Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 103
BÚNAÐAfiRIT
213
víðtækar tilraunir með alt, sem lýtur að búnaði.
Verkefni búnaðarfjelagsskaparíns getur verið nokkuð
breytilegt eftir staðháttum, og pví, á hvaða stigi bún-
aðarhættirnir eru. Með umbótunum koma ný viðfangs-
efni. Eins og nú standa sakir, skal bent á nokkur at-
riði í þessum efnum.
Búnaðarfjélög sveitanna. Starf þeirra ætti að vera að
styðja að fjelagsvinnu, notkun stærri verkfæra, er hestar
draga, styðja að aukinni grasrækt og garðyrkju, betri
fóðrun búpenings, kynbótum, sjá um að skýrslur sjeu
gerðar um fóðrun og afurðir, og búreikningar samdir.
Búnaðarfjelagið ætti að skiftast í deildir, er hver hefði
sitt viðfangsefni, eftir því sem best þætti við eiga. —
Fulltrúar búnaöarfjelaganna mœti á fundum búnaðar-
sambandanna.
Búnaðarsamböndin. Eins og áður hefir verið bent á,
eru verkefni þeirra nú nokkuð mismunandi, og liggja til
þess eðlilegar ástæður. Meira samræmi þarf að koma í
þetta starf. Allri tilraunastarfsemi ætti að vera stjórnað
af Búnaðarfjelagi íslands, og hefðu búnaðarsamböndin
það starf með höndum, samkvæmt fyrirsögn þess, og
eitir því sem nauðsyn krefði. Á bændaskólunum ætti og
að gera tilraunir. Búnaðarfjelagið safnaði síðan skýrslum
um allar tilraunirnar, dragi þær saman og birti árang-
urinn. Búnaðarsamböndin ættu að hafa sýnisreiti með
ræktunaraðferðum, sem tilraunir hefði leitt í ljós, að væri
heppilegar. Svo gæti þau sjeð um mælingu jarðabóta,
ieiðbeiningar, og komið af stað notkun stærri vjela, t. d.
dráttarvjela, með tilheyrandi verkfærum, skurðgraftar-
vjela o. fl.
Búnaðarsamböndin kjósi búnaðarþingsfulltrúa, en bún-
aðarþingið marki stefnur í öllum málum búnaðarins, en
3tjórn Búnaðarfjelags íslands sjái um framkvæmdirnar.
Búnaðarfjelag Islands er þá sambandsfjelag búnaðar-
sambandanna. Hlutverk þess er að láta gera allar nauð-
synlegar tiiraunir til búnaðarbóta, og veita mönnum að-