Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 38
34
BÚNAÐARRIT
hve byggingar eru þar alment góðar. Litið um viðar-
flutninga þangað úr kaupstað, enda væri sá flutningur
erfiður og mundi kosta afarmikið. — Bjargfugl er þar
nokkur í Ingólfshöfða, sem er framundan Fagurhólsmýri.
— Einstöku sinnum vilja þar og til stórhöpp, svo sem
hvalrekar og skipsrekar eða skipströnd, en eigi er það
með jaínaði. — En þó þessir séu kostir sveitarinnar og
þeir góðir, þá eru á hinn bóginn erflðleikarnir og ókosti-
irnir svo margir, að }>eir vega upp á móti kostunum.
Og ef eigi væru þessi hlunnindi vió öræfin, þá væri al-
gerlega ólifandi þar.
Öræflngar eru nægjusamir og sparsamir. Kaffibrúkun
er þar að vísu nokkur, tóbaksbrúkun lítil, og vínnautn
sama sem engin. Öræflrgar eru og afbragðsduglegir
menn, og það er sparneytni þeirra og dugnaði að þakka
hve vel þeir yfirleitt komast af. — Einstaka maður er
þar dável efnum búinn; flestir bjargálnamenn. — Þröng-
býlin og sundurpörtun jaiðanna stendur mjög í vegi fyrir
að menn geti haft þar stórbú. Hæfilegt mundi, að þar
væri einbýli sem nú er tví- og þribýli, og þar tvíbýli,
sem nú búa 4—7 bændur.
Þess var getið fyrir skömmu, að engjar væru sum-
staðar góðar í Öræfum, og er það að vísu svo, sem áður
er sýnt, en þessar góðu engjar geta farið af þegar minst
varir í einhverju Skeiðarárhlaupi. Skeiðarársandi hallar
öllum suður og austur, og því er Öræfunum jafnan
hætta búin frá þeirri hlið. Auk þess hafa áður komið
stór hlaup úr Öræfajökli, er gert hafa stórtjón, t. d. um
miðja 14. öld eða 1362. Eyddist þá algerlega Litlahérað
og tók af 40 bæi á einum morgni. Annað hlaup kom
og 1727, og gerði það mikinn skaða.
Eg sagði við Öræflng í sumar, bæði i spaugi og
alvöru, að þeir ættu allir að flytja sig þaðan, austur í
Nes, út í Flóa og vestur á Snæfellsnes. En þeir taka
dauft í það. Það sem heldur þeini föstum í Öræfunum
er meðal annars það, að þeir eiga flestir jarðarpartana