Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 248
242
BÚNAÐARRIT.
væri að öllum líkindum bezt að þurka eins og sölin,
Allar þessar tegundir: sölin, fjörugrösin ogporphijra væri
bezt að taka að vorinu, reyndar er hin siðastnefnda og
fjörugrösin venjulegast allhrein, en á sölvablöðum „keunir
oft margra grasa“ þegar þau fara að eldast, því er bezt
að taka þau áður. Meginhluti fjörugróðursins er samsett-
ur af þangtegundum (Fucus), eru þrjár þeirra mjög al-
gengar alstaðar kring um landið (bólu-þang, skúfa-þang
og kló-þang), ein (sag-þangið) er að eins fundin í Hafn-
arfirði og Yestmannaeyjum, en þá eru eftir tvær tegundir
er fremur lítið vex af, Pelvetia canaliculata að eins við
suð-vesturhluta landsins og Fucus spiralis í öllum hlut-
um landsins. Hinar tvær síðast nefndu tegundir, vaxa
í og ofan við flæðarmálið, Að því er þangtegundirnar
snertir, ber allflestum saman um að telja þær iélegar
fóðurjurtir, og hér á landi munu þær ekki hafa verið
notaðar til fóðurs nema í harðindum, þegar ekki heflr
náðst í annað betra. En með því að svo mikið er af
tegundum þessum alstaðar við strendurnar og svo auð-
velt að ná þeim, væri vert að komast að raun um, hvert
fóðurgildi þær hafa.
Nauðsynlegt er að hreinsa sem allra bezt alla þá
þörunga, sem menn taka til fóðrunar t. a. m. með því
að þvo þá í vatni, eða láta þá rigna, ef þess er kostur.
Eg set hér nokkrar leiðbeiningar til að þekkja þör-
ungategundir þær, sem getið hefir verið um hér á und-
an, þó er það erfltt viðfangs, því allflestar þörungateg-
undir þekkjast bezt á ýmsum einkennum, sem ekki má
greina nema í sjónauka.
Þörungarnir deilast eftir lit í ýmsa flokka allstói-a,
t. a. m. í blágræna, græna, brúna og rauða þörunga.
Allar þær tegundir, er nefndar eru hér að framan telj-
ast annaðhvort til hinna brúnu eða rauðu þörunga. Um
liti þessa þarf ekki að fjölyrða, þangið og þarinn t. a.
m. er með brúnum lit, en sölin og fjörugrösin eru rauð-