Alþýðumaðurinn - 20.01.1931, Blaðsíða 3
A'LÞÝÐÚMAÐURINN
3
í-----------------1
ALÞÝÐUMAÐURINN.
Gefinn út af Alþýðuflokks-
mönnum.
Kemur út á hverjum Priðjudegi,
og aukablöð þegar með þarf.
Áskriftargjald kr. 5,00.
Akureyrardeildar Kaupfélags Eyfirðinga, verður haldinn í Nýja-Bíó Himtu-
daginn 22. þ. m. og hefst kl. 8V2 e. m.
Fyrir fundinum liggur viðauki við reglugerð deildarinnar.
Fastlega skorað á deildarmenn að sækja fundinn.
Ábyrgðarmaður:
ERLINGUR FRIÐJÓNSSON.
Sími 75.
Afgreiðslumaður:
HALLDÓR FRIÐJÓNSSON.
Sími 110.
Prentsmiðja Björns Jónssonar,
)
er hver? Hvað er hvað? — Og
verkamennirnir fylgja hvorugum.
Við bæjarstjórnarkosningar í Gauta-
borg síðast í Október töpuðu
kommúnistar öllum sínum bæjar-
fulltrúasætum. Jafnaðarmenn unnu
þau öll og fengu hreinan meirihluta.
Þannig er það á Norðurlöndum.
En hvernig er það í Þýskalandi, há-
borg kommúnismans í Vestur-
Evrópu ? Hvar er Ruth Fischer, hin
glæsilega kona, er barðist djarfast
fyrir verkalýðinn? Hvar eru þeir
Korz og Úrbanz, foringjarnir frá
Hamborg? »Aginn« frá Moskva
drepur alt af sér. — Það er siður
í þýska þinginu, að hver flokkur
hafi sitt eigið borð á »Kringlu«
þeirra Þjóðverjanna. — Kommúnist-
ar hafa 3 borð — eru þríklofnir.
Á Englandi eru kommúnistar ger-
samlega áhrifalausir. Þeir höfðu 1
fulltrúa á þinginu, Saklatvala, en
við síðustu kosningar féll hann við
engan orðstý.«
V. S. V.
I. O. G. T.
St. Akureyri nr. 137
Fundur í kvöld á venjulegum
stað og tíma. Inntaka nýrra félaga.
Boðsbréf. Hagnefndaratriði Mætið
öll!
St. Brynja nr. 99.
Fundur annaðkvöld á venjulegum
stað og tíma. »Vaðall«. Stúkum á
Akureyri og í Glerárþorpi er boðið
á fundinn.
Atvinnuleysið.
Það er almennt álitið, að hér í
bænum séu nú mikið fleiri atvinnu-
lausir menn, en nokkru sinni fyr.
Eg geri ráð fyrir að álit manna á
þessu efni sé rétt. En á tölum verð-
ur það ekki byggt.
Að vísu hefir bæjarskrifstofan tekið
atvinnuleysisskýrslur fjórum sinnum
á ári, síðustu ár, af þeim mönnum,
er gefið hafa s>g fram á tilsettum
tíma. En jafnan munu fáir hafa kom-
ið. T. d. 1. Nóv. s. I. komu 2 menn.
Þykir mér sennilegt að þá hafi 50
sinnum fleiri verið atvinnulausir.
Get ég þessa til að benda á hvað
tölur þær, sem til eru um þetta efni,
eru villandi.
rað, hvað fáir hafa gefið sig fram,
mun stafa mest af þvf, að menn hafa
ekki séð, að slíkar upplýsingar hefðu
nokkra þýðingu fyrir þá. En einnig
hef ég orðið var við þann skilning
að aðeins þeir, sem atvinnulausir væru
þá daga sem skýrsluna ætti að gefa,
skyldu gefa sig fram.
En meiningin með þessari skýrslu-
gerð hlýtur að vera sú, að fá yfirlit
yfir atvinnu manna yfir árið, og um
leið atvinnuleysisdaga þeirra.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi var rætt
um atvinnuleysið og framkvæmdir til
atvinnubóta, og því máli vísað til at-
vinnubóta- og fjárhagsnefndar.
Það má gera ráð fyrir að ýmsir
bæjarfulltrúanna verði afturhaldssamir
í þessu máli sem mörgum öðrum,
að með þurfi öll skýr rök til að sann-
færa bæjarstjórn yfirleitt um nauðsyn
framkvæmda í þessu máli.
Beztu rökin verða skýrslur er ná
yfir alla verkamenn þessa bæjar, sem
stopula eða enga vinnu hafa.
Skýrslur þessar eru teknar á þar til
Deildarstjórnin.
gerð eyðublöð, og síðan send hag-
síofu ríkisins.
Það að ekki er unnið úr skýrslun-
um hér á staðnum, og það strax, er
óviðunandi, svo framarlega sem eigi
að nota þær sem rök í atvinnubóta-
máli því sem nú liggur fyrir bæjar-
stjórn, En auk þess eru skýrshir
þessar ófullnægjandi, eins og ætlast
er til að þær séu færðaf.
Stjórn Verkamannafélags Akureyrar
hefir því ákveðið að hlutast til um
að aðrar skýrslur verði teknar jafn-
framt hinum lögboðnu, 1. Febr. n. k.
og næstu daga þar á eitir, og hef ég
þegar leitað samvinnu við bæjarstjóra
í þessu máli og hef von um að hún
takist, og verður skýrt frá því nánar
í næsta blaði.
Þorst. Þorsteinsson.
Samvinnufélag ísfirðinga keypti nú
um áramótin báta félagsmanna, með
öllu er þeim tilheyrir og fylgir. Voru
innborguð framlög innleyst með
skuldabréfum til 12 ára, með 5 prc.
vöxtum. Hefir þessi breyting aukið
öryggi félagsins afar mikið. Félagið
verkaði á s. I. ári 6753 skipp. af fiski
fyrir félagsmenn og 317 skipp. fyrir
utanfélagsmenn. Seld voru 5766
skpp. en 987 skpp. óseld.
Á Sigiufirði er nýstofnað verka-
kvennafélag, sem heitir »Verkakvenna-
félag Siglufjarðar* Höfðu 38 stúlkur
gengið úr verkakvennafél. »Ósk« og
stofnuðn þegar hið nýja félag með
56 félögum. Félagið hefir þegar
sett kauptaxta fyrir þ. á. og er hann
birtur hér í blaðinu í dag. Er hann
eins og kauptaxti »Óskar« frá s. 1. ári
nema hvað fleiri verkunaraðferðir síld-
ar eru taxtalagðar en var í fyrra. ^