Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 43
BÚNAÐARRIT 39
félag er þar í sveitinni, og vann það árið 1904, 225
■dagsverk.
Meðallandið eða Leiðvallahreppur liggur suð-vestur
af Landbrotinu. Það er fátæk sveit og undirorpin eyði-
leggingu af sandágangi. BUendur eru þar nálægt 30;
en alls eru í sveitinni 116 rnanns. Allar jarðir hrepps-
ins eru landssjóðseign. Búskapur er þar mjög á lágu
stigi, og fénaður fár. í hreppnum eru nálægt 50 kýr
alls. Bændur eiga 1 og 2 kýr hver ogumlOOfjár; sumir
iitið þar yflr. Sveitarþyngsii eru þar tilflnnanleg, en
mest þó fyrir það, hve fáir eru aflögufærir. Þar er ekk-
ert búnaðarfélag og engar jarðabætur.
Síðastliðin ár hefir verið mikið um það rætt að
reyna að ná vatni til áveitu á Meðallandið til varnar
sandeyðileggingunni. — Sveinbjörn búfr. Óiafsson mældi
fyrir aðfærsluskurðinum sumarið 1903, og gerði áætlun
um, að hann mundi kosta 8828 kr. — Það er ætlast
til að vatnið sé tekið úr Eldvatninu og ieitt austur á
sandinn. Sandarnir suðaustur af Meðaliandinu eru orðnir
afar víðáttumiklir og breiðast út og eyðileggja svo
að segja árlega. Þessi sandágangur og sandblástur stefnir
allur út á við, og lítur helzt út fyrir, að hann smátt og
smátt eyði öllu Meðailandinu neðanverðu, þar á meðal
Sandaseli, Rofabæ, Strönd, Koteyjarhverfinu, Efri-Ey,
Bakkakoti, Langholti, Lyngum o. s. frv.
Síðan 1875 hafa algjörlega farið af 8 jarðir í Meðal-
Zandinu, og þeir sem þar eru kunnugastir fullyrða, að
eftir 50 ár, verði flestar eða allar þær jarðir eyddar, er
áður voru taldar. Það er því sem von er megn óhugur
þar í mönnum, og margir eru þeir, sem vilja komast
þaðan í burtu sem fyrst. — Siðastliðin 5—6 ár hafa
flutt þaðan í burtu 10 bændur með alt sitt skyidulið,
nálægt 50 manns. Sumir þeirra hafa farið til Ameríku,
en nokkrir hafa fluzt út í Árnessýslu og til Reykjavíkur.
Árið 1903, veitir alþingi til áveitunnar í Leiðvalla-
lireppi 4500 kr. Siðastliðið sumar var þessi fjárveiting