Alþýðumaðurinn - 03.03.1931, Side 1
Mamannaiiústaðií.
Húsagerðarmeistari ríkisins, Guð-
jón Samúelssor, hefir í samráði við
meðnefndarmenn sína, Vilmund
Jónsson lækni og Georg Ólafsson
bankastjóra, gert uppdrætti að verka-
mannabústöðum, sem hann telur
hagkvæmasta og um leið ódýrasta
af þeim, sem enn hafa verið gerðir
hér á landi, og er fyrirkomuiag
þeirra sem hér segir:
íbúðirnar skulu vera sambygðar
húsaraðir. tvílyftar, og eru í hverju
húsi tvær íbúðir niðri og aðrar
tvær uppi. Inngangur er sameigin-
legur fyrir 4 íbúðir, en í hverri í-
búð er innriforstofa með skáp,
stofa Í3 mtr. og 75 cm. á lengd og
3 mtr. 45 cm. á breidd með inn-
bygðum skáp, hjónaherbergi 3 mtr.
og 15 cm. á lengd og 2 mtr. og
15 cm. á breidd með skáp, barna-
herbergi 2,45 mtr. á breidd og 3
mtr. á Iengd með 2 skápum, og
má skifta því í tvö Iítil svefnher-
bergi iangsum, lítið eldhús 2 mtr.
og 45 á Iengd og 1,30 mtr. á
breidd með gassuðuvél og vaska,
Iftil geymsla eða búr innaf því og
Ioks lítið herbergi með vatnssálerni
þar sem hægt er að setja baðker
og jafnframt verður notað sem
þvottahús. íbúðin verður öll raf-
lýst þar sem rafveita er, en mið-
stöð sameiginleg fyrir 20 íbúðir.
Kjallari er enginn nema fyrir mið-
stöðina. Á baklóð er gert ráð fyr-
ir skúr til að þurka í þvott og til
viðbótar geymslu.
Pó uppclráttur húsagerðarmeist
arans virðist aðallega vera miðaður
við byggingu í Reykjavík, þar sem
gert er ráð fyrir að bygt sé í einu
20 íbúðir með einni sameiginlegri
miðstöð fyrir allar íbúðirnar, virð-
ist ekki úr vegi að athuga nokkru
nánar hvað húsagerðarmeistari á-
ætlar að svona gerðar íbúðir muni
kosta, því það getur gefið nokkra
hugmynd urn kostnað við bygg-
ingu líkra íbúða á öðrum stöðum,
þó færri yrðu bygðar saman.
Húsagerðarmeistari telur að með
þessu fyrirkomulagi muni hver íbúð
kosta íullgerð um 6000 kr, fyrir
utan hluta hennar í skúrnum á
baklóðinni, sem varla mun þurfa
að kosta meir en 300—500 kr. eft-
ir því hversu stór og vandaður
hann er, og kostaði þá íbúðin sam-
tals mest 6500 kr.
Pað sem félagsmenn yrðu að
leggja fram í peningum við bygg-
ingu þeirra íbúða, sem hér hefir
verið talað um, eru 975 kr. eða
15*/o at stofnkostnaði, en yrðu að
greiða síðan 6% árlega af afgang-
inum í 42 ár til þess að eignast í-
búðirnar að fullu.
Árleg útgjöld við húsnæðið yrðu
þá þessí:
6% vextir og afborgun
af 6500 kr. 975 kr,
eigin eign kr. 321,50
Viðhald áætlað lV2% af
kr. 6500,00 - 97,50
Brunabótagjald 3 af þús. — 19,50
Fasteignaskattur til lands
og bæjar áætlað — 47,50
Vatnsskattur ca. — 20,00
Lóðarleiga áætluð — 50,00
Alis kr. 566,00
Sennilega yrði lóðarleiga fyrir
svona íbúð ekki yfir 20 kr. hér á
Akureyri.
Með því að eiga 975 kr, í upp-
hafi til þess að Ieggja í íbúðina,
myndu menn eignast hana á 42 ár-
um með um 47 kr. mánaðargreiðslu
en verði menn í fyrstu að taka að
NYJA BIO
Miðvikudagskvöld kl. 8 */j
■ f í I
Ensk kvikmynd í 8 þáttum.
Leikin af: Eve Gray —
Pat Aherne — John
Hamiiton.
Mynd þessi er um tvo bræð-
ur, sem elska báðir sömu
stúlkuna. Velur hún annan
þeirra fyrir eiginmann, en
hinn hefnir sín með því að
gerast þjófur og koma því
þannig fyrir, að bróður hans
er hegnt. — Myndin er með
fallegum landslagsmyndum
enda er hún látin gerast í
einu af fegurstu héruðum
Englands.
láni 975 kr með 8% vöxtum hækk-
ar gjaldið um kr. 6,50 á mánuði
upp í rúmar 53 kr.
Væru bygð einlyft sambygð hús
gerir byggingarmeistari ráð fyrir að
kostnaður á hverja íbúð myndi
hækka um 1500 — 2000 kr. og þá
um leið fyrsta framlagið að hækka
frá þeim, sem byggja, um 225 —
300 kr. Væri hafður kjallari fyrir
hverja íbúð, myndi byggingarkostn-
aður hækka enn meir, sennilega
upp í 9—10,000 kr.
Til þess að fá íbúðirnar eins ó-
dýrar og gert er ráð fyrir hér að
framan, þarf grundvöllurinn undir
húsunum að vera þéttur vel, melur
eða klöpp, svo að ekki þurfi að