Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 28.04.1931, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 28.04.1931, Blaðsíða 1
■ ' Akureyri, þriðjudaginn 28 Aprií 1931 (Ejteditegi sumar. Verklýðsvinir. Umliyggja „Verkamannsins“ fyrir Verkamannafélagi Akureyrar. Vegna hins sííelda níðs kommún- istanna um stjórn Alþýðuflokksins, er ekki ófróðlegt að rekja hér starf- sögu stjórnar Verklýðssambands Norðurlands undanfarin ár. Stjórn- ina skipuðu 4 kommúnistar og einn hægfara jafnaðarmaður. Þarna var því tilvalið tækifæri fyrir kommún- istana að sýna dugnað sinn og verkvísi. Hægfara jafnaðarmaðurinn í stjórninni, Eid. Friðjónsson, var í hana kosinn án hans samþykkis og leit altaf svo á, að kommúnistarnir ættu að vera driffjöðrin f stjórninni, enda höfðu þeir þar töglin og hagldirnar. Hann lét þá því um íramkvæmdirnar og hefði nú mátt ætla að á þeim hefði ekki staðið ihjá »verklýðsvinunum«. Sjáum nú iðjuna og ávöxt hennar: Einar Olgeirsson skrapp tvo eða þrjá túra út í nágrennið, og stofnaði •smáfélog til að afla kommúnistum fulltrúa á verklýðssamkomur á móti Alþýðuflokknum. Félög þessi eru flest algerlega áhrifalaus í verklýðs- baráttunni og hafa engin skilyrði til að koma að gagni. Annað þrek- virkið var að gefa AÖalbirni »passa« til Rússlandsfarar s. 1. sumar. Þá •aru upp talin þrekvirki stjórnarinnar. En hún gerði samt meira, Hún hélt þrjá fundí þau þrjú ár er hún sat að völdum — stjórnin fyrirgefur ef ég tel fundina of marga. Og hvað var nú gert á þessum fundum? Fyrsti Eundurinn mun hafa verið haldinn skömmu eftir að 3ja þing V. S. N. var haldið og kommúnistarnir komust til valda. Hvað gert var á þeim fundi man enginn, því annað- hvort var fundarbók glötuð, eða helir aldrei verið nein, þegar næsti íundur var haldinn síðari hluta s. 1. sumars. Ritari stjórnarinnar var E. O. og átti að varðveita þau plögg. Annár fundurinn var haldinn s. 1. haust Þá hafði E. O., i nafni stjórnarinnar, lýst því yfir, að stjórn V. S. N. fagnaði yfir því að »Verk- lýðsblaðið« væri stoínað og lýsti sig fvlgjandi stefnu þess. Formaður mótmælti þessu í Alþbl. og það réttilega, þvi þetta mál hafði aldrei verið undir stjórnarfund‘borið. Til þess þá að bjarga þessu frumhlaupi Einars, hlupu kommúnistarnir á fund og samþyktu þetta með honum, eftir á. Þriðji og síðasti fundur Stjórnarinnar var haldinn nokkrum dögum fyrir 4 þing V. S. N. í vet- ur, til að taka »Verkamanninn« af Erlingi Friðjónssyni og fá hann Tóni Guðmann og Aðalbirni Péturssyni í hendur. Slík voru vinnubtögð kommúnista í stjórn V. S. N. Langar ekki ís- lenskan verkaljfð til að fá slíkum »verklýðsvinum« stjórn alþýðumál- anna í hendur? Og finnst honum ekki þeir slanda vel við að bregða öðrum um ónytjungshátt í stjórnar- störfum? »Verkam.« hefir undanfarið látið sér mjög ant um Verkamannafélag Akureyrar og látið mjög af því hve þeir, kommúnistarnir, væru því hollir og nauðsynlegir. »Ef ég hæli mér ekki sjálfur, gera það ekki 19. tbl. NÝJA BIO M/ðvikudagskvöld kl. 8'ji Kvikmynd í 10 þátlum. í aðalhlulverkunum : Janet Gaynor. Charles Morton. Mary Duncan. Heimsfræg mynd. aðrir«, geta þeir sagt með karlinum. En til að bregða upp hinni réttu mynd af umhyggju ritara »Verka- mannsins« fyrir V. M. F. A. skulu hér tilfærð tvö dæmi frá í vetur, sem eru, ásamt mörgu fleira af sama tagi, ágætt sjmishorn af rétt- sýni og sannleiksást »verklýðsvin- anna«. Aðalmatur »Verkam.« undanfarið hefir verið tunnuverksmiðja Hjalta Espholins og hið svokallaða taxta- brot sem þar hefir átt sér stað. — Helir blaðið vaðið blekkinga- og lygaelginn í því máli, sem öðrum, og helt úr sér svívirðingum yfir Verkam.félagið og stiórn þess. Saga málsins er þessi. í vetur, þegar Síldareinkasalan hafði samið við H. Espholin um smíði á tunnum, byrjaði þáverandi formaður Verka- mannafélagsins, Einar Olgeirsson, á samningum við Hjalta um kaup í verksmiðjunni, Höfðu þeir »stétt- vísu« ekkert út á þetta að setja. Svo urðu stjórnarskifti í félaginu, og hélt nýja stjórnin áfram samn-

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.