Alþýðumaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Alþýðumaðurinn - 16.06.1931, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 16.06.1931, Qupperneq 1
ALÞYSUMAÐURINN I. árg. Akureyri, t’riðjudaginn 16 Júní 1931. 33. tbl. i Annað bréf til Einars Olgeirssonar. Hún verður ekki talin óeðliieg é sú nærgætni þín við sjálfan þig/að svara ekki opna bréfinu mínu til þín fyrri en rétt fyrir kosningarnar, svo því yrði ekki komið við að svara áður en til kosninganna kom. Þú hefir sýnilega haft hugmynd um það, að þitt »opna bréf til allrar alþýðu í Akureyrarbæ* sem þú ritar sem svar til mín, væri best geymt ósvarað i hugum fólks- ins fram yfir kosningarnar. — Pú vildir fá að njóta ávaxtanna af meðaumkun kjósendanna, fyrir þinr.i grátklökku mynd, sem þú drógst upp frammi fyrir lesendum blaðs þíns, fyrir það hvað ég og aðrir hafi farið illa með þig, með því að láta þig fara frá Síldareinkasölunni. Pú lýsir því átakanlega ástandi þínu, að verða atvinnulaus; þú fáir ekki atvinnu við kennslu — at- vinnurekendur láti þig ekkert hafa að gera. Þér dettur ekki í hug að fyrir þér geti legið sama erfiðið og allur fjöldi verkafólksins, sem þú þykist vera talsmaður fyrir, verður að inna af höndum, sem er að vinna erfiðisvinnu á mölinni eða annarsstaðar. Pessvegna stara augu þín til einhverra annara starfa, sem þér sýnast lokuð fyrir þér. Pess- vegna biður þú fólkið að kenna í brjóstí um þig, fyrir að þú fáir ekki þessi störf til að afla þér við- urværis af, og þessvegna biður þú fólkið að sakna þín þegar þú sért að fara héðan í burtu til þess að hafa eitthvað fínna og léttara að vinna en algenga malarvinnuna. Pér er mjög gjarnt að gera sam- anburð á þér og mér. Pú ert í þínum augum sá heilagi maður, sem ert altaf reiðubúinn að bera kross erfiðleikanna með hinni vinnandi stétt og fyrir hana. Ég er aftur í þínum augum >tólfti postulinnc sem ítalski málarinn fann ekkert >Model« af fyr en hann fann >spiltan ræfil á götu úti«. — Pað er því að sjálfsögðu rétt að rekja þenna samanburð nokkru lengra en þú hefir gert og skýgn- ast inn í það starf, sem þú hefir innt af höndum í þágu verkalýðs- ins, og samræmisins í orðum þín- um og gerðum, og þá að síðustu mála mynd okkar beggja á vegg- inn, hlið við hlið. Ég kom hingað til Akureyrar á líku aldursreki og þú ert nú. Fram- undan mér blöstu ekki neinar hátt- launaðar stöður, ekki einu sinni kennarastaða. Ég kom austan yfir Vaðlaheiði á hestum postulanna og skóaður líkt og þeir. Mitt fyrsta verk hér var að ganga að þúfnasléttu með Jóni Friðfinns- syni og fleiri verkamönnum, sem voru að rækta túnbletti fyrir sig hér ofan við bæinn. Ég gekk einnig í malarvinnu með verkamönnum, sem þar unnu. Ég vann með Jóni Sigurðssyni að húsasmíði, og í síldarvinnu gekk ég ásamt öðrum samherjum mín- um meðal verkamanna, meðan ég tók ekki annað fyrir hendur, sem síðar verður að vikið. Ég nefní þessa tvo menn hér að framan, af því þeir hafa verið sam- verkamenn mínir og ég þeirra í verklýðshreifingunni hér upp undir 20 ár, og þeir koma í huga minn þegar ég fer að minnast liðins .tíma. — NÝJA BIÓ Míð vikudagsk völd kl 8l/t Nú lítur út fyrir, að þú með iðju þinni hér í veklýðsfélögunum sért búinn að telja þessum gömlu samherjum og samverkamönnum trú um að ég sé ímynd »tólfta postulans*. Pað er grundvöllurinn undir þessari kenningu þinni, sem ég vil ræða við þig. Ekki vegna mín persónulega, heldur vegna sam- verkamanna okkar beggja í verk- lýðshreifingunni. Ég vann með verkamönnunum á mölinni rúmlega tólf ár. í þeim skóla lærði ég það í verklýðsmál- um, sem kom þér til að rita um mig 1927, eftir þínum eigin orðum meira lof, en um nokkurn annan >núlifandi« mann. í þenna skóla hefir þú forðast að ganga, og nú þegar framundan þér liggja hin ónumdu lönd og aðstaða þín er lík og mín aðstaða var fyrir nálega 30 árum síðan, þegar ég kom hing- að til bæjarins, þá stígur þú ekki út í 12 ára malarvinnuna með verkamönnunum, svo þú lærir að

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.