Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 132
128
BÚNAÐAKRIT
ertsson, bóndi í Kollsvík. Sigurður Stefánsson, prestur
í Vigur. Guðmundur Gr. Bárðarson, bóndi í Bæ. Árni
Árnason, umboðsm. á Höfðahólum. Jósef ,T. Björnsson,
kennari á Ilólum. Jónmundur J. Halldórsson, prestur á
Barði. Jónas Jónasson, prófastur, á Hrafnagili. Sigurður
P. Sivertsen, prestur á Hofl. Björn Þorláksson, prestur
á Dvergasteini. Ari Brynjólfsson, bóndi á Þverhamri.
Þorleifur Jónsson, hreppstjóri í Hólum. Magnús Bjarnar-
son, prestur á Prestsbakka. Guðmundur Þorbjarnarson,
bóndi á Hvoli. Eyjólfur Guðmúndsson, bóndi í Iivammi
og Þorsteinn Jónsson, læknir í Vestmannaeyjum.
Tíöarfar og heyföng.
V e t u r f r á n ý j á r i góður, frostvægur og snjólítill
hór sunnanlands. í uppsveitum Borgarfjárðar var óstöð-
ugt og hagskarpt í janúar og febrúar, betra í marz, þá
norðankælur, hreinviðri og væg frost. Á fjallajörðum
var fé' gefið í minsta lagi. Á Snæfellsnesi snjóasamt en
frostlítið Jengstum. Góð fjörubeit. í Dalasýslu mjög
góður vetur. Á Vestfjörðum í harðara lagi; snjóþungt
fyrstu tvo mánuði ársins. Á Ströndum óstilt, en frost
heldur lítil. í miðjum febrúar gerði þýður með ákafri
rigningu, tók þá mestan snjó upp í bygð og eftir það
gerði aldrei mikinn snjó. Á Norðu.rlandi jarðir nægar,
hret skömm og væg. Gekk mestur hluti hrossa í Skaga-
firði af allan veturinn, án þess að koma á gjöf og voru
í góðu standi um vorið. í norðurhéruðum Eyjafjarðar-
sýslu og í Fljótum byrjaði veturinn með afarmikilli ótíð.
Ofsastormur með geysi fannkomu aðfaranótt 8. janúar,
urðu þá skemdir á bátum og húsum. Þá og daginn
eftir gekk þetta sama veður yfir alt Austurland, er þess
getið úr Vopnafirði og Breiðdal að nærri hafi iegið skemdum.
Á Austfjörðum var veturinn umhleypingasamur þangað
til í marz. Þegar kom fram í apríl versnaði tíðin aftur
og hélst það fram um þann 20. Þar fyrir sunnan var
ágæt vetrartíð eftir að komið var fram um miðjan jan-