búnaðarfélög eru hvorki á Mýrum eða í Suðursveit,
og áhugi á jarðabótum engmn. Þegar eg var þar á ferð-
inni siðastliðið sumar, boðaði eg til fundar að Kálfafells-
stað, og ætiaði að stofna, búnaðarfélag í Borgarhafnar-
hreppi; en það komu að eins 2 bændur á funJinn. Því
til afsökunar, að fundurinn ekki var sóttur, má geta. þess,
að hann var boðaður á rúmhelgum degi. — í ferðinni
hélt eg fund að Bjarnarnesi í Nesjum, á sunnudegi, og
var hann mjög vel sóttur.
Hirðing áburðarins er mjög ábótavant í þessum
sveitum. Á flestum bæjum eru fjósin „undir palli“, það
er undir haðstofunni; en að sumrinu eru kýrnar látnar
liggja úti. því sumaifjós eru eigi til nema að eins á
stöku bæ. — Til þess þó að nota sumarmykjuna að ein-
hverju leyti, hafa sumir það til siðs að tjóðra kýrnar á
túninu á nóttunni. En eigi getur það heitið góður siður,
og not ábuiðarins, er þannig fæst, naumast meiri en hálf
í samanbuiði við það, að láta kýrnar liggja inni á nótt-
unni, og bera hæfilega mikið af mold eða öðiu sem
þurkar upp, saman við mykjuna. — Viða er meira og
minna af kúamykjunni þurkað og brent sem eldivið,
enda er litið um mó á Mýrum og í Suðursveit. Þar
sem fjós eru undir palli, ætti að eins að nota þau að
vetrinum, en hýsa svo kýrnar að sumrinu í þar til gerðu
sumaifjósi eða þá að útbúa til þess rúmgóð hesthús, ef
þau eru til. Einnig þyrfti í þessum sveitum að vera
haughús á hverju heimili, enda eru þau sjálfsögð og
bráðnauðsynleg hvar sem er.
Örœfin eru vestasti hreppurinn í Austur-Skaftafells-
sýslu. Þau liggja framan undir Öræfajökli, milli Breiða-
merkursands að austan og Skeiðarársands að vestan.