Búnaðarrit - 01.01.1906, Blaðsíða 278
272
BÚNAÐARRITIÐ
vildi eg að minsta kosti síður verja. Reyndar mun
hafa leikið orð á, einkum meðal sýnenda, að graðfola-
dómnefndin væri helzt til kröfuhörð, sem meðal annars
kom fram í því, að sumir er verðlaun áttu að taka,
vildu eigi þiggja þau. Þetta mun aðallega hafa orsakast
af því, að menn höfðu ekki gert sér nægjanlega ljóst, að
á héraðssýningum verður að gjöra miklu meiri kröfur til
gripanna en á hreppasýningum, og að fyrstu verðlaun á
héraðssýningum veitist eigi nema vel fallegum gripum,
galla- og lýtaiausum, og af góðu kyni í báðar ættir.
Aftur voru verðlaunastígin of fá, þyrftu að vera 5 að
minsta kosti, og þá fyrstu verðlaun 50 kr. En auðvitað
má þá ekki skera verðlaunaféð um of við neglur sér,
því ætti að eins að verðlauna fáeina beztu gripina, yrðu
héraðssýningar illa sóttar, og þar af loiðandi að miklu
minni notum.
Af folum þeim, sem skráðir voru til sýningarinnar
voru: 9 rauðir, 5 brúnir, 5 gráir, 3 jarpir, 3 móálóttir
og 2 bleikir.
Hæð graðfolanna var sem hér segir:
5 vetra folarnir 51—52i/2 þumh, meðalhæð 511/^ þuml.
4 — — 49—52Va — , — 508/4 —
3 _ _ 48-511/2 — , - 49i/g _
Fjögra vetra folarnir eru þannig 15/12 þumi. hærri
að m. t. en 3. vetra folarnir, og 5 vetra folarnir 3/4
þuml. hærri en 4 vetra folarnir.
Um griðungana á sýningunni hefl eg litið að segja,
hafði ekki tíma til að skoða þá nægilega. Mér er þó
óhætt að fullyrða að 4 beztu nautin, þau er fengu 1.
og 2. verðlaun, eru mjög fallegir gripir, sein fuil ástæða
er til að ætla, að reynist vel til undaneldis. Það, sem
einkum mátti finna nautulium til foráttu var, hvað ung
þau voru, meira en helmingurinn aðeins li/2 árs. Auk
þess voru sum þeirra alt of lítil eftir aldri, víst meðfram
af því, að þau höfðu eigi verið fóðruð nægjanlega vel