Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 271
BÚNAÐARRITIÐ
265
ur, brjóst og lend ágæt, hryggur sterkur en nokk-
uð söðulbakaður. Fætur vel settir og sterklegir,
góðir hófar. Brokkar vel og reglulega.
Önnur verðlaun 30 krónur.
4. Hreggur*, eigandi Gunnar Guðmundsson Arnkötlu-
stöðum, af jörpu kyni í báðar ættir, vökru. Dökk-
jarpur, 5 vetra, 51 þuml., aliur nokkuð þunnvaxinn.
Höfuð og háls góður, hryggur beinn en of vöðva-
litill að aftan, lendin brött. Fætur grannir og eigi
frí við að vera útskeifur bæði á fram- og aftur-
fótum, góðir hófar. Vakur.
Þriðju verðlaun 20 krónur.
5. Vinur, eigandi Guðmundur ísleifsson Stóru-Háeyri,
ættaður frá Kirkjubæ á Rangárvöllum, undan jarpri
hryssu, faðerni ókunnugt. Ljósjarpur, 5 vetra, 521/.,
þuml., sterklegur vel. Höfuð stórt, hálsinn sver og
lágt settur, hryggur beinn en nokkuð langur, lend-
in brött og sterturinn illa settur. Framfótaleggirn-
ir mjóir, og hófar nokkuð flatir, einkanlega á fram-
fótum. Hreinn gangur, vakur og brokkar vel.
Deyfðarlegur.
Þriðju verðlaun 20 krónur.
6. Hólmur*, eigandi Steinn Eiríksson Oddhól, engar
upplýsingar um ætterni. Sótrauður, 4 vetra, 508/é
þumi., snotur foli en nokkuð lítill. Höfuðið fritt,
hálsinn mjög vei reistur, góður hryggur, lendin bein
og regluleg. Fætur nokkuð grannir með löngum
og bognum kjúkum. Klárgengur.
Þriðju verðlaun 20 krónur.
7. Kári, eigandi Sæmundur Ólafsson Lágafelli, sagður
af reiðhestakyni í móðurætt, faðerni ókunnugt.
Brúnstjörnóttur, 4 vetra, 50 þuml. Samsvarar sér
vel, þéttvaxinn, nokkuð söðulbakaður, vel settir
góðir fætur með góðum hófum. Brokkar vel, gangur
reglulegur.
Þriðju verðlaun 20 krónur.