Alþýðumaðurinn - 20.01.1931, Síða 1
ALÞYÐUMAÐURINN
I. árg.
Akureyri, í’riðjudaginn 20. Janúar 1931.
3. tbl.
Fylkjum llðl.
» . . . p>éttir á velli, þéttir í lund,
þrautgóðir á raunastund.*
»Rasaðu ekki fyrir ráð fram,<
«egir málsháfturinn. Aldrei hefir
oss íslendingum verið meiri þörf á
að muna þetta en einmitt nú, þegar
meiri hræringar gera vart við sig í
þjóðlífinu en nokkru sinni fyr. Pað
er að vísu enginn vandi að halda
sig álengdar og hafast ekki að, en
vér íslendingar erum þannig gerðir,
að oss er sú staða ekki töm né
hugþekk. Vér viljum vera virkir í
baráttunni; að vísu misjafnlega
gefnir fyrir að taka skarpa afstöðu
til málanna, eri allir einhverstaðar
með.
Enginn flokkur í landinu á fyrir
höndum annað eins vandaverk og
Alþýðuflokkurinn. Enginn flokkur
á meira á hættunni, ef illa tekst, en
hann, af því sú stétt manna, er
hann berst fyrir, þolir minst skakka-
föll. Engum flokkanna ber því
jafn brýn nauðsyn til að »rasa ekki
fyrir ráð fram,« en Alþýðuflokknum.
Engum flokki er nú meiri þörf
góðra drengja, sem eru »þéttir á
velli og þéttir í lund,* en einmitt
honum.
Petta sá síðasta Alþýðusambands-
þing. Petta sá og sér Alþýðusam
bandsstjórnin. Petta sjá allir menn
innan alþýðusamtakanna, sem finna
og skilja að þeim ber að bera á-
byrgð gerða sinna.
Pað er því ekki að undra, þótt
skilji leiðir með hugsandi mönnum
alþýðuhreifingarinnar og liði því,
sem nú nýlega hefir fylgt sér undir
fána hraðbyltingarmanna, með það
starfsatriði fyrst á stefnuskrá sinni,
og það aleina í reynd, að reyna að
Verkamamafélag Akureyrar
heldur fund í Verklýðshúsinu
Sunnudaginn24.p.m. kl3Vse.h.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. 25 ára afmæli félagsins.
3. Atvinnubótamál.
4- Skýrsla Gefjunar-nefndar.
Félagsmenn, mætið vel og stund-
víslega!
Akureyri, 19. Jan. 1931.
STIÓRNIN.
gera Alþýðuflokknum allt það ógagn
er þeir fá orkað.
Nú, þegar ofurþungi viðskifta-
kreppunnar gengur í lið með fjanda-
flokkum alþýðunnar, er meiri þörf
gagnhugsaðra ráða og framkvæmda
en yfirborðsbrölts og asnastrika í
hvívetna. Pað hefir alstaðar og æf-
inlega reynst svo, að festa og fyrir-
hyggja í störfum hafa fært sigu.r að
launum, og svo er enn.
Höfuðstarf Alþýðuflokksins hlýt-
ur því, í náinni framtíð að verða
það, að fylkja liði og búast sem
best fyrir, áður en til höfuðorustu
kemur.
Óvinina, þá gömlu, þekkum vér.
Vitum upp á hár vilja þeirra og
vinnubrögð. Nýju óvinina verðum
vér ekki lengi að þekkja. Peir fara
ekki svo dnlt eða hljótt yfir. Vér
vitum því hvers er að vænta, hvað
er að varast og um hvað verður
barist.
Aðalatriðið er því að taka sér
stöðu á^réttum stað, fylkja þar liði
og hvika þar hvergi frá.
En hvað líður liðsafnaði verk-
lýðsfélaganna?
mm nýja bíó wem
Miðvikudagskvöld kl. 8l/t
Carmaii frá St. Pauli.
Kvikmynd í 8 þáttum.
Aðalhlutverk leika:
Jenny Jugo,
Willy Fritsch.
heldur aðalfund sinn Sunnudaginn
25. þ. m. á Hótel Akureyri. Fund-
urinn hefst kl. 1 e. h. — Auk
venjulegra aðalfundarstarfa eru mik-
ilsverð mál á dagskrá.
Stjórnin.
Hvar hefir safnast mest og sam-
hentast lið? Hvar eru alþýðusam-
tökin sterkust? -
Liðsafnaðurinn er mestur og best-
ur þar sem festa og fyrirhyggja
hafa einkent störfin. Par sem lið-
inu hefir verið fylkt áður en til or-
ustu var gengið. í höfuðstað Iands-
ins eru alþýðusamtökin sterkust—;
þar sem »kratarnir«, er kommúnist-
arnir ofsækja, eru foringjar — og
vinna sigur í h ver/u máli,
Nú, þegar verklýðssamtökin eru
víða við það að gliðna, vegna þeirr-
ar ólgu, er stofnun og starfkomm-
únistaflokksins hefir valdið í verk-
lýðsfélögunum, hlýtur það að vera
fyrsta og ákveðnasta heit hvers
hugsandi og heiðarlegs alþýðu-