Alþýðumaðurinn - 26.05.1931, Page 3
AL ÞÝÐUMAÐIJRINN
3
Sala Rússavíxlanna.
Þess var stuttlega get<ð í síðasta
blaði, að búið væri aó selja Rússa-
víxlana og að útborgun á hlut sjó-
manna og útgerðarmanna færi fram
nú upp úr hátíðinni.
Regar Rússum var seld síldin í fyrra
sumar, var þess vænst að rikisstjórnin
myndi veita ríkisábyrgð fyrir þessum
viðskiftum, svo hægt yrði að selja
víxlana þá þegar. En ríkisstjórnin var
á alt annari skoðun, og dróst þetta
þar til þing kom saman, en þá hóf
þingmaður Akureyrar látlausa sókn í
málinu, bæði á hendur ríkisstjórninni
og þingflokkunum í von um að þingið
gæfi leyfi fyrir ábyagðinni, ekki ein-
ungis hvað snerti gömlu Rússavíxlana,
heldur og fyrir áframhaldandf viðskift-
um við Rússa. En Framsókn og í-
haldið létu sér hægt. Ró var svo langt
komið rétt fyrir þingrólið, að vissa
var fengin fyrir því að ábyrgð myndi
fást á Rússavíxlunum. En svo kom
þingrofið og gerði skjótan enda á öll
störf þingsins og var ábyrgðin þar
með úr sögunni. Eina leiðin sem þá
var fær, var að róa í ríkisstjórnina
enn einu sinni og það gerði þingm.
Akureyrar, samkvæmt samþykt Út-
flutningsnefndar Sildareinkasölunnar,
sem stódd var í Reykjavík um þessar
mundir. Félst rikisstjórnin á að veita
ábyrgðina, ef þingflokkarnir samþyktu
það. Leitaði þá útflutningsnefndin
samþykkis flokkanna og fékst strax
samþykki Alþýðufl. og Framsóknar,
en í þófi hefir staðið við íhaldið, þar
til nú fyrir skemstu. Samkvæmt samn-
ingunum við Rússa í fyrra áttu víxl-
arnir að greiðast í Okióber og Nóvem-
ber n. k. Nú eru þeir seld r í Maf
svo eigendur síldar fá peninga sína 5
mánuðum fyr, en verið hefði, ef rík-
isábyrgðin hefði ekki fengist.
Hvað mikið verður greitt út, er
blaðinu ekki kunnugt um.
Erindi Péturs Sigurðssonar í Sam-
komuhúsinu var vel sótt, á jafn óhent-
ugum tima. Sagðist ræðumanni prýði-
•ega.
Úr bæ ofl bygð.
17. Júní n. k. verður haldinn há-
tíðlegur hér á Akureyri, að tilhluiun
Ungmennasambands Eyjafjarðar. Fara
þar fram ræður, söngur, íþróttir þreytt-
ar og fl. Ágóði af hátíðahöldunum
rennur í Alþýðuskólasjóð héraðsins.
Framboðsfundurinn fórst fyrir í gær,
þ\í einn frambjóðandinn, Guðbr. ís-
berg, var veikur. Var kvöldinu snúið
upp í Rauðakrossbill.
Nýlega kusu útgerðarmenn einn
mann í útflutningsnefnd Síldareinka-
sölunnar, í stað Ásgeirs Péturssonar,
er ekki vildi vera áfram. Kosinn var
Guðmundur Pétursson útgerðarmaður,
og varamaðnr hans Jón Ainesen kon-
súll.
Hljómsveit Bernburgs heldur hljóm-
leika í kvöld. Er ekki að efa, að
margir fara þangað.
Leiðrétting. Pessar prentvillur
hafa slæðst inn f greinina »Hvað
hefur unnist« í síðasta blaði »Alþ.m.«
1. í fyrsta dálki 2. málsgrein: »leggja
framtíðarvon:r«, á að vera byggja
framtíðarvonir.
2. Sömu málsgrein: »í afkomu* á
að vera á afkomu.
3. Einnig í sömu málsgrein »hér á
landi* á að vera hér á norður-
landi.
4. Á annari síðu 3. dálki »svigu-
högg íhaldsins« á að vera svipu-
högg íhaldsins.
Fleiri prentvillur eru í þessari grein,
en eru svo augljósar, að ekki mun
þörf að leiðrétta.
Útdráttur
úr dagskrá ríkisútvarpsins 27/6 "~8%
1931.
Fa=.tir liðir daeskrárinnar eru:
Kl. 19 30 Veðurfregnir
— 20 Tungumálakensla.
— 21 Fiéttir.
Miðvikudaginn 27. Maí:
KI. 19,55 Barnasögur, Sigrún Ögmunds-
í---------------------------
ALÞÝÐUMAÐURINN.
Gefinn út af A'þýðuflokks-
mönnum.
Kemur út á hverjum Piiðjudegi,
og aukablöð þegar með þarf.
Ásktiftaigjald kr. 5,00.
Ábyrgðarmaður:
ERLINGUR FRIÐJÓNSSON.
Sími 75.
Afe'eiðslumaðut;
HALLDÓR FRIÐJÓNSSON.
Sími 110.
Prentsmiðja Björns Jónssonar,
dóttir. 19,50 og 20,20 Einsöngur, Sveinn
Porkelsson. 20,30 Erindi: Kirkjan og út-
varpið, Friðrik Hallgrimsson. 20,50 Uá-
kveðið. 21,20 Hijómleikar, P. Q. og E. Th.
Fiintudaginn 28. Maí:
Kl. 1935 Upplestur, Sigurjón Quðjóns-
son. 19,50 og 20,20 Einsöngur, Elsa Sig-
fúss. 20,30 Erindi: Tónlistarháttir, Emil
Thoroddsen. 20,50 Óákveðið, 21,20 Gram-
mofonhljómleikar.
Föstudaginn 29. Maí:
Kl. 18,30 Erindi um búnaðarmál, Þor-
valdur Árnason. 19 Erindi um sama. Metú-
salem Stefárisson. 19,35 Upplestur, Sig.
Skúlason 19.55 Hljómleikar. 20,20 Hljóm-
leikar, P. G, Þ. Á., E. Th. 20,30 Erindi:
Tónlistarháttir, Emil Thoroddsen. 20,50
Óákveðið 21,20 Grammofonhljómleikar.
21,40 Uagskrá næstu viku.
Laugardaginn 30. Maí:
K1. 19,35 Barnasögur, Arngrímur Krist-
ánssou. 19 50 og 20,20 Slaghörpuhljóm-
leikar. 20,30 Erindi um fjallaferðir, Guðm.
Einarsson. 20,50 Óákveðið. 21,20 Dans-
músikk.
Auglýsingum
í »AIþýðumanninn<! er
veitt móttaka á afgretðslu
blaðsins í Lundargötu 5, í
Kaupfélagi Verkamanna og í
Prentsmiðju Björns Jónssonar.
MUNIÐ EFTIR
minningarspjöldum Gamalmenna-
hælissjóðs Akureyrar!
Fást hjá bóksölum og hjá
Guðbirni Björnssyni.