Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 09.06.1931, Blaðsíða 4

Alþýðumaðurinn - 09.06.1931, Blaðsíða 4
4 alÞýðdm a ðurinn heimsótli Jón Árnason og bað hann að hjálpa sér til þess að verða fram- kvæmdarstjóri í rússneska olíu- hringnum hér á landi. Gefjunarmálið þekkja allir. Hvað eftir annað voru gerðar samþyktir í Verkamannafálaginu af hendi kommúnista um að stöðva vinnu í Gefjunni um hávetur, sem óhjá- kvæmiiega hefði Ieitt af sér atvinnu- missir fyrir fólkið sem þar vann. Og þó hafði eigandi verksmiðjunn- ar gefið þá yfirlýsingu að hann myndi hækka kaup fólksins um ný- ár. Lá við sjálft að kommúnistar spiltu því að sú kauphækkun næð- ist. Fjórða frumhlaup kommúnistanna í verkalýðsmálunum á tæpum 9 mánuðum er það þegar brot úr Verkakvennafélaginu samþykkir að hækka vinnutaxta fiskverkunar- stúlknanna, án þess að hafa fengið þær stúlkur, er þá vinnu stunda, til þess að fylgjast að með þær kröf- ur, eða undirbyggja kröfurnar að öðru leyti. Ávöxtur slíkra frammi- stöðu er sá, sem áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu, að atvinnu- rekendur hafa sett þessum stúlkum verri kjör en áður. J Hér hafa þá verið nefnd fjögur hliðstæð dæmi, því er gerðist 1921, og Einar Olgeirsson hefir minst á í samhandi við Svein Sigurjónsson. Og þessi fjögur hliðstæðu dæmi hafa öll gerst á sfðustu 9 mánuðum. Ólánsatburðirnir í verkalýðsmálun- um sem kommúnistarnir hafa verið valdir að hafa því endurtekið sig til jafnaðar á rúmlega tveggja mán- aðafresti. Sveinn Sigurjónsson gerði ekki þá yfirsjón sem hér hefir verið nefnd, nema einusinni á æfinni svo nær stæði Fyrir E. O. að taka hann sér til fyrirmyndar en að álasa honum. Spentir. »Hvernig gengur hjá ykkur?* kváðu smálar kommúnista annarsvegar og smalar íháldsins hfnsvegar, segja hvorir við aðra, er þeir hsttast á götu. Samvinnan er ágæt og spenningurinn í hápunkti á báðar hliðar. KOSN I N(í I N. Kostning til alþingis er framkvæmd dálítið á annan hátt en kósning til bæjarstjórnar. Alþýðumanninum þykir því rétt að geta hennar að nokkru, nýjum kjósendum til leiðbeiningar. Pegar kjósandi kemur inn í kjörstjórnarklefann, fær hann í hendur kjör- seðil, sem lítur þartnig út: Erlingur Friðjónsson Einar Olgeirsson Guðbrandur ísberg Kristinn Guðmundsson Með þenna seðil fer kjósandinn í kjörklefann og stimplar með stimpli, er þar liggur á borðinu, yfir hvíta depilinn framan við nafn þess manns er hann kýs. Pegar kjósandi, er kýs Erling Friðjónsson, hefir kosið lít- ur seðiliinn þannig út: ' . ?• I- Erlingur Friðjónsson #, Einar Olgeirsson Guðbrandur ísberg •j-.i'i.j1 ■ ' J $■ *S K Kristinn Guðmundsson sl • - V '1- . . !r •. ■■)%•■ ‘v • - Pegar kjósandinn hefir stimplað yfir depilinn, svo vel að hann sjáist ekki, þerrsr hann yfir með þerriblaði, er liggur á borðinu, brýtur seðií-' inn í sama brot og# hann var áður og stingur honum niður um rifu á af- kvæðakassanum í kjörstjórnarklefanum um leið og hann gengur út.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.