Alþýðumaðurinn

Eksemplar

Alþýðumaðurinn - 26.05.1931, Side 1

Alþýðumaðurinn - 26.05.1931, Side 1
ALÞYS UM AÐD RINN I. árg. Akureyri,. t’riðjudaginn 26 Maí 1931. 26. tbl. Miili hverra verður baráttan ? Eitt af því, sem kjósendur verða að gera sér ljóst, og það sem allra fyrst, milli hverra fulltrúaefnanna aðal-baráttan verður á kjördegi, því eftir því hljóta þeir að haga sér, ekki einungis á kjördegi, heldur einnig við undirbúning kosninganna, því margir eru þeir, sem eitt eða annað starfa að kosningunum, þótt þeir standi ekki undir stjórn kosn- inganefndar neins sérstaks stjórn- málaflokks. Hvergi á landinu er kjósendum nauðsynlegra að gera þeita en ein- mitt hér á Akureyri, þar sem fjórir eru frambjóðendurnir, en ekki getur orðið kosinn nema einn. Það er líka þegar komið í ljós, að kommúnistar og Framsóknar- menn hafa fest auga á þessu mikil- væga atriði kosningabaráttunnar. — Þegar kommúnistar eru að tala við kjósendur, áætla þeir sér meira en helmingi fleiri atkvæði en þeir hafa yfir að ráða, til þess að láta líta svo út, sem fylgi Alþýðuflokksins, E. F., sé svo lftið, að vonlaust sé að hann nái kosningu. Sama ieik- inn leikur Framsókn, þegar hún er á veiðum. Áætlar sér mun meira fylgi, en hún hefir, og reynir að gera sem mest úr fylgi Einars 01- geirssonar, með það fyrir augum, að gera sinn fulltrúa Hklegastan til sigurs, og reyna að veiða á hann atkvæði frá Alþýðuflokknum. Báðir fiokkarnir vita það, að þeir fara hér með fals, en þeir. gera þetta til að reyna að halda því leyndu fyrir kjósendum, að barátt- aii verður d kjördegi niilli julltrúa Alpýðuflokkssins og Ihaidsfulltrú- ans, og til þess að geta sýnt sem mestan atkvæðastyrk á kjördegi, þó þeir hinsvegar hafi enga von um sigur. Þetta atriði er tekið fyrir hér í blaðinu til að aðvara alþýðukjósend- ur í tíma. Að þeim. er sótt frá þremur flokkum: íhaldinu, eins og vant er um kosningar, og af því að það veit, að Erl. Friðjónsson er eini fulltrúi mótstöðuflokkanna, sem kemur til greina, sem mótstöðuflokk- ur þess á kjördegi; Framsókn, sem altaf dreymir um það, að hún, með hjálp K. E. A., verði hér sterkari en flokkur verklýðsfélaganna; Kommúnistum, sem fylgja fyrirskip- unum Rússa um að reyna að koma íhaldinu til valda í landinu, í von um það, að þá skapist óöld í landi, er gefi kommúnistum byr í seglin. Það er nú sú »göfuga« hugsjón, sem sá »göfugi« flokkur starfar fyrir. — En nú er það svo, að óánægja ríkir meðal kjósenda vegna þess, hve kosningin er margskift Fólkiö vill berjasl til sigurs. Þetta er vel farið. Það er vel farið, að komm- únistar séu einir með þann »heið- ur«, að taka það ráð, þegar þeir hafa enga sigurvon, að gera það illt af sér sem þeir orka. Það er vel farið að fólkið flinni hve fram- koma Framsóknar, hér í bænum, er ósæmileg, að veita þeim ekki lið- veislu, sem leggja til höfuðorustu við höfuðfjanda hennar, sem hún stendur í baráttu við svo að segja alstaðar annarsstaðar á landinu en hér. — Allir flokkarnir vita það, að Al- þýðuflokkurinn stendur — undir nú- verandi kringumstæðum — næstur íhaldinu með atkvæðatölu. Milli í- haldsins og Alþýðuflokksins verður N Ý A BIO Miðvikudagskvöld kl. 8'/j LAILA í aðalhlutverkinu: Mona Mártensen. Ágæt mynd, er hvervetna hefir verið geysilega mikið sótt. Hljómsveit Bernburgs spilar undir sýningunni. Tryggið yður aðgöngumiða í tíma. því »slagurinn« á kjördegi. Kjós- endur Alþýðuflokksins skulu því vera vel á verði gegn hverskonar ágengni frá hálfu hinna flokkanna. Þeir verða það, Alþýðukjósendurnir -— sem í návíginu standa við íhald- ið 12. Júní n. k., þegar Framsókn og kommúnistar standa íklæddir skömminni fyrir að gefa íhaldinu þingsætið, ef Alþýðuflokknum tekst ekki að halda þvu. — En það getur hann, ef alþýða þessa bæjar fylkir sér einhuga um íulltrúa sinn og lætur hvergi blekkjast af röngum upplýsingum hinna llokkanna. Það getur hann, ef alþýðukjósend- urnir, allir í senn og hver um sig, gera það sem í þeirra valdi stendur til að afla honum atkvæða á kjör- degi. Byrjið að vinna nú þegar! Verið hvarvetna á verði fyrir Gróu-sögum andstöðuflokkanna!

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.