Alþýðumaðurinn - 27.01.1931, Síða 1
Sigar gætnari mmm.
Pau einkennilegu tíðindi gerðust
í haust, að þegar fulltrúar voru
kosnir á verklýðsráðstefnuna í Rvík
og á Aiþýðusambar.dsþing, að héð-
an að norðan voru kosnir menn,
sem bárust allmikið á sem. komm-
únistar, þegar til höfuðstaðarins
kom. Voru þar alls frá 3 verka-
mannafélögum og einu sjómanna-
félagi 9 kommúnistar af þeim 15
kommúnistum, sem á Alþýðusam-
bandsþinginu voru mættir. Pótti
þetta, sem nærri má geta, allótrúleg
saga í höfuð'borg landsins, að
verkamannafélöginnorðanlands væru
orðin svo kommúnisk, að þeir full-
irúar, sem mættu fyrir þau, gætu
sýnt sig sem meirihlutafuiltrúa frá
þessum félögum. Pað vakti og
allmiklar efasemdir um að fjölmenni
stæði á bak við þessa fulltrúa, að
alstaðar hafði kosning verið dauf
og atkvæðamagn Iítið vlð kosningu
þessara manna. Jafnvel höfðu full
trúar verið kosnir með 40 atkvæð-
um í félögum, sem töldu upp und-
ir 300 manns, svo lítið varð af
slíkri kosningu ráðið, hver myndi
vera hinn rétti viiji þeirra félaga,
sem sent höfðu kommúnistana á
Alþýðusambandsþingið. Nú, þegar
búið er að prófa þessi mál nokkru
betur en varð með kosningunni í
haust, kemur í Ijós, að þessir 9
kommúnistar, sem mættu fyrir áður-
nefnd félög á Alþýðusámbandsþing-
inu, hafa allir verið frá rninnihluta
félaganna, og því sýnt algerlega
falska mynd af hug þessara félaga
til verjdýðsmálanna. Við kosningar,
sem farið hafa fram í þessum fjór-
um félögum nú nýlega, hafa komm-
únistar borið lægri hlut alstaðar,
og í tveimur stærstu félögunum
orðið í geysilegum minnihluta.
AUar hinar fögru vonir kommún-
istanna um yfirráð þeiira í stóru
félögunum hér norðanlands, hafa á
tæpum þremur mánuðum íokið út
í veður og vind eins og visið lauf-
blað á haustdegi.
Það verður ekki talið meðal
stærri viðburða hér á landi, þó það
komi í Ijós, að íslenskalþýða hlaupL
ekki athugunarlaust undir væng
kommúnistanna. Alþýðan ísleriska
er búin að reyna það gegnum ár
og aldaraðir, að þrautsegja, gœtni,
þol og stilling er það eina, sem
yfirbugar erfiðleika þá, sem henni
mæta.
Frásögn Einars.
Einn fulltrúinn á Verklýðssam-
bandsþinginu, sem haldið hefir ver-
ið hér að undanförnu, hefir skýrt
mér frá því, að Einar 'Olgeirsson
hafi upplýst þingmenn sína um það
í ræðu, sem hann hélt, að ég hefði
karlmenn í vinnu og gildi þeim ekki
nema kvenmannskaup, 70 aura um
klukkutímann. Kvað hann mig hafa
kannast við þetta, svo að ekki væri
um að villast. Fulltrúi sá, er sagði
mér þessi ummæli Einars, taldi lík-
legt, eftir því er honum hafði skil-
ist á fundarmönnum, að þetta háíta-
lag mítt þætti ekki til fyrirmyndar.
Allir kunnugir menn vita, að ég
hefi enga atvinnu með höndum fyr-
ir sjálfan mig, svo ef ég væri að
hafa kaup af fólki, samkvæmt um-
mælum E. O., þá væri ég að draga
aura til handa Kaupfélagi Verka-
manna, sem fólk þetta vinnur hjá.
Kaupfélagi Verkamanna myndi þó
NYJA BIO
Mið vikudagsk völd kl. S'/j
Tundur-
steinarnir.
Oamanmynd í 8 þátturn. ,
Aðalhlutverkin leika:
LITLI og STÓRI.
Sprenghlægileg mynd.
lítill greiði vera gerður með sl'':u,
því bæði hefir það félag greitt
nokkru hærra kaup en nokkur nnn-
ar hér um slóðir fyrir suma þá
vinnu, sem hjá því hefir verið unn-
in, og jafn hátt öðrum fyrir alla
aðra vinnu, og fyrsta ár félagsins
við fiskverkun greiddi það um 20.%"
hærra kaup en allir aðrir hér á
staðnum fyrir þá vinnu, og hagur
þess myndi standa jafn eftir eein
áður, þó Einar fengi að ráða kaupi
þeirra karlmanna, sem hann telur
að ég greiði ekki nema kvenrmams-
kaup.
Sannindi þau, sem E. O. byggir
frásögn sína á, eru þessi:
Pað hefir komið fyrir, að kona,
sem ráðin er í fiskvinnu hjá Kaup-
félagi Verkamanna, hefir sent í stgð-‘
inn fyrir sig, stund úr degi eða ef
til viíl heilan dag, bónda sinn,
bróður, föður eða son.
Aldrei hefir nokkrum þ ssara
manna dottið í hug að fara íram á
það, að þeir fengju annað eða
hærra kaup en það, sem konan
hefir verið ráðin upp á. Þeir hafa
unnið kvenmannsverk, breitt fisk til
þerris, tekið saman fisk að kveldi,