Alþýðumaðurinn - 06.06.1931, Blaðsíða 1
ALÞYDDMASURINN
I. árg.
Akureyri, Laugardaginn 6. Júní 1931.
29. tbl.
Á framboðsfundinum á Sunnu-
daginn var, sagði Einar Olgeirsson
að s Alþýðuflokkurinn væri búinn
að selia sig svo oft, að hann vissi
ekki lengur hver væri eigandinn*.
Þegar Erlingur Friðjónsson skor-
aði á hann að sanna þessi ummæli,
eða heita að öðrum kosti ósann-
indamaður, kaus Einar þann kost-
inn að þegja og taka á sig stimp-
ilinn, alt svo fallegur hann er.
En nú hefir Einar í Verkam.
síðast, reynt að finna þessum ó-
þverraorðum sínum um Alþýðu-
flokkinn stað, með því að segja
að hann hafi átt við það, að þing-
menn flokksins hafi ætlað að vera
með íhaldinu í því að mynda
bráðabyrgðastjórn, eftir þingrofið í
vetur. —
Það þarf sjálfsagt ekki að minna
á það, að Einar Olgeirsson var
mjög lukkulegur yfir því, þegar
Framsóknarstjórnin komst til valda
með hlutleysi Alþýðuflokksþing-
mannanna, enda varð hann fram-
kvæmdarstjóri Síldareinkasölu fs-
Iands af því að Framsókn komst
til valda, og hafði sínar 12 þús. kr-
í laun á ári upp úr því. En nú
hefur hann sýnilega ekki búist við
neinu handa sér, þótt bráðabyrgðar-
stjórn yrði mynduð upp úr þing-
rofinu, sem stæði fram yfir kosn-
ingarnar næstu. En það voru aðr-
ir, sem áttu að hafa nokkuð upp
úr því. Verkafólkið í landi og
sjómennirnir áttu að hafa upp úr
því atvinnubætur, og almenn mann-
réttindi áttu að ná framgangi á því
þingi, sem sett yrði eftir þingrofið.
En umhyggja Einars fyrir verka-
lýðnum nær sýnilega ekki svo
langt að hann hafi viljað þetta.
Alþýðuflokksþingmennirnir voru
búnir að tryggja það, ef mynduð
yrði bráðabyrgðarstjórn og þing
kæmi saman upp úr þingrofinu, að
þá yrðu afgreidd á þinginu þessi
mál: —
Ríkisábyrgð fyrir Rússavíxlunum,
svo að sjómennirnir fengju aurana
sína, sem Einar hefur lánað Rúss-
unum.
Ábyrgð fyrir Sogsvirkjuninni, sem
jafnframt því að Reykvíkingar hefðu
fengið ódýrt rafmagn til afnota,
hefði þegar á þessu ári aukið at-
vinnu verkafólks geysilega.
Afgreiðsla stjórnarskrárbreyting-
arinnar, sem bætti aðstöðu verka-
fólks mikið til þess að njóta sín
við þingkosningar. Og afgreiðslu
fjárlaga með meiri verklegum fram-
kvæmdum en stjórnarfrumvarpið
gerði ráð fyrir.
Þetta kallar Einar Olgeirsson að
þingmenn Alþýðuflokksins hafi selt
sig. —
Getur alþýða manna séð á þessu
umhyggju Einars fyrir henni, þeg-
ar hún veit málavöxtu.
Þess skal getið, að ekkert sér-
stakt mun hafa verið ætlað handa
Einari í þetta sinn, þótt ný stjórn
kæmi.
Engu skal um það spáð, hvort
Einar hefur selt íhaldinu í Reykja-
vík anda sinn hold og raddfæri, í
ólátum þeim, er það stóð fyrir á
götum bæjarins í sambandi við
þingrofið, eða hann hefur unnið
þar kauplaust, en hitt er víst að
ekki sást nema á höfuðfat Einars
upp úr þeirri æpandi kös íhaids-
lýðsins, sem óð um götur bæjar-
arins nætur og daga í þjónustu
þess, en kunnugir menn þektu
rödd Einars í þeirri iðandi og æp-
andi íhaldsveitu. Verður öðrum
látið eftir að dæma um það, hvort
þjónustubrögð Einar við fhaldið þá
hafa verið virðulegri og alþýðunni
gagnlegri, en tilraunir Alþýðuflokks-
þingmannanna til þess að ná sam-
an þingi, svo að mál þau, er hér
hafa verið nefnd, fengju þinglega
afgreiðslu.
FulltÉr dauðu félayanna.
Frá því var skýrt hér í blaðinu,
að Einar Olgeirsson hefði stofnað
tvö félög hér í bæ, Sjómannafélag
Norðurlands og Jafnaðarmannafélag
Akureyrar, en bæði þessi félög
myndu vera í andarslitrunum, því
ekki hefði orðið þess vart að þau
væru starfandi.
Þessi félög eiga þó fulltrúa sína
í fulltrúaráðinu, sem Einar lætur
stilla sér upp við kosningarnar
núna. —
Meðal þeirra hlutverka, sem hvíla
á fulltrúaráðum félaga, þar sem
þau eru til, er það, að hafa auga
með þeim félögum, sem ekki eru
nægilega sterk til að starfa aðstoð-
arlaust, og að sameina félög um
þau átök, sern þarf að gera í kaup-
gjaldsmálum, og aðstoða einstök
félög, ef til kaupdeilu dregur.
Hefir þetta verið talið svo sjálf-
sagt mál, að t. d. í fyrra, þegar
Verkakvennafélagið hér ætlaði af fá
taxta sinn hækkaðann, snéri það
sér til formanns fulltrúaráðsins,
Erlings Friðjónssonar, og óskaði
eftir aðstoð þess. En ekki kom
til neins þá, vegna þess að at*
vinnurekendur fengu stjórn Verka-