Alþýðumaðurinn

Eksemplar

Alþýðumaðurinn - 24.02.1931, Side 1

Alþýðumaðurinn - 24.02.1931, Side 1
ALÞYÐUMAÐURINN . árg. | Akure)rri, í^rið.judagiim 24 Febrúar 1931. "■ 9. tbí Kaupgreiðslur. Fyrsta skilyrðið fyrir kaupgreiðslu, er að kaupkrafa vinnandans sé við- urkend af þeim sem á að greiða. Verkafóiki sem yfirleitt hefir ekki annað að lifa af en vinnu sína, er mikils um vert að vinnulaunin séu sæmiiega há, en engu síður að kaupið sé greitt fljótt. Það er kunnugt að útlánsvextir bankanna eru svo háir sem raun er á, vegna tapa sem orðið hafa við útlánin. Það er einnig kunn- ugt, að álagning verslana er yfir- leitt gerð með tílliti til vaxtatapa og áhættu við að lána vörurnar. Væri skuldaverslun ekki rekin, yrði verð varanna mun lægra. Verkafólk, sem ekki fær strax greitt kaup sitt, eg verður þar af leiðandi að fá iánaðar vörur, mun jafnframt verða að kaupa dýrara en ella, og á þann hátt fá raunveru- lega minna fyrir vinnuna. Samkvæmt lögum á .að greiða verkafólki vífíhulaun þess í lok hverrar viku. — Þessu hefir verið lítið sint af atvinnurekendum, enda linlega eftir því gengið af verka- fólkinu. Þetta meinleysi hefir valdið verka- fólki meira tjóni en með tölum verði talið, og er- mál til komið að reyna að koma í veg fyrir þann skaða, því auk óhagstæðari versl- unar, sem við það verður að verka- fó!k fær ekki kaup sitt strax, er miklu hættara við algerðu tapi. — Bæði vegna breyttra kringumstæða verkhafa og einnig vegna þess að gjaldfresturinn veitir eignalausum bröskurum tækifæri til að standa fyrir verkum og hafa fyrir það fé íil að gleðja sig og sína með, þó verkafólkið, það raunverulega fólk sem framleitt hefir, fái aldrei sitt. Nokkur dæmi eru. þess, að vinnu- veitendur hafa haldið dýrar veislur, farið skemtiferðir og haldið rík- mannleg heimili á sama tíma sem verkafólk þeirra hefir ekki getað staðið í skilum vegna vanskila þeirra. Svo langt hefir verið gengið í því að treysta atvinnurekendum og spara þeim fyrirhöfn, að verkafólk hefir alloft ekki krafist að fá skrif- Iega viðurkenningu fyrir inneign sinni — vinnukaupinu. Þessi tilhliðrun er orðin að venju, sem einstaklingar eiga erfitt með að breyta á móti. Sá sem krefðist nótu að kveldi eða útborg- unar við vikulok, ætti á hættu að slíkt yrði tekið sem tortryggni. Það sem hér þarf, eins og við flestar aðrar umbætur, er að fjölmenn félög beiti sér fyrir málinu, og að margir geri samtímis sömu kröfuna. Verklýðsfélögin verða að hlutast til um, að ætíð séu vinnunótur af- hentar verkafólkinu að kveldi, — Þá máetti ganga inn á, að fastráðið fólk fengi vinhunótur við vikulok, og að vinnukaupið sé greitt í lok hverrar viku, á vinnustöðvunum og í vinnutímanum. Það er ekkert aðalatriði að út- borgun fari fram á fínum skrifstof- um. Það getur vel gengið í geymsluhúsum eða tjöldum. Aðal- atriðið er að fólkið fái kaupið fljótt og án þess að eyða til þess tíma, sem það annars gæti fengtð pen- inga fyrir. Síðustu tímar ættu að kenná okkur að meta kosti þess að fá kaup sitt greitt strax. Það verður oftast bæði til skaða og leiðinda að 6iðja verslanir og mm nýja bió mm Miðvikudagskvöld kl. S'/i Æfintýri aðals- mærinnar. Þýskur kvikmyndasjónleikur í 8 þáttum. Aðalhlutv. Ieika: Liane Haid og Frerí Louise Lerch. Verkamaimafélag Akureyrar. heldur fund í Verklýðshúsinu, Sunnudaginn 1. Marz n.k. kl. 3,30 e. h. FUÍJDAREFNI: 1. Inntaka nýrra félaga, 2. Kaupgreiðslur til verkafólks. 3. Tekjur og gjöld félagsins. 4. Kauptaxti félagsins. STJÓRNIN. einstaklinga að lána sér. Að geta ekki greitt á tilteknum tíma, er mannskemmandi. Á síðastliðnu hausti og í vetur hafa það orðið margir sem neyðst hafa til að biðja um lán og brugð- ist Ioforðum um greiðslur, vegna vanskila atvinnuveitenda. Ég hefi grun um. að ennþá eigi verkafólk á Akureyri tugi þúsunda hjá vinnu-

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.