Alþýðumaðurinn - 10.02.1931, Side 1
I. árg.
Akureyri, t*riðjudaginn 3. Febrúar 1931.
6. *bl.
kélt þingmaður bæjarins í Samkomu-
húsinu á Laugardagskvldið var. Vár
lundurinn fjölsóttur og stóð frá kl.
8,30 til kl. 3 um nótlina. 15 mál
voru á dagskrá og ræðumenn voru
13. Þessar tillögur voru samþyktar:
Ríkisábyrgð.
Fundurinn skorar á Alþingi.
1. að samþykkja þegar í þingbyrj-
un ríkisábyrgð á víxlum Síldar-
einkasölu Islands, er hún hefir í
höndum fyrir síld, selda til Rúss-
l'ands síðastliðið sumar.
2. að taka jafnsnemma ákvörðun
um ríkisábyrgð á samskonár
víxlum, ef samningar takast um
síldarsölu til Rússlands í stórum
stil á þessu ári. Nemi sú ábyrgð
fullu andvirði aUrar þeirrar síld-
ar, er seld kann að verða, allt
að 200 þús. tunnum.
3. að samþykkja ríkisábyrgð á 1V2
milj. kr. föstu rekstursláni handa
Síldareinkasölu íslands, með því
skilyrði, að hún greiði þegar í
vertíðarlok að fullu með áætlun-
arverði, aflahlut þeirra sjómanna,
er síldveiði stunda, og sjái um
að greidd verði öll vinnulaun við
síldarframleiðslúna eins og lög
standa til.
4. að styðja að því að tekin verði
upp vöruskifti við Rússa, í því
skyni að opna íslenskum fram-
leiðsluvörum markað þar í landi.
Tunnuverksmiöja.
Fundurinn skorar á þing og stjórn
að styðja að því, að Síldareinkasala
íslands komi á stofn fullkominni
tunnuverksmiðju hér á Norðurlandi
sem íullnægt gæti síldarútvegnum.
Skattam ál.
Fundurinn vítir það, hvað meiri-
hluti Alþingis hefir verið tómlátur í
að gera þær breytingar á skatta-
og tollalöggjöf ríkisins, er bæti úr
þeim þungu álögum, sem nú koma
harðast niður á efnaminstu stétt
landsins, verkafólkinu, og skorar
því fastlega á næsta Alþingi að
láta ekki lengur undir höfuð leggjast
að afnema toíia af nauðsynjavörum
alþj'ðu, en afla tekna í ríkissjóðinn
í stað þess með beinum sköttum.
Réttindamál verkalyösins.
Fundurinn skorar á Alþingi:
a. að setja lög, er skipi fyrir um
að í öllum verksmiðijum verði
tekinn upp 8 st. vinnudagur.
(Samþ. m. öllum greiddum atkv.)
b. að setja lög er veiti verkafólki
rétt til að stofna rekstursráð, er
haíi íhlutunarrétt um stjórn og
rekstur þeirra atvinnufyrirtækja,
er það vinnur við.
c. að setja lög er, er tryggi verka-
lýð landsins ríflegan sjúkrastyrk
og ókeypis læknishjálp. Enn-
fremur að endurbæta berklalögin
svo, að berklasjúklingar njóti
framvegis allrar framfærslu og
læknishjálpar ókeypis, hvort held-
ur er í heimahúsum, hælum eða
sjúkrahúsum,
d. að breyta enn slysatryggingar-
lögunum, svo að hver sem verð-
ur óvinnufær, lengri eða skemri
k
tíma, fái styrk úr slysatrygging-
arsjóði. Ennfremur að styrkur-
inn hækki all-verulega. Sömu-
leiðis að slysatryggingar verði
víðtækari, svo að þær nái yfir
hverskonar slys, sem að höndum
kunna að bera.
e. að semja og samþykkja lög um
almennar ellitryggingar, þar sem
; Afar-spennandi indíápamynd í
6 þáttum, leikin af Tim Mc
Coy og Joan Crawford.
Uíl drabíllinn, gamanmynd,
og lifandi fréttablað.
Hr. Jakob Einarsson spilar á
fiðlu og fröken Lovísa Frímanns-
dóttir á slaghörpu.
heldur fund
í Verklýðshúsinu Miðvikudaginn 11.
þ.m. kl. 8 e.m.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka njfrra félaga,
2. Skýrsía afmælisfagnaðar-
nefndár.
3. Skýrsla atvinnubótanefndar.
4. Skýrsla um samningsumleit-
un við H. Espholin.
5. Erindi um upphitun sund-
laugar Akureyrar.
6. Húsaléiga félagsins á þessu
ári.
Félagar mætið stundvíslega.
Ak., 9. Febr. 1931.
STJÓRNIN.
æfilúnu erfiðisfólki sé trygt sæmi-
legt lífsviðurværi á svipaöan hátt