Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 17
BDMASAKKir
Skýrsla
um störf Búnaðarfjelags íslands árið 1918.
Jarðræktariyrirtæki. Styrkur til vatnsveitinga og
varnar viö vatnságangi var veittur, eins og venja er til,
en varð með allra minsta móti. Stafar það af dýrtíðinni,
er dregið hefir úr framkvæmdum bænda. En reynslan
um grassprettuna síðastliðið sumar, er alstaðar brást,
nema á áveitulöndum, hefir vakið mikinn áhuga fyrir vatns-
veitingum, og hafa víða komið að beiðnir um mælingar.
Mælingar og áætlanir um meiri háttar áveitufyrirtæki
annast vegamálastjóri eftir tilmælum Búnaðarfjelagsins.
Hefir hann iofað að láta í sumar mæla fyrir áveitu úr
Hnausakvísl í Þingi í Húnavatnssýslu, og gera uppdrátt
og áætlun næsta vetur. Er þar um stórt fyrirtæki að
ræða. Ennfremur hefir vegamálastjóri lofað, ef ástæður
leyfa, að láta á sama hátt athuga í sumar og næsta
vetur, fyrirhugaða áveitu úr Tungufljóti í Biskupstung-
um á svokallaðan Almenning.
Þá hefir fjelagsstjórnin ennfremur sent vegamálastjóra
lista eftir Sig. Sig. ráðunaut yfir helstu áveitusvæði, er
honum eru kunn, í því skyni, að vegamálastjóri gerði
tillögur um nauðsynlegar fjárveitingar, til þess að mæl-
ingar og athuganir, ásamt kostnaðaráætlunum yfir þessi
áveituverk geti orðið framkvæmdar á næstu árum, og
hefir hann heilið að leggja tillögur sínar í þessu efni
fýrir þingið i sumar.