Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 64
174
BÚNAÐARKIT
um breytingu á lögum Búnaðarfjelags íslands, sem við leyf-
um okkur að bera fram:
1. Úr 4. gr. falli burt orðin: „auk fulltrúa til búnaðarþings".
2. 5. gr. verði svo:
Búnaðarþing er skipað 12 fulltrúum, sem kosnir eru af
búnaðarsamböndum landsins, þannig, að Ræktunarfjelag
Norðurlands kýs 3 fulltrúa, Búnaðarsamband Austurlands,
Búnaðarsamband Suðurlands og Búnaðarsamband Vest-
fjarða 2 fulltrúa hvert, og Búnaðarsamband Kjalarnesþings,.
Búnaðarsamband Borgarfjarðar og Búnaðarsamband Dala
og Snæfellsness 1 fulltrúa hvert. Kjósa skal jafnmarga
varafulltrúa á sama hátt.
Fulltrúar og varafulltrúar eru kosnir til 4 ára, og geng-
ur helmingur hvorra um sig úr annaðhvort ár, og skal þá
kjósa í þeirra stað.
3. Akvæði um stundarsakir:
Fulltrúar þeir, sem nú eiga sæti á búnaðarþingi, halda
því þar til er kjörtími þeirra er liðinn. Fjelagsstjórnin
gerir rádstafanir þær, sem þörf er á, um kosningarnar
fyrstu eftir þessum lögum.
7. Um slyrk til áveitu. Frá jarðræktnriiefiid.
Samkvæmt bendingum forseta, hefir nefndin tekið það til
athugunar, hvort ráðlegt væri að styrkur yrði veittur til stærri
áveitufyrirtækja, á llkan hátt og nú er lögákveðið um Flóa-
og Skeiða-áveituna.
Nefndinni er fyllilega Ijóst, að nauðsynlegt er, að sem
flestar áveitur komi sem fyrst til framkvæmda, og álítur að
slíkar styrkveitingar styðji mjög að framkvæmd þeirra mála,
veit að nokkrum styrkbeiðnum þess efnis hefir verið beint til
Búnaðarljelagsins, t. d. frá bændum í Oslandshlíð í Skaga-
firði, úr Hegranesi og víðar. Nefndin telur rjettmætt að þau
fyrirtæki, sem styðja að aukinni og varanlegri framleiðslu
búnaðarafurða í landinu, beri að styrkja, þar eð þau mynda
tekjustofn fyrir rfkissjóð. Tillaga nefndarinnar er því þessi:
„Búnaðarþingið skorar á Alþingi, að ætla alt að
50000 kr. hvort ár næsta fjárhagstímabils til styrktar
áveitufyrirtækjum, .sem komast í framkvæmd, þannig,
að styrkurinn nemi ’/4 af stofnkostnaði áveitunnar, og
verði veittur eftir tillögu Búnaðarfjelags Islands".