Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 12
122
BÚNAÐARRIT
til kenslu þar. — Skilyrðin fyrir styrkveitingunni voru
hin sömu og áður, 40 kr. fyrir hvern nemanda, er
stundar námið í 6 vikna tíma, og að þvi loknu álítist
fær um, að fara með plóg og herfi á eigin hönd.
Til gróðurrannsókna á Skeiðum var varið 417 kr.
Dr. Helgi Jónsson var fenginn til að athuga gróðurinn
þar á hinu fyrirhugaða áveitusvæði, til þess að síðar
megi sjá, hverjum breytingum hann tekur við áveituna.
Til gróðrarstöðvarinnar í Reykjavík og sýnisstöðvanna
var varið 4111 kr. 95 a. Sýnisstöðvunum er nú að mest.u
búið að breyta í tún, og hættir því styrkurinn til þeirra
á þessu ári, nema sú yngsta heldur honum lengur. 9
nemendur nutu garðyrkjukenslu við gróðrarstöðina, og
fengu þeir 520 kr. styrk samtals. Forstöðumaður hennar
hefir útvegað mönnum, er þess hafa óskað, fræ og annað
útsæði, tilbúinn áburð og verkfæri, og greitt fyrir í því
efni eftir því sem hægt hefir verið.
TJm leiðbeiningastarfsemi Sigurðar Sigurðssonar bú-
fræðings vísast til ársskýrslu hans, er birtast mun í
Búnaðarritinu, eins og undanfarið.
Sandgrœðsla og hefting sandfoks heyrir að því leyti
undir Búnaðarfjelagið, að það fær tiltekna fjárhæð til
þessa. Einari Helgasyni er falin umsjón sandgræðslu-
málanna. Starfið annast sandgræðsluvörður Gunnlaugur
kennari Kristmundsson. Það hefir verið unnið á sömu
stöðvunum og áður; féð svo lítið, að eigi hefir verið
gerlegt að byrja á nýjum stöðvum, allra helst þar sem
gömlu stöðvarnar þurfa talsverðra aðgerða við enn. Á
þetta fer nú að komast nokkur breyting. Fjárveitingin
hefir verið aukin úr 4000 kr. upp í 6000 kr. Fjárfram-
lags er nú krafist frá landeigendum, og gömlu stöðv-
arnar fara nú að þurfa minna til sín sumar hverjar, og
eru þá tiltök að byrja á nýjum. Vandkvæðin eru nú
helst þau, að girðingaefni er ófáanlegt.