Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 86
82
BÚNAÐARRIT
lagsmanna í hlutfalli við það, hve mikið þeir haf»
keypt eða verzlað í fólaginu.
7. Félagsmenn kjósa stjórn féiagsins, og endurskoðun-
menn til eftirlits.
Þegar ný kaupfélög hafa verið og eru stofnuð í
Danmörku, njóta þau Jiðsinnis eldri félaga, og síðan
Sambandsfélagið varð til, leiðbeinir það við stofnun
nýrra féiaga. Ekki þykir þó ráðlegt að stofna félagið
nema almenn ósk um það sé komin fram áður, bygð á
sannfæringu manna um gagn og nytsemi slíks féJags-
skapar. En þegar svo málið er komið í gott horf, og
almennur vilji er fyrir framkvæmdum þess, er félagið
stofnað, lög samþykt og kosin stjórn. Stjórn félaganna
-er oftast skipuð 3—5 mönnum, formanni og meðstjórn-
endum. Stjórnin hefir svo á hendi allar framkvæmdir
félagsins, ræður starfsmenn þess, reikningshaldara og af-
hendingarmann, útvegar lán til vörukaupa, o. s. frv,
■Stundum er formaður sjálfur reikningshaldari. Laun
reikningshaldara og formanns eru oftast J/2 °/0 af allri
verzluninni, og ef það er sami maðurinn, sem annasfc
hvorutveggja hefir hann 1 °/0 i laun, og geta það orðið
100—1000 kr. eftir stærð félaganna. Afhendingarmaður
heflr að launum 4—6 °/0 af verzlunarupphæðinni, en af
þessum lauiium verður hann oft að greiða smávegis
vinnulaun eða aðstoð við starfið, Ijós og eldivið, umbúða-
pappír o. fl. Auk þess verðui- hann að hafa ábyrgð á
-öllu, og standa skil á því, er hann kann að lána út„
Þeim er einnig bannað að reka verzlun fyrir sig, meðan
þeir eru afhendingarmenn félagsins.
FóJögin taka árlega lán til vörukaupa, að svo miklu
leyti sem tillög félagsmanna eða stofnsóður ekki hrekkur
til. Lán þessi nema oftast 25—50 kr. á hvern fólags-
mann; þó heflr stjórnin sjaldan heimild til að taka meira
að Jáni on sem nemur 25 kr. á hvern félaga, nema með-
leyfi aðalfundar. Lánin eru oft sjálfskularábyrgðarlán, þar
sem einn ábyrgist fyrir alla og allir fyrir einn. Stund-