Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 91
BÚNAÐARRIT
87
Þegar ura kaupfélag er að tæða hór á landi. þá
blýtur aðalkrafan að vera sú, að félögin kaupi inn vör-
urnar gegn peningum út í hönd, eða þá að lánsfrestur-
sé sem allra styztur t. d. einn mánuð, sem er nokkurn
vegin það sama í framkvæmdinni.. En t.il þess að því geti
•orðið framgengt þutfa fólögin að vera sér úti um peninga-
lán að svo miklu leyti, sem borgun fyrir hinar pöntuðu
vörur er ekki heimt.uð fyrirfram af hluteigendum. Rétt-
ast væri ef til vill, að gera félagsmönnum að skyldu að
greiða einhvern hluta af pöntuninni um leið og hún er
afgreidd; en að þeim væru svo goldnar vextir af þessum
puningum t. d. 4—5 °/0 fram að þeim tíma, sem hin
pantaða vara er horguð út. Að öðru leyti þurfa félöuin
að vera sér út urn lán til þess að kaupa vörurnar fyiir.
Lán þessi yrðu félötrin að taka í bönkunum eða í titi-
búnm þeirra, gegn sjálfskuldarábyigð fólagsmanna, aun*
aðhvort, stjórnarnefndar og nokkrum möunum öðrum
með henni eða allra þeirra sem eru í fólögunmn. Þetta
siðarn' fnda gæti samt stundum, eins og hagar til hór
á landi, valdið eríiðleikum, og er þá að grípa til þess,
sem einnig er töluvert almennt i Danmörku, að stjórn-
arnefnd félagsins, ásamt fleirum eða færri af félagsmönu-
um. ahyrgist lánið; en á bak við standa allir fólagsmenn
í samabyrgð. — Sumstaðar gætu sparisjóðirnir ef til vill
lánað félögunum fé til vörukaupa. einkum ef þeirtækju
upp þa reglu, að fá fó að láni til bráðabyrgða í bönk-
unum, armaðhvort gegn persónulegri ábyrgð héraðsmanna
þar setn sjóðurinn er, eða þa gegn ábyrgð sýslunefndar
í viðkomandi sýslu. Sem rlæmi í þá átt skal eg get.a
þess, að árið 1904 ábyrgðist sýslunefnd Árnessýslu 50
þúsund kr. lántöku fyrir sparisjóðinn á Eyrarbakka. —
Þessi bankalán sparisjóðanna get,a verið reikningslán. —
Kaupfélagsskapuiinn getur því að eins þrifist, að það só
greiður aðgangur, fyrir kaupfélögin, og einstaklingana,
sem i þeim eru, að lánum með góðum kjörurn og hent-
ugum skilmálum. Þetta hefir nú mjög breyzt til batn-