Alþýðumaðurinn

Útgáva

Alþýðumaðurinn - 14.04.1931, Síða 1

Alþýðumaðurinn - 14.04.1931, Síða 1
KAUPTAXTI Verkainannafélags Akureyrar, frá 1. Maí 1931 til 30. Apríl 1932, að báðum dögum meðtöldum. LÁGMARKSKAUP: 1. Dagvinna við almenna vinnu kr. 1,25 á kl.st. 2. Eftirvinna við sama kr. 1,90 á kl.st. 3. Dagkaup við afgreiðslu fraktskipa og kolavinnu kr. 1,40 á kl.st. 4. Eftirvinna við sama kr. 2,10 á kl.st. 5- Öll helgidagavinna kr. 3,00 á kl-st. Dagvinna telst frá kl. 7 að morgni til kl. 5V2 að kvöldi, þó aldrei yfir 10 kl.st. og áskilja verkamenn sér af þeim 10 stundum 1 kl.st. til hressingar, án frádráttar á tíma. Noti verkamenn við skipavinnu 2 kl-st. samlagt yfir daginn til kaffi og matar, má dagvinna standa yfir til kl. 6 síðdegis, Helgidagavinna telst á öllum helgidögum þjóðkirkjunnar og á næsta kvöldi fyrir helgidag frá kl. 6 e. h. Ennfremur á Sumardaginn fyrsta, 17. Júní og 1. Des. 1- Maí skal vera almennur frídagur verkalýðsins. Sé um mánaðarráðningu að ræða yfir tvo mánuði eða meira, skal lágmarkskaup vera 320 kr. á mánuði, á tímabilinu frá 1. Maí til 31. Okt. En 250 kr. á mánuði á tfmabilinu frá 1. Nóv. til Aprílloka. Fyrir ársvistir er lágmarkskaup 220 kr. á mánuði. Við lok hvers vinnudags skulu verkstjórar afhenda verkamönnum vinnunótur, er sýni tímafjölda og kaup mannsins, þó má — við stöðuga vinnu og að fengnu samþykki hlutaðeigandi verkamanna — tilfæra viku- vinnu á einni nótu. Vinnukaupið skal goldið í vikulok á vinnustöðvunum og í vinnu- tímanum, nema verkamennirnir kjósi annaö frekar. Kauptaxtinn þannig samþyktur á fundi félagsins 2. Apríl 1931. í stjórn Verkamannafélags Akureyrar. Stefán Árnason, Gestur Bjarnason, Þorst. Þorsteinsson, varaformaður. ritari. gjaldkeri. Anna Borg. Frekari fréttir frá Kaupmannahöfn herma að leikur hennar í »FausU þyki hinn besti er þar hefir sést lengi Telja sum blöðin leik hennar ógleym. anlegan og fullkomið listaverk. Kósakkasveitin, sem sungið hefir í Reykjavík und- anfarið, kemur hingað norður með íslandi og syngur hér meðan skip- ið stendur við. WBW NÝJA BIÓ M Miðvikudagskvöld kl. 8'/i Rödd hjartans Pýskur kvikmyndasjónleikur í 7 þáttum, í aðalhlutverkunum: Lil Dagover og Jean Murat. — Sýnd í síðasla s nn. — Frá Alþingi. Par er bútst við fréttum á næst- unni, en frekar hefir verið þar tíð- indalitið undanfarið. Frumv. Haraldar Guðmundssonar um bann gegn drag- nótaveiði í landhelgi, var fellt frá annari umiæðu í n. d. með 16 atkv. gegn 7. Samþykt var við aðra um- ræðu í n. d. á Föstudaginn var, að fjölga þingm. Reykjavíkur npp í 5, og skulu ákvæði þessi koma til fram- kvæmda við kosningarnar í vor. — Stóðu jafnaðarmenn og íhaldsmenn saman að þessu, en Framsókn nær öll á móti. Pá stóðu og sömu flokk- ar saman að breytmgum að sljórnar- skránni, í e. d., þar sem ákveðið er, að þegar umboð landskjörinna þing- manna falla niður 1932, skuli þing rofið og nýjar kosningar fram fara; að fjölga megi tölu þingmanna nú strax; að e. d. þingmenn skuli kosn- ir í sam. þingi með hlutfallskosningu, og að ákveða megi með einföldum lögum hlutfallskosningu í öllum kjör- dæmum í landinu, og að þeginn sveitarstyrkur svifti menn ekki kosn- ingarétti. Fjárlögin komu úr nefnd í n. d. um miðja síðustu viku, mikið

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.