Alþýðumaðurinn - 18.04.1931, Blaðsíða 1
I. árg.
Akureyri, Laugardaginn 18 Apríl 1931.
17. tbl.
Stjórnuiðlafréttir.
í síðasta blaði var þess getið, að
vantraust á ríkisstjórnina hefði átt
að koma til umræðu í sameinuðu
þingi á Þriðjudaginn var. Þegar á
þann fund kom íiutti forsætisráð-
herra þingheimi þann konungsboð-
skap, að þing væri rofið og nyjar
kosningar skyldu fram fara 12. júní
n. k. Væri þirgstörfum þar með
hætt og sæti stjórnin' sem bráða-
birgðastjórn fram yfir kosningarnar.
Andstöðuíiokkar stjórnarinnar tóku
þessum málalokum fjarri, og kröfð-
ust þess, að þinginu yrði haldið á-
fram þar til gengið yrði frá fjárlög-
unum fyrir næsta ár. Einnig kröfð-
ust þeir þess, að stjórnin segði taf-
arlaust af sér, Stjórnin þverskallað-
ist við að fara frá, en var þó kom-
in svo langt á Fimtudag, að hún
bauð að fjármálaráðherra og dáms-
málaráðherra færu frá, en foringjar
flokkanna kröfðust að stjórnin segði
öll af sér.
Forsætisráðherra bygði beiðni
sína til konungs um þingrofið á því,
að stjórnin væri orðin í minnihluta
í þinginu, en hins vegar ómögulegt
fyrir andstöðuflokkana að mynda
pólitíska stjórn. Og í öðru lagi á
því, að nú væru stórmál til með-
ferðar í þinginu, svo sem breyting-
ar á kjördæmaskipun o. fl. sem
nauðsynlegt væri að leggja undir
dóm þjóðarinnar með nyjum kosn-
ingum, áður en þau væru lengra á
veg komin. Andstöðuflokkar stjórn-
arinnar halda því aftur fram að
þeir geti myndað stjórn og það sé
óíorsvaranlegt að skilja við þing-
málin eins og þeim er nú komið —
og stjórnarskrárbrot að rjúfa þing
áður en fjárlög hafa verið samþykt.
Deila lögfræðingarnir um það hvort
þingrofið hafi verið stjórnarskrár-
brot eða ekkí. Eru þær greinar
stiórnarskrárinnar, sem snerta þetta
atriði, birtar á öðrum stað í blaðinu.
í gær sendu þingmenn íhaldsins
konungi skeyti þar sem þeir skor-
uðu á hann að kalla saman þing
aftur og veita ráðuneyti Tryggva
Þórhallssonar lausn, og tilkyntu
jafníramt að þeir væru reiðubúnir
að mynda stjórn. í öðru lagi sendu
þingmenn Alþýðuflokksins skeyti til
konungs og skoruðu á hann að veita
gamla ráðune\-tinu lausn og kalla
saman þing aftur tafarlaust, til að
klára fjárlögin og yms mikilvæg
atvinnumál er biðu bráðrar úrlausn-
ar. Þá kváðu þeir sig reiðubúna
að benda á leið til að mynda nýja
stjórn. Svar konungs kom í gær.
Kvaðst hann, áður en ákvörðun yrði
tekin um þessi mál, leita frekari
upplýsinga hjá forsætisráðherra.
Eftir þessu er nú beðið. Allir þing-
menn eru enn í Reykjavík og sitja
sem fastast.
Þingrofið.
Greinar þær í stjórnarskrá íslands,
sem segja iyrir um þingrof, og lög-
menn syðra deila nú úm, eru svo-
hljóðandí:
18. gr.
»Konungur stefnir saman Alþingi
ár hvert og ákveður hvenær því
skuli slitið. Þinginu má eigi slíta
fyr en íjárlög eru samþykt. Kon-
ungur getur og kvatt Alþingi til
aukafundar.«
"•20.gr.,
»Konungur getur rofið Alþingi, og
skal þá stofna til nýrra kosninga
áður en tveir mánuðir eru liðnfr frá
því, er það var rofið, en Alþingi
stefnt saman eigi síðar en 8 mánuð-
um eftir að það var rofið.«
Dagskrá
Ríkisútvarpsins 19.—21. Apríl 1931.
Sunnudagur 19. Apríl.
Kl. 14 Messa í Dómkirkjunni. Kl. 19,30
Veðurfregnir. Kl. 19,35 Upplestur, síra
Friðrik Hallgrímsson. Kl. 20 Óákveðið.
Kl. 20,10 Einsöngur, Guðrún Ágústsdóttir.
Kl. 20,30 Erindi, Helgi Eiríksson. Kl
20,50 Óákveðið. Kl. 21 Fiéttir, Kl. 21,20
Hljómleikar.
Mánudaginn 20, Apríl.
Kl. 19,25 Hljómleikar. 19,30 Veður-
fregnir. 19,35 Upplestur. 19,50 Hljóm-
leikar, alþýðulög. Kl. 20 Enska I. fl.
20,20 Hljómleikar, alþýðulög. 20,30 Er-
indí, Quðm. Hannesson próf. 20,50 Óá-
kveðið. 21 Fréttir. 21,20 Hljómleikar.
Priðjudagur 21, Apríl.
Kl. 19,25 Hljómleikar. 19,30 Veður-
fregnir. 19,35 Erindi. 19,50 Óákveðið.
20 Þýska I. fl. 20,20 Hljómleikar. 21
Fréttir. 21,20 Erindi. Sig. Nordal.
Innflúensan. F.inn 'nílúensu-sjúklingur
var með Islandi hingað. Má búast við að
fleiri farþegar hafi verið með veikina,
þó rólfærir væru, og hafi borið hana
hér í land.
Vegna forfalla verður ekkert af
kvöldskemtun þeirri, sem Hjúkrunar-
féiagið Hlif ætlaði að hafa í Sam-
komuhúsinu í kvöld.
Nokkrar óeyrðír hafa verið í Reykja-
vík undanfarna daga, vegna hinna
stjórnmálalegu atburða er þar hafa
átt sér stað. Hjá vandræðum hefir
þó verið stýrt enn sem komið er.
Kósakkaflokkurinn söng hér tvisvar
í gærkvöld "ið ágæta aðsókn og
mikla hrifningu áheyrenda.
túl
getur fengið at-
vinnu á póst-
húsinu frá 14. Maí. Eiginhandar
umsóknir leggist í póstkassann
fyrir 25, Apríl.