Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 41
BÚNAÐARRIT
151
aðarþing, og bar fram tillögur um breyting á lög-
unum viðvíkjandi kosningu til búnaðarþings.
Úr 4. gr. falli burt orðin: „auk fulltrúa til búnaðar-
þings". Samþ. með öllum atkv.
5. gr. verði svo:
„Búnaðarþing er skipað 12 fulltrúum, sem kosnir
eru af Búnaðarsamböndum iandsins, þannig: að
Ræktunarfjelag Norðurlands kýs 3 fulltrúa, Bún-
aðarsamband Austurlands, Búnaðarsamband Suður-
lands og Búnaðarsamband Yesturlands 2 fulltrúa
hvert, og Búnaðarsamband Kjalarnesþings, Bún-
aðarsamband Borgarfjarðar og Búnaðarsamband
Dala og Snæfellsness 1 fulltrúa hvert. Kjósa skal
jafnmarga varafulltrúa á sama hátt.
Fulltrúar og varafulltrúar eru kosnir til fjögra
ára, og gengur helmingur hverra um sig úr annað
hvort ár, og skal þá kjósa í þeirra stað“.
Samþykt með öllum atkvæðum.
Ákvæði um stundarsakir:
„Fulltrúar þeir, sem nú eiga sæti á búnaðar-
þingi, halda því þar til er kjörtími þeirra er liðinn.
Fjelagsstjórnin gerir ráðstafanir þær, sem þörf er
á um kosningarnar fyrstu, eftir þessum lögum“.
Samþykt með öllum atkvæðum.
Sama nefnd bar fram þá tillögu:
„Að Búnaðarfjelagið fái fyrir milligöngu búnaðar-
sambandanna lög nokkurra búnaðarfjelaga, þeirra
er einna best skipulag hafa, og búi svo til og sendi
búnaðarfjelögunum fyrírmynd til búnaðarfjelags-
laga“.
Samþykt í einu hljóði.
3. Jarðræktarnefnd lagði fram álit sitt og tillögu um
styrk til áveitu.