Alþýðumaðurinn

Útgáva

Alþýðumaðurinn - 23.05.1931, Síða 1

Alþýðumaðurinn - 23.05.1931, Síða 1
I. árg. 25. tbl. Akureyri, Laugardaginn 23 Maí 1931. Hvað hefir unnist? Niðurlag. Upp úr þeirri alhliða viðreisn síldarútvegsins hér Norðanlands, sem varð með stofnun Síldareinlca- sölu Islands, hafa myndast hrær- ingar meðal veikalýðsins, sem leitt hafa af sér, hér Norðanlands, hags- bætur fyrir hann, eða munu leiða það af sér, ef réttilega er á haldið. Er hér meðal annars átt við stofn- un Samvinnufélags Siómanna hér á Akureyri, sem tók til starfa í fyrra og stoínun samskonar félagsskap- ar á Siglufirði, sem mun taka til starfa innan skams, ef það er ekki þegar byrjað. Óhætf er að fullyrða, að hug- myndin um að sjómenn hafi sam- vinnufélagsskap um rekstur sjávar- útvegs hér norðanlands á mes/a stoð í skipulagi því, sem sett er á síldarútveginn með lögum um Síldareinkusölu íslands, því slíkur fálagsskapur myndi verða að leggja framtíðarvonir sínar að miklu leyti í afkomu síldarútvegsins, eftir þeirri reynslu, sem fengin er um rekstur sjávarútvegs hér á landi á undan- förnum árum, með skipum af þeirri gerð, sem þessi félagsskapur hygst að nota til útgerðarinnar. Á grundvelli þess skipulags, sem myndað er með Síldareinkasölunni, hefir verið stofnað hér í bæ »SöIt- unarfélag verkalýðsins*, sem starf að hefir bæði hér á Akureyri í tvö sumur og á Siglufirði síðastl. sum- ar. Fyrsta starfsár þessa félags- skapar hér á Akureyri gekk vel und- ir stjórn Steinþórs Guðmundssonar, og h'kt má segja um starfsemi fél- agsins á Siglufirði, undir stjórn Sigfúsar Baldvinssonar, að öðru leyti er því, að félagið varð fyrir á- falli vegna skemda á bryggju er það hafði á leigu þar, sem nam talsverðri upphæð, er félagið varð að greiða vegna skemdanna, en skilaði þó nokkrum hagnaði frá söltuninni á Siglufirði. Pó starfsemi Söltunarfélagsins hafi gengið í handaskolum hér á Akureyri síðastl, sumar, bæði hvað skemd á síld snertir, og að sú söltunarstöð skilar sama og engum hagnaði þrátt fyrir lægri bryggju- leigu en nokkursstaðar annarsstað- ar á Akureyri, þá hefir reynslan frá fyrra ári Söltunarfélagsins hér og frá starfsemi þess á Sigluíirði í fyrra, sýnt, að þar sem stjórn á vinnunni er í lagi, er viss hagnað- ur af söltunarstarfsemi, ef söltun er ekki því minni. Enda mun sölt- unarfélagið vera búið að sjá þetta og mun ekki ætla að hafa Björn Grímsson aðalmann við söltunina hér í sumar, eins og hann var í fyrra. Söltunarfélag verkalýðsins er einnig stofnað á Siglufirði, og hygst það að taka til starfa nú í sumar. Tunnugerð sú, sem rekin hefir verið hér undanfarna vetur, og mjög hefir færst í aukana upp á síðkastið, er afleiðing af því skipu- lagi, sem sett er með Síldareinka- sölulögunum. Hefir þessi tunnu- gerð ekki einasta verið rekin hér á Akureyri, heldur og á Siglufirði, þó í smærri stíl hafi verið- Enginn vísir var til að tunnugerð hér eða á Siglufirði, sem að nokkru var nýtur, fyr en eftir að Síldareinka- salan tók til starfa. Stafaði þetta, eins og fleira, af þeirri óreiðu, sem ríkti um söltun og sölu síldarinnar fram að árinu 1928, að Einkasalan ■ NÝA BIÓ BB Annar í Hvítasunnu kl. 5 og 87° e. h. LAILA í aðalhlutverkinu: Mona Mártensen. Ágæt mynd, er hvervetna hefir verið geysilega mikið sótt. Hljómsveit Bernburgs spilar undir sj'ningunni. Tryggið yður aðgöngumiða í tíma. tók við. En svo snögg breyting hefir orðið á þessu á þeim þrem árum sem Einkssalan hefir starfað, að nú er í vetur smíðaður Vs hlut- inn af öllum þeim tunnum sem nota þarf undir útflutta sfld árlega, og er smíði þetta eingöngu fram- kvæmt hér á Akureyri og á Siglu- firði. — Mun það vera nálægt 100 þús. kr., sem á þessum eiria vetri og vori fæst í vinnulaun af tunnugerinni á báðum þessum stöðum. Eins og frá var skýrt í fyrrihluta þessarar greinar, hefir íbaldsflokk- urinn á Alþingi beitt sér á móti öllum þeim hagsbótum fyrir verka- lýðinn hér norðanlands og vestan, sem fengist hafa á síðasta kiör- tímabili, og nefndar hafa verið í þessari grein. íhaldsflokkurinn í þmginu hefir beitt sér á móti því að Samvinnufél. ísfirðinga yrði veitt

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.