Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 75
BÚNAÐARRIT
71
Árið 1882 hefst nýtt tímabil í sögu verzlunarfélags-
skaparins hér. Þá er „Kaupfélag Þingeyinga" stofnað,
i raun réttri hið fyrsta regluiega pöntunarfélag á þessu
landi. Félag þetta flutti inn vörur að meðaltali á ári,
15 árin fyrstu, 1882—1906 fyrir nálægt 80 þús. kr., og
í peningum 19 þús. kr. Árið 1890 stofnaði félagið sölu-
deild og var umsetning hennar fyrstu árin 15—19 þús.
kr. á ári.—Hús og aðrar eignir féiagsins taldar að vera
15,000 kr. virði.
„Yerzlunarfélag Dalamanna* er stofnað 1886, annað
pöntunarfélagið sem stofnað var hér. Fyrstu ár félags-
ins 10, frá 1886—1895 flutti það inn vörur er námu
að moðaltali á ári 47,600 kr., og auk þess 16 þús kr. í
peningum ár hvert. Árið 1903 flutti það inn vörur fyrir
19,800 kr. Öll árin, frá 1886—1903, heíir félagið flutt
inn vörur fyrir 816,300 kr., og auk þess 177,000 kr. í
peningum. Yaran er talin hér og annarsstaðar með
félagsverði. Varasjóður og kaupfélagssjóður taiinn 1903,
nálægt 14,000 kr.
Árið 1886 er „Pöntunarfélag Eyfirðinga" stofnað.
Það hefir nú á þessu ári breytt nafni og lögum sínum,
og sniðið þau eftir dönskum kaupfélagslögum, og nafn
þess er nú: Kaupfélag Eyfirðinga. — Árið 1903 flutti það
inn vörur fyrir 31,318 kr. Eignir þess það ár voru
rúm 3000 kr.
Árið 1889 er stofnað „Kaupfélag Svalbarðseyrar".
Það var áður, eða nokkur hluti þess sameinaður „Kaup-
félagi Þingeyinga". Árin 1903 námu aðfluttar vörur
þess 52 þús. kr.; en síðan það var stofnað og til 1903
hefir það flutt inn vörur fyrir 606,988 kr. Og eftir
sennilegri ágizkun fyrv. kaupfélagsstjóra þess, Friðbjörns
Bjarnarsonar, í bréfl. til mín, dags. 4. marz 1904, þá
nam verzlunarupphæð féiagsins eigi minna en —x/6 af
allri verzlun er átti sér stað þau ái'in á því svæði er
það náði yflr.