Alþýðumaðurinn - 26.05.1931, Qupperneq 2
ALPYÐUMAÐOKINN
Kosningaskrifstofa
Alþýðnflokksins í Strandgötu 9, miðhæðinni. — Geta flokksmenn
á Akureyri athugað þar hvo t þeir eru á kjörskrá og fengið
aðrar uppiýsingar viðvíkjindi kosningunni 12. Júní n.k.
Skiifstofan opin frá kl. 4--7 síðdegis.
Kosninganefndin.
Gangið fram með sf£-;rr-markið
fram undan!
Pd verður sigunnn alþýðunnar!
Verkamaður.
Einn kemur öðrum
meiri.
Þegar kommúnistar lögðu fram
framboð Einars Olgeirssonar, létu
þeir fylgja því 80 stillendur og voru
heldur en ekki hreyknir yfir fylginu.
En þegar Framsókn heyrði þetta,
brá hún skyndilega við og lét fylgja
sínum frambjóðanda 180 stillendur
eða hundraðinu meira en kommún-
istaniir; Vesalings íhaldið kvað
ekki hafa nema rúmlega 50 stillend-
ur með sínum frambjóðanda, svo
ekki blæs nú byrlega fyrir því í
samkeppninni við kommúnistana
og Framsókn, og Alþýðufiokksfram-
bjóðandinn lallar á stað með lfka
tölu stillenda eins og áður en hann
var kosinn til þings síðast Þeir,
sem standa að framboði hans álitu
að kosningin væri leynileg eins og
áður og lögðu því fram aðeins einn
stillendalistann, sem nægði til þess
að framboðið væri löglegt. En svo
lítur út sem kommúnistarnir og
Framsókn séu sammála um það, að
sjálfsagt sé að- skruma yfir fylginu,
því þess hefur prðið vart að bæði
þessi hjú, sem nú eru samtaka um
að sprengja þau samtök kjósenda,
sem feldu íhaldið hér í bæ við síð-
ustu þingkosningar, séu að reyna
að telja verkafólki trú um það að
frambjóðandi þeirra, hver um sig,
hafi svo mikið fylgi, að sjálfsagt sé
að kjósa hann. J?á verði íhaldið
felt. —
Menn vita það um fylgi Fram-
sóknar frá síðustu bæjarstjórnar-
kosningum að hún muni nú geta
haft alt að 350 atkvæði, og ef fylgi
kommúnistanna er eitthvað í sam-
ræmi við stillendatölu þeirra, miðað
við stillendatölu Framsóknar, ættu
þeir að komast upp í 150 atkvæði.
3?að er því ekki að undra þó að
þessir flokkar tveir láti allmikið yfir
sér í baráttunni við íhaldið.
Skæðadrífa.
Bágir af sér.
Þeir eru beygðir orðnir ritarar
Verkam. Sjá óvini hvar sem þeir
fara. Nú sjá þeir aðdróttanir til
vissra manna í Rvik, í þeim orðum
»Alþýðum.«, að kommúnistar séu
fangelsaðir fyrir óknytti og yfir-
troðslur laga og réttar. Það eru
engir menn hér d landi fangelsaðir
fyrir annaö en þetta, og þá komm-
únistarnir auðvitað ekki heldur. Það
er því algerður óþarfi af »Verkam.«
að vera að vekja þann grun á
nokkrum mönnum í Rvík, að þeir
séu óknyttamenn, þó þeir hafi verið
látnir inn fyrir óspektir, eða sakaðir um
þær. Annars skal þess getið, út af
ummælum »Verkam.« um hetjuskap
kommúnistanna í Reykjavík, að af-
skifti þeirra af málum atvinnuleys-
ingjanna þar s. 1. vetur, urðu þeim
atvinnulausu aðeins til skaða, enda
framkomin í fullri óþökk þeirra,
Vék úr stjórninni?
Björn Grímsson var einn í stjórn
Söllunarfélags verkalýðsins s. 1. ár.
Stjórn félagsins réð starfsmenn þess
og ákvað kaup þeirra. Sannað er,
að Björn Grímsson hafði á áttunda
hundrað krónur á mánuði, sem verk-
stjóri á Innri-hafnarbryggjunni s. 1.
sumar. »Alþýðum,« hefir sagt að
hann hafi skamtað séi þetta kaup
Tveir úr stjórninni, Steinþór Guð-
mundsson og Sigfús Baldvinsson,
hafa í dálks löngu vottorði, skýrt
frá því, að Björn hafi verið ráðinn
af »félagsstjórninni« fyrir 400 kr. á
mánuði. Vék hann úr stjórninni á
meðan hann var ráðinn? Og hver
skamtaði honum hinn hlutann, á
fjórða hundrað krónur d mánuöi?
»Kyndugt« þingmannsefni
þykir íslendingi Erl. Friðjónsson
vera, fyrst hann skuli láta blaö Al-
þýðuflokksmanna hér á staönum
segja s-att fj'rir kosningarnar.
Dómur
var feldur í undirrétti 15. þ. m. f
máli valdstjórnarinnar, fyrir hönd
Landsbanka Islands og Útvegsbanka
íslands, gegn Pórði Flygeming, Bein-
teini Bjarnasyni og Ingólfi Fiygenring,
fyrir að hafa selt fisk, veðsettan bönk-
unum, án þeirra vitundar og án þess
að grelða bönkunum skuldir sínar.
Forsendur fyrir dómnum eru margar
og næsta óglæsilegar, en hann hljóðar
þannig, að Pórður er dæmdur til 18
mánaða betrunarhússvinnu og sviftur
leyfi, æfilangt, til atvinnurekstrar. Bein-
teinn er dæmdur í 30 daga einfalt
fangelsi, og I igólfur til að greiða
1000 krónur í sekt. Auk þess skulu
þeir ákærðu greiða allan málskostnað
í héraði.
Að tilhlutun kristniboðsfé’ags kvenna,
flytur Pétur Sigurðsson erindi í Skjald-
borg kl. 8Y2 næsta fimtudagskvöld.
Fyrir utan það að hlýða á gott er-
indi, fá unnendur kristniboðs þarna
tækifæri til að leggja nokkra aura í
kristniboðssjóð.