Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 76
186
BÚNAÐARRIT
»Búnaðarþingið felur stjórn Búnaðarfjelags íslands
að hlutast til um það við landsstjórnina, að sendur
verði nú þegar í sumar hsefur maður til útlanda, fyrst
og fremst til Danmerkur, til þess að greiða fyrir sölu
hrossa á erlendum markaði, svo og til að kynna sjer
sem best alt sem lýtur að hrossasölu, og sem komið
gæti að gagni við sölu þeirra framvegist.
17. tJm nllarmat. Frá sulunefud.
Forseti Búnaðarfjelags Islands hefir lagt það til, að nelnd-
in athugaði, hvort ekki sje ástæða til, að breyta lögum um
ullarmat.
Nefndin hefir athugað þetta mál, og henni dylst það ekki,
að mati á ull er meira og minna ábótavant á ýmsum stöð-
um á lándinu. En hún getur ekki sjeð að þau mistök sjeu
lögunuin að kenna, heldur þvl, hvernig þau hafa verið fram-
kvæmd, einkum því, að matsmenn hafi eigi verið nægilega
vandvirkir um flokkun ullaiinnar. Nær það að sjálfsögðu
ekki jafnt til allra ullarmatsmanna. Telur nefndin líklegt, að
nokkru hafi um það valdið, að samtímis og byrjað var á því,
að meta ull til útflutnings, var sala ullarinnar bundin með
samningi við Breta, ullar-framleiðendum, út af fyrir sig, til
tjóns, þótt þeir samningar kunni af öðrum ástæðum að hafa
verið nauðsynlegir. Var með þeim kipt burt sterkustu hvöt-
inni til vöndunar á þessari vöru, þar sem ullin gat ekki í
frjálsri samkepni unnið sjer álit á heimsmarkaðinum sem
góð og útgengileg vara. Sumir nefndarmenn telja llklegt, að
reynsla muni leiða það í ljós, að ástæða verði til, að breyta
til um flokkun ullarinnar — fjölga flokkum. Nefndin telur
það ekki fullreynt enn, hvort ástæða sje til þess, og telur
rjett að halda þessari flokkun til frekari reynslu.
I sambandi við þetta vill nefndin taka fram, að nú í vor
hefir Stjórnarráðið sent út um alt land áskorun til ullar-
framleiðendn og matsmanna um það, að vanda sem best
verkun og flokkun ullarinnar. Væntir nefndin þess, að sú
áskorun geri gagn, að framleiðendur vandi verkun, og mats-
menn flokkun og frágang ullarinnar, svo að hún geti sem
fyrst og sem best unnið sjer álit sem góð vara, og umfram
alt, að flokkun ullarinnar verði talin ábyggileg a heimsmark-