Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 21
búnaðabbit
Yfirlitsskýrsla
um tekjur og gjöld fjelagsins yfirstandandi
reikningstímabil.
Eins og reikningar fjelagsins bera með sjer, var eigna-
aukinn 1917, kr. 1640,93, og 1918 kr. 3230,60, eða
bæði árin samtals kr. 4871,53. Höfum vjer lagt mestan
hluta þessa eigna-auka við sparisjóðs-innieignina, eins
og hún var í árslok 1916. Á því fjelagið nú í sparisjóðs-
innieign kr. 10919,46. Höfum vjer ekki viljað festa fje
þetta með kaupum á bankavaxtabrjefum, svo að það gæti
verið til taks fyrir búnaðarþingið til ráðstöfunar.
Sakir peningaverðfallsins er enn síður en að undan-
förnu gerandi ráð fyrir tekjuafgangi á yfirstandandi ári,
er ráðstafa megi nú á búnaðarþingi. En hins vegar virð-
ist oss auðsætt, að búnaðarþingskostnaður hljóti að fara
mikið fram úr áætlun, og að ekki verði hjá því komist,
að grípa til handbærs fjár fjelagsins í því skyni. Jafn-
framt var svo ákveðið á síðasta búnaðarþingi, að útvega
skyldi aukið land til gróðurtilrauna. En stjórnin hefir
ekki viljað gera neitt út um það, nema ráðgast um það
betur við búnaðarþingið. En hins vegar hófum vjer, eins
og áður er tekið fram, stilt svo til, að fje er fyrir hendi
í þessu skyni.
Yfirlit yfir tekjur og gjöld þessa árs er ómögulegt að
gera á þessum breytingatímum. Stjórn fjelagsins verður
að haga seglum eftir vindi, spara á einum lið til þess
*9